Fréttablaðið - 10.01.2011, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 10.01.2011, Blaðsíða 12
12 10. janúar 2011 MÁNUDAGUR Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra ætlar að láta gera óháða rannsókn á Funamálinu. Hér er saga málsins, sem nú má kalla mengunarhneyksli, rakin. Um miðjan desember sendi Mjólk- ursamsalan frá sér fréttatilkynn- ingu þar sem fram kom að vinnslu mjólkur frá bænum Efri-Engi- dal í Skutulsfirði hefði verið hætt að kröfu Matvælastofnunar þar sem þrávirk aðskotaefni, og þar á meðal eitrið díoxín, hefði mælst yfir viðmiðunarmörkum í mjólk frá bænum. Það sem hér vekur athygli er að mælingin er gerð af fyrirtæki sem ber engin skylda til að gera rann- sókn eins og þessa. Forstjóri MS, Einar Sigurðsson, sagði hins vegar í viðtali við Fréttablaðið að MS hefði brugðist við eftir fyrirspurnir frá íbúum á svæðinu sem vildu vita hvort sorpbrennsla í Funa væri það mengandi að það mældist í afurðum frá bænum, sem stendur 1,5 kíló- metra frá sorpbrennslunni. Viðbrögð bæjaryfirvalda á Ísa- firði, þegar mælingin lá fyrir, voru að senda frá sér tilkynningu þess efnis að mælingin hefði ekki varpað skugga á heilnæmi Skutulsfjarðar en það var harmað að hætta þurfti mjólkurvinnslu á einum bæ. Steingrímur Jónsson, bóndi á Efri-Engidal, lýsti síðan áhyggjum sínum af heilsu sinni og framtíð vegna málsins í viðtali við Frétta- blaðið rétt fyrir áramótin. Hræðilega ljótt Umræða um mengun frá Funa er ekki ný af nálinni. Fréttamiðlar Vestfirðinga hafa undanfarin ár reglulega greint frá óþægindum íbúa vegna hennar. Fyrstu fréttirn- ar af mengunarmælingum birtust í Bæjarins besta árið 2004 og Morg- unblaðið fjallaði einnig um málið af og til frá 2003. Hins vegar var sá fréttaflutningur byggður á tak- mörkuðum upplýsingum þar sem forráðamenn fyrirtækisins og sveit- arfélagsins, og sérfræðingar sem leitað var til, gerðu ávallt lítið úr málinu. Hvimleið sjónmengun var viðkvæðið þá og allar götur til árs- loka 2010 en árið 2009 sýndu mæl- ingar að þungmálmar og ryk var langt yfir mörkum. Hér eru síðan ótalin öll skrif íbúa á Ísafirði. Lengi vel fór fremstur í flokki Pétur Tryggvi Hjálmarsson silfursmiður sem strax árið 2003 lýsti áhyggjum sínum af því að hugsanlega væri sorpbrennslan að dæla díoxíni og öðrum eiturefnum yfir svæðið. Ólína Þorvarðardóttir alþingismaður skrifaði einnig grein- ar þar sem áleitnum spurningum um hugsanlega mengunarhættu var komið á framfæri. Mengun Hvað mengunina frá sorpbrennsl- unni Funa varðar má til hægða- rauka skipta málinu í tvennt. Annars vegar nær það til þeirrar mengunar sem mæld var í gegnum árin sam- kvæmt kröfum í starfsleyfi Funa og varð til þess að Umhverfisstofnun (UST) tók að gera alvarlegar athuga- semdir við reksturinn árið 2009. Í bréfum UST kemur fram að í mælingum í útblæstri Funa voru þungmálmarnir nikkel, arsen, blý, króm, vanadíum og kopar langt fyrir mörkum. Ryk mældist þá einn- ig rúmlega fimm sinnum meira en starfsleyfi kvað á um. Það er þessi mengun sem frétta- miðlar greindu frá enda lágu mæl- ingagögn fyrir að einhverju leyti. Díoxín Hins vegar er það díoxín og önnur þrávirk aðskotaefni í útblæstri. Árið 2007 var gerð fyrsta og eina díox- ín-mælingin í Funa, sem og öðrum sorpbrennslum hér á landi, sam- kvæmt þeim kröfum sem gerðar voru til stöðvanna þegar Evróputil- skipun um sorpbrennslu var tekin upp hér árið 2003. Þessi eina mæl- ing var hluti af undanþágu sem stjórnvöld náðu fram að kröfu Sam- bands íslenskra sveitarfélaga. Allar aðrar mælingar frá Funa segja því ekkert um hvort eða hversu mikið af þrávirkum aðskotaefnum voru í útblæstri frá sorpbrennslunni fyrir árið 2007 og síðar. Hins vegar mæld- ist díoxín í þetta eina skipti 20 sinn- um meira en viðmiðunarmörk gera ráð fyrir í útblæstri. Afneitun Þegar Fréttablaðið greindi frá niðurstöðu díoxín-mælingarinnar árið 2007 í forsíðufrétt 3. janúar var því haldið fram að Ísfirðingum hefði ekki verið greint frá niðurstöðunni. Var sú fullyrðing byggð á ítarlegri leit í fjölmiðlum frá löngu tímabili og viðtölum við íbúa á Ísafirði. Halldór Halldórsson, fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, sagði í viðtali vegna fréttarinnar að niður- stöður mælinga hefðu verið kynnt- ar jafn óðum opinberlega og „engu hafi verið stungið undir stól“. Undir orð Halldórs tók Daníel Jakobsson, eftirmaður hans í bæjarstjórastóli, sem nú hefur beðið umbjóðendur sína afsökunar á því hvernig starf- semi Funa var háttað. Eins er viður- kennt að það „hefði átt að ræða nið- urstöður mælinga af meiri festu og kanna betur hvað í þeim fælist og kynna þær fyrir bæjarbúum“. Halldór hefur skrifað um málið á bloggsíðu sinni síðan fréttin fór í loftið. Þar minnir hann enn á að mengun frá Funa hafi verið umfjöll- unarefni fjölmiðla en gerir þó engan greinarmun á þeirri mengun sem skylt var að mæla samkvæmt starfs- leyfi og díoxín-mælingunni árið 2007. Hann segir að áhyggjur hafi lengi verið til staðar og þess megi finna stað í fundargerðum umhverf- isnefndar Ísafjarðarbæjar. Þetta er sjálfsagt rétt upp að vissu marki en ekki hvað varðar díoxín-mæling- una. Það hafa fulltrúar sem sátu í umhverfisnefnd á sínum tíma stað- fest, nú síðast á bæjarstjórnarfundi á Ísafirði á fimmtudaginn. Bæjarstjórnarfundur Eins og málið stendur núna virðist það fyrst og síðast snúast um stjórn- sýslu Ísafjarðarbæjar og eftirlitsað- ilana sem fara með mengunarmál í landinu. Hvort mengun frá Funa hefur haft skaðleg áhrif á umhverf- ið og heilsu fólksins á svæðinu verð- ur ekkert fullyrt um. Það kemur ekki í ljós fyrr en niðurstöður frek- ari rannsókna liggja fyrir. Á það við um næstu misseri og ár. Á bæjarstjórnarfundi á Ísafirði á fimmtudag var Funamálið til umræðu. Þar kom fram svo ekki verður um villst að bæjaryfirvöld vissu ekki af díoxín-mælingunni árið 2007 eða kosnir fulltrúar gerðu sér ekki grein fyrir því hvað mæli- gögnin voru að segja þeim. Þetta liggur fyrir: 16. október barst bænum bréf frá UST þar sem kemur fram að díoxín hafi mælst svo hátt sem raun ber vitni. Bréf- ið var ekki lagt fram í umhverfis- nefnd, bæjarráði eða bæjarstjórn. Formlegt áminningarbréf frá því í maí 2010, þar sem díoxín-mæling- in kemur aftur fyrir, var lagt fram þremur mánuðum eftir að það barst bæjaryfirvöldum. Þá vaknar spurn- ingin um það hvar upphaflegt bréf UST er niður komið þar sem greint var frá díoxín-mælingunni þegar niðurstöður hennar lágu fyrir. Það hlýtur að vera til. Þá er vert að halda því til haga að innan Ísafjarðarbæjar störfuðu tveir hópar að endurskoðun sorp- mála á þeim tíma sem stöðin meng- aði hvað mest. Mengunin virðist þó ekki hafa komið til umfjöllunar þar, eins og Kristín Hálfdánsdóttir bæj- arfulltrúi sagði á bæjarstjórnar- fundinum á fimmtudaginn, en hún leiddi annan hópinn. Áframhaldið Bæjarstjórn Ísafjarðar hefur beðist afsökunar á Funamálinu. Forstjóri UST segir að stofnunin hafi brugðist og er þeirrar skoðunar að það eigi líka við um umhverfisráðuneytið. Svandís Svavarsdóttir umhverfis- ráðherra ætlar að láta óháðan aðila kryfja Funamálið; allir sem höfðu aðkomu að því, frá sorpbrennslu til ráðuneytis, falla undir rannsóknina. Markmiðið er að leiða í ljós mögu- lega ábyrgð en fyrst og fremst að draga lærdóm af því sem hefur gerst og leita tækifæra til úrbóta. Úrbótavinnan er reyndar hafin innan Ísafjarðarbæjar og umhverf- isnefnd Alþingis mun næstu þrjár vikur skoða lagaumgjörð með tilliti til upplýsingaskyldu stjórnvalda og fleira. Á meðan bíður Sveinbjörn Jóns- son og eiginkona hans á Efri-Engidal eftir að Matvælastofnun fái niður- stöður díoxín-mælinga að utan. Það sama á við um aðra sem hafa lifað og starfað í nágrenni Funa, eins og starfsmenn sorpbrennslunnar sem bæjarfulltrúar Ísafjarðar vilja að læknar skoði sérstaklega. FRÉTTASKÝRING: Funamálið í hnotskurn Svavar Hávarðsson svavar@frettabladid.is Ertu DJ, mamma eða dýra- temjari? -er svarið Árlega fletta Íslendingar 100 milljón sinnum upp á Já.is og Símaskráin kemur út í 150 þúsund eintökum. Ef þú vilt breyta skráningu þinni hafðu þá samband við þjónustufulltrúa okkar í síma 522 3200, farðu inn á Já.is eða sendu tölvupóst á ja@ja.is. Skráningum í Símaskrána lýkur 31. janúar. E N N E M M / S ÍA / N M 4 4 2 5 8 Hið augljósa var vel falið„Slæðan myndast þar sem skil eru á milli loftmassa, þar sem kalt er fyrir neðan og heitt fyrir ofan og loftið mjög stöðugt, eins og gerist oft í Los Ang- eles. Þó er þarna ólíku saman að jafna, því ytra er um raunverulega mengun að ræða. [...]Af þessu er engin mengun, menn geta andað þessu að sér og liðið ágætlega á eftir. Þetta er bara sjónmengun, en ég held að ef mistrið myndaðist ekki af mannavöldum, þá þætti það afskaplega fallegt.“ JÓN REYNIR SIGURVINSSON AÐSTOÐARSKÓLAMEISTARI MÍ, Í BÆJARINS BESTA ÁRIÐ 2002. „Þó útblásturinn sé meinlaus þá er þetta hrikalega ljótt.” VÍÐIR ÓLAFSSON STÖÐVARSTJÓRI Í VIÐTALI VIÐ MBL. ÁRIÐ 2003 SAGT OG SKRIFAÐ UM FUNA SORPBRENNSLAN FUNI Í SKUTULSFIRÐI Rætt var og ritað um mengun frá Funa árum saman. Hins vegar á það ekki við um díoxín-mælinguna 2007, þvert á það sem haldið hefur verið fram. MYND/HALLDÓR SVEINBJÖRNSSON „Ég er alveg sannfærð um það að þessi hreinsibúnaður er ekki að skila sínu og þetta er hættulegt fyrir íbúa hérna á Ísafirði. Hér hafa verið hugmyndir um að byggja upp ferðaþjónustu, hér er mikið dýralíf, þetta er aðalsvæði hestamanna í grenndinni og umhverfið hérna í kring er mjög fallegt. Þessi starfsemi ógnar þeirri jákvæðu ímynd sem Vestfirðir hafa núna.“ MARGRÉT SVERRISDÓTTIR Í VIÐTALI VIÐ MBL. ÁRIÐ 2003. SAGT OG SKRIFAÐ UM FUNA

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.