Kylfingur - 01.02.2007, Síða 2
O Húsið á Korpu er opið
í vetur á laugardögum og
sunnudögum frá kl. 9 til 15.
O Félagsgjöld eiga að vera
greidd að fullu 1. apríl 2007.
„Ógreiddir félagar" verða teknir
af félagaskrá.
O Félagar eru beðnir að
tilkynna skrifstofu ef breyting
verður á heimilisfangi. Einnig
er gott að vita ef félagar skipta
um kreditkortanúmer á meðan
á greiðslu félagsgjalda stendur.
O Skrifstofan sendir af og til
frá sér upplýsingar í tölvu-
pósti. Þeir sem hafa áhuga á
að fá slíkan póst eru beðnir að
senda inn netföngin sín á
harpa@grgolf.is
O Vetraræfingar barna og
unglinga eru hafnar. Áhuga-
samir geta skráð sig á skrif-
stofu GR í síma 585-0200.
Vetraræfingarnar kosta 10.000
kr. og þátttakendur verða að
vera skráðir meðlimir í GR til
að geta tekið þátt.
O Munið heimasíðu GR:
www.grgolf.is
O Nýtt símanúmer í Básum er
555-7202. www.basar.is
Stjórn GR
Gestur Jónsson, formaður.
Jón Pétur Jónsson, varaform.
Bemhard Bogason, ritari.
Flelga Harðardóttir, gjaldkeri.
Meðstaómendur:
Viggó H. Viggósson, Björn
Víglundsson, Stefán B. Gunn-
arsson.
Varastjóm: Magnús Oddsson,
Anna Björk Birgisdóttir og
Rakel Kristjánsdóttir.
I'ormenn ncfnda 2007:
Kappleikjanefnd: Jón Pétur
Jónsson.
Forgjafar- og aganefnd:
Jónas Valtýsson.
Fjarhagsn.: Helga Harðardóttir.
Framkvæmdanefnd.: Stefán B.
Gunnarsson.
Vallanefnd: Viggó H. Viggóson.
Öldunganefnd: Halldór B. Kristj-
ánsson.
Afreks- og unglinganefnd:
Magnús Oddsson.
Kvennanefnd: Arrna Björk
Birgisdóttir.
Húsan.: Rakel Kristjánsdóttir.
Nefnd um skoðun á rekstri og
starfi GR: Ragnar H. Hall.
BiBI
Hafist hefur verið handa við
að einangra og klæða loft
Korpúlfsstaða. Áætlað er
að verkið taki einn og hálf-
an mánuð þannig að verklok
verði í febrúarlok. Með þessari
aðgerð munu allar forsendur
til nýtingar á þessum hluta
hússins breytast. Reynt verður
að haga framkvæmd þannig
að sem minnst röskun verði
á þeirri starfsemi sem fram
fer, þ.e.a.s. æflngum og pútt-
mótum.
Kjallarinn
GR hefur náð samkomu-
lagi við framkvæmdasvið
Reykjavíkurborgar hvað varðar
nýtingu kjallara Korpúlfsstaða.
Samningur var gerður í jan-
úar og kveður á um 450 m2
viðbótarrými, sem GR tekur
á leigu af Reykjavíkurborg.
Umrætt rými er samliggj-
andi núverandi vélaverk-
stæði GR að Korpúlfsstöðum.
Skipulagsvinna er hafin hvað
varðar nýtingu á þessu rými.
Útbúin verður aðstaða til
geymslu á golfbflum, þjólum
og kerrum og geta félagsmenn
leigt sérmerkt pláss undir slíka
hluti. Verðlagningu verður
stillt í hóf og leigugjöld miðuð
við stærð tækja. Einnig verður
rýmið nýtt undir vélar og tæki
GR. Stefnt er að því að svæð-
ið við Korpúlfsstaðahús verði
lagt bundnu slitlagi, þ.e.a.s.
aðgengi að kjallara ásamt stíg-
um að fyrsta og tíunda teig.
Vélakostur
Til að halda áfram þeirri
metnaðarfullu stefnu sem
stjorn og starfsfólk hefur sett
sér, meðal annars hvað varðar
hirðingu og viðhald golfvalla,
þarf stöðugt að endurnýja
vélarkost GR. Eftir könnun
á vélaþörf var leitað tilboða
hjá þremur aðilum í þær vélar
sem nauðsynlega vantar. MHG
sem er umboðsaðili Jakobsen
golfvallavéla skilaði inn hag-
stæðasta tilboði og var gengið
til samninga við það fyrirtæki.
Vélarnar eru; tvær semi-röff
sláttui-vélar, ein brautarslátt-
urvél, tveir vinnubflar, ein flat-
arslátturvél, ein götunarvél,
ein vél til að hirða glompur
(Bönker-rake) og einn trakt-
or. Um er að ræða vélakaup
að verðmæti yfir 20 millj-
ónir króna og verða vélamar
afhentar GR í aprfl 2007.
Hið árlega herrakvöld Golfklúbbs Reykjavíkur verður haldið föstudaginn
2. mars n.k. í golfskálanum í Grafarholti. Maturinn verður í umsjá Harðar
Traustasonar og öll umgjörð lcvöldsins hin glæsilegasta að venju. Boðið
verður upp á frábæran mat, ræðumann kvöldsins og skemmtiatriði. Húsið
verður opnað kl. 19.00 en borðhald hefst tímanlega kl. 20.00. Takmarkaður
sætafjöldi. Miðapantanir fara fram hjá Ómari Erni í síma 585-0200 eða á
omar@grgolf.is og era menn hvattir til að tryggja sér miða sem allra fyrst.
Greiða þarf við skráningu. Miðaverð er kr. 5.200.
e