Fréttablaðið - 03.01.2011, Blaðsíða 32
3. janúar 2011 MÁNUDAGUR24
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
Á þessum degi árið 1990 var fyrsti viðskiptavinur
nýs Íslandsbanka afgreiddur þegar Valur Valsson,
bankastjóri Íslandsbanka, afgreiddi Jóhannes
Stefánsson veitingamann um tékkhefti. Þetta átti
sér stað í afgreiðslu bankans í Húsi verslunarinnar
en á þessum fyrsta starfsdegi bankans voru starfs-
menn bankans nærri fjögur hundruð talsins.
Íslandsbanki varð til við sameiningu fjögurra
banka; Verslunarbanka, Útvegsbanka, Alþýðubanka
og Iðnaðarbanka. Íslandsbanki var í reynd stofnað-
ur árið 1904 en hafði þá kallast Útvegsbanki meiri
hluta starfstímans, frá 1930-1990.
Meðal þeirra sem fluttu ávörp af tilefninu voru
Ásmundur Stefánsson, þáverandi formaður banka-
ráðs Íslandsbanka, og Jón Sigurðsson, þáverandi
viðskiptaráðherra. Að ávörpum loknum var haldin
flugeldasýning og merki bankans tendrað. „Við
ætlum okkar stóran hlut,“ sagði Ásmundur meðal
annars í ræðu sinni. „Við ætlum okkur að veita
almenningi, fyrirtækjum, stofnunum, félagasamtök-
um og einstaklingum góða og öfluga þjónustu.“
Jón Sigurðsson, sem afhenti leyfisbréf Íslands-
banka, sagði það ekki „ofmælt að þessi bankasam-
eining hafi fengið góðan hljómgrunn hjá þjóðinni“.
ÞETTA GERÐIST: 3. JANÚAR 1990
Fjórir bankar sameinaðir
Alliance Française var stofnað árið
1893 í Frakklandi og myndar nú fjöl-
mennustu félagasamtök heims. Alli-
ance Française í Reykjavík var stofn-
að árið 1911, hefur starfað óslitið síðan
og fagnar því aldarafmæli í ár. Friðrik
Rafnsson þýðandi er forseti Alliance
Française á á Íslandi.
„Að stofnun félagsins í Reykjavík
stóð hópur Frakklandsvina undir for-
ystu Magnúsar Stephensen, fyrrver-
andi landshöfðingja, sem vildu kynna
„frakkneska tungu og frakkneska
menningu“ eins og það var orðað.
Þeir komu saman í október 1911 og
ákváðu að stofna Alliance Française
í Reykjavík. Þar með hófst nýr kafli í
sögu menningarsamskipta Frakka og
Íslendinga, sem jafnframt er mikil-
vægur hluti af menningarsögu okkar
Íslendinga almennt, enda hefur félag-
ið verið svo lánsamt að hafa mjög gott
og drífandi fólk í stjórn félagsins í
gegnum árin. Meðal þeirra sem hafa
verið forsetar Alliance Française má
nefna þann fyrsta, Magnús Stephen-
sen fyrrverandi landshöfðingja, Thoru
Friðriksson, Vigdísi Finnbogadóttur,
fyrrverandi forseta Íslands, og rithöf-
undana Sigurð Pálsson og Pétur Gunn-
arsson,“ segir Friðrik.
Í dag eru um fimm hundruð félag-
ar í Alliance Française í Reykjavík.
Starfsemin er nú tvíþætt. Annars
vegar starfrækir Alliance Française
frönskuskóla fyrir alla aldurshópa,
frá börnum til „heldri borgara“, og
svo er Alliance Française í Reykjavík
menningarmiðstöð sem stendur fyrir
ýmsum viðburðum, oft í samstarfi við
aðrar menningarstofnanir á höfuð-
borgarsvæðinu og úti á landi. „Það er
rétt að taka það fram að allir viðburðir
á vegum Alliance Française eru öllum
opnir og útheimta ekki frönskukunn-
áttu en það sem fer fram á frönsku er
túlkað,” segir Friðrik.
Félagið á Íslandi er eitt elsta Alli-
ance Française félagið og tímamótin
eru því ekki síður stórviðburður fyrir
heildarsamtökin en Ísland. Vegna
þessa hafa ýmsir af æðstu mönnum
Alliance Française í París boðað komu
sína hingað til lands til á afmælis-
árinu.
„Við erum að leggja lokahönd á viða-
mikla afmælisdagskrá sem stendur
yfir allt þetta ár, alls eru þetta um
þrjátíu viðburðir sem standa allt frá
einu kvöldi og upp í þrjá mánuði. Meðal
annars hefst frönsk kvikmyndahátíð
21. janúar þar sem tíu úrvalsmyndir
undan farinna tveggja ára verða sýnd-
ar í Háskólabíó og í haust verða helstu
perlur franskrar kvikmyndasögu
sýndar í Bíó Paradís. Sögusýning verð-
ur opnuð í október og gott væri að fólk
sem býr yfir heimildum, hvort sem er
skriflegum og ljósmyndum, hefði sam-
band við Alliance Française. Einnig er
von á þekktum rithöfundum og heim-
spekingum hingað til lands og settar
verða upp myndlista- og ljósmynda-
sýningar auk þess sem við ætlum að
bjóða þjóðinni á franskt harmonikku-
ball. Aldarafmælið verður vonandi í
senn hátíðlegt og skemmtilegt, ætlun-
in er að minnast þessarar merku sögu
en líka njóta þess að vera til og horfa
til framtíðar, enda aldar afmælisbarnið
sjaldan verið hressara,” segir Friðrik.
juliam@frettabladid.is
ALLIANCE FRANCAISE Á ÍSLANDI: HELDUR UPP Á ALDARAFMÆLI Á ÞESSU ÁRI
Stórviðburður fyrir samtökin
KRAFTUR Í 100 ÁRA AFMÆLI Friðrik Rafnsson, forseti Alliance Française á Íslandi, er í óðaönn að
undirbúa 100 ára afmæli félagsins. Árlega stunda meira en 450.000 manns frönskunám á vegum
Alliance Française félaganna og um sex milljónir taka þátt í menningarviðburðum sem félögin
standa fyrir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
J.R.R. TOLKIEN, breskur prófessor og rithöfundur (1892-1973), fæddist þennan dag.
„Ég er raunverulega hobbiti að öllu leyti, nema hvað líkamsstærð viðvíkur.“
Í lok janúar verða ný íslensk
kvikmyndaverðlaun afhent
í fyrsta sinn. Eru þau sam-
starfsverkefni tímarits-
ins Mynda mánaðarins og
vefjarins kvikmyndir.is.
Þessi verðlaun eru nýjung á
Íslandi og eru ólík verðlaun-
um eins og Edduverðlaunun-
um á tvo vegu.
Í fyrsta lagi er hér um
áhorfendaverðlaun að ræða,
ekki ósvipað verðlaun-
um eins og Empire Movie
Awards og MTV Movie
Awards, þar sem í stað þess
að aðilar innan kvikmynda-
iðnaðarins kjósi sín á milli
eru það áhorfendur sem fá
að velja það besta frá árinu,
og hafa þeir algerlega loka-
orðið í því vali. Í öðru lagi
er einnig valið úr erlend-
um myndum, en þetta eru
einu kvikmyndaverðlaunin
á Íslandi sem gera það. Er
ætlunin að þessi verðlaun
verði árlegur viðburður þar
sem áhorfendur á Íslandi
fái sinn eigin vettvang til
að verðlauna það sem þeim
þykir skara fram úr í kvik-
myndaheiminum.
Alls eru verðlaunaflokk-
arnir sextán talsins, en þar á
meðal eru fjórir flokkar ein-
göngu tileinkaðir íslenskum
myndum. Nánari útlistun á
flokkum og tilnefningum má
lesa á kvikmyndir.is.
Kosningin er komin af
stað á kvikmyndir.is og verð-
ur í gangi megnið af janúar.
- fsb
Ný íslensk kvikmyndaverðlaun
ÓRÓI MEÐ FLESTAR Kvikmynd Baldvins Z, Órói, er með flestar tilnefn-
ingar af íslensku myndunum til nýju kvikmyndaverðlaunanna. Alls
fékk myndin fimm tilnefningar.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Skarphéðinn Árnason
Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi,
lést 27. desember s.l. Jarðarförin fer fram frá
Akraneskirkju, föstudaginn 7. janúar n.k. kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vildu minnast hans er bent á Dvalarheimilið Höfða,
Akranesi.
Sigurbjörn Skarphéðinsson María Karlsdóttir
Sigrún Birna Skarphéðinsdóttir Pétur Örn Jónsson
Aðalheiður Skarphéðinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Edda Bragadóttir
hjúkrunarfræðingur,
Frostafold 6, Reykjavík,
sem lést að morgni annars dags jóla, verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 5. janúar kl.15.00.
Bjarni Hermann Sverrisson Erla Vignisdóttir
Lana Kolbrún Eddudóttir Jóhanna Björg Pálsdóttir
Ingibergur Bragi Ingibergsson
Magnús Grétar Ingibergsson
og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður minn,
Ólafur Matthíasson
Sléttuvegi 3, Reykjavík,
lést á Landspítalanum Fossvogi sunnudaginn
26. desember. Útför hans fer fram frá Garðakirkju
miðvikudaginn 5. janúar kl. 15.00.
Helga Káradóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Steinunn Egilsdóttir
sem lést mánudaginn 20. desember á Hrafnistu í
Reykjavík, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju mið-
vikudaginn 5. janúar kl. 13.00.
Eygló S. Stefánsdóttir Þórhallur Sveinsson
Hafþór R. Þórhallsson Sæunn Jóhannesdóttir
Hafsteinn G. Þórhallsson
Berglind Þórhallsdóttir Ragnar Guðjónsson
barnabörn og barnabarnabörn