Fréttablaðið - 17.02.2011, Blaðsíða 18
18 17. febrúar 2011 FIMMTUDAGUR
Mikil umræða hefur átt sér stað að undanförnu um niðurskurð
til tónlistarskóla í Reykjavík. Ekki get
ég sagt að ég sé sáttur við niðurskurð
til tónlistarkennslu barna og unglinga
frekar en niðurskurð til íþróttastarfs
fyrir sama aldurshóp enda er verið
að vinna mikilvægt starf með börn-
um og unglingum í báðum tilfellum.
Hitt er svo spurning hvort ekki sé
rétt að framhaldsnám í tónlist sé hjá
ríkinu eins og allt framhaldsnám er.
Mikilvægt er að niðurstaða komist í
það mál sem allra fyrst.
Ég verð samt að viðurkenna að ég
geri mér ekki alveg grein fyrir af
hverju forystumenn tónlistarskóla
og ákveðnir tónlistarmenn velja að
nota íþróttamál til viðmiðunar í bar-
áttunni fyrir sínum málstað gegn
niðurskurði á framlögum borgarinn-
ar til tónlistarskóla. Ég hefði miklu
frekar talið það styrk okkar allra
sem vinnum af krafti með börnum
og unglingum í þeirra frístundum ef
við snerum bökum saman og gerð-
um ráðamönnum, hvort sem er hjá
ríki eða sveitarfélögum, grein fyrir
því mikilvæga starfi sem við erum
að vinna á okkar vettvangi. Á vett-
vangi frítíma barna og unglinga.
Að undanförnu hafa sumir lista-
menn og einhverjir sem starfa í
menningarmálum aftur og aftur
ráðast til atlögu gegn íþróttastarfi,
allt til að upphefja sinn eigin máls-
stað. Það hefur alltaf talist vera
veikur málflutningur þegar ráðist
er á aðra í slíkri baráttu, það hvarf-
lar að manni að þá sé málstaðurinn
sem barist er fyrir veikur.
Ýmsu hefur verið haldið fram
varðandi íþróttir og starfsemi
íþróttahreyfingarinnar í þessum
málflutningi, í flestum tilfellum
hefur verið farið með rangt mál og
flutningsmenn varpað fram tölum
og fullyrðingum sem ekki hefur
verið haft fyrir að kanna hvort
séu réttar. Ég skal vera fyrstur til
að viðurkenna að alltaf megi gera
betur í starfinu en það hefur oftar
en ekki verið með ólíkindum að
hlusta á umræðuna sem virðist eiga
greiðan aðgang í fjölmiðla nánast
gagnrýnilaust.
Tónlistarskólar og íþróttir
Niðurskurður Reykjavíkurborgar
til tónlistarskóla hefur af einhverj-
um ástæðum verið borinn saman við
húsaleigu- og æfingastyrki borgar-
innar til íþróttafélaga. Nú síðast með
grein og viðtali við einn fremsta lista-
mann þjóðarinnar í Fréttablaðinu á
fimmtudag og föstudag. Í greininni
er sýnd tafla sem á að sýna hvern-
ig umræddir styrkir hafi aukist á
undanförnum 6 árum en framlög til
tónlistar skóla lækkað á sama tíma.
Iðkendur innan íþróttafélaganna
í Reykjavík eru um 36.000 og þar af
20.000 yngri en 18 ára. Nemendur
tónlistarskóla í Reykjavík eru 2.900
þar af 2.400 yngri en 18 ára. Skól-
arnir eru 18 í Reykjavík sem þýðir
að það eru að meðaltali rétt rúm-
lega 150 nemendur í hverjum skóla.
Íþróttafélög borgarinnar eru 70 en
styrkir til barna og unglingastarfs
fá 43 í 42 íþróttagreinum. Það þýðir
rúmlega 500 manns í hverju félagi
að meðaltali. Ekki hljóta þeir sem
náð hafa 18 ára aldri styrk frá borg-
inni í íþróttastarfi. Ljóst er að að
ekki er hægt að bera saman starf-
semina eins og gert er í greininni.
Staðreynd er að íþróttafélögin
sjálf hafa þurft að mæta 27% niður-
skurði á fjárveitingum á þrem-
ur árum. Aukning fjárveitinga
inn á æfinga- og húsaleiguliðinn
hjá Reykjavíkurborg/ÍTR er fyrst
og fremst tilkomin vegna nýrra
íþróttahúsa við skóla, vegna Egils-
hallar og Mest-hússins svokallaða
sem hýsir fimleika, karate og aðra
frístundastarfsemi. Þetta eru ekki
hækkanir vegna aukins reksturs
íþróttafélaga heldur auknir tímar
til æfinga í samræmi við fjölgun
ungs fólks í íþrótta- og tómstunda-
starfi. Ég vil líka taka fram að flest-
ar íþróttir krefjast þess að hægt sé
að æfa í þar til gerðum húsum, en
ekki er hægt að taka æfingar heima
hjá sér 4 sinnum í viku og mæta svo
á íþróttaæfingu 1-2 skipti í viku.
Foreldrar velta auðvitað fyrir sér
af hverju margfalt dýrara er fyrir
börn í tónlistarnám umfram íþrótta-
starf. Augljóst er að einkatímar sem
eru algengasta formið í tónlistar-
kennslu eru dýrari en hóptímar sem
alla jafna eru hjá íþróttafélögunum.
Auk þess eru þjálfarar hjá íþrótta-
félögunum með mun lakari laun en
kollegar þeirra í tónlistarskólunum
og stjórnun íþróttafélaga og rekst-
ur starfsins er að langmestu leyti
unnin í sjálfboðavinnu. Munurinn
liggur í það minnsta ekki í framlagi
borgarinnar þar sem hver einstakl-
ingur í tónlistarnámi kostar borgina
266.000 krónur á ári á meðan ein-
staklingur í íþróttum kostar Reykja-
víkurborg 80.000 krónur á ári.
Ríkisstyrkir
Listamaðurinn talar um ríkisstyrk
til íþróttafélaga og spyr af hverju
hann sé ekki nefndur. Fróðlegt er
að skoða hvaða styrki íþróttahreyf-
ingin fær frá ríkinu í samanburði
við menningu og listir. Menning
og listir fá um 7 milljarða króna
af fjárlögum. ÍSÍ fær tæplega 275
milljónir og tekjur af Lottóinu eru
270 milljónir í góðu ári. Mér finnst
munurinn skammarlegur, íþróttirn-
ar fá vel innan við 10% af framlagi
til menningar og lista. Í dag eru
400 einstaklingar á Íslandi á lista-
mannalaunum hjá íslenska ríkinu.
Það kostar um 440 milljónir á ári. Á
sama tíma þiggja 14 einstaklingar
mánaðarlega styrki úr afrekssjóði
ÍSÍ en framlag ríkisins í þann sjóð
eru 25 milljónir.
Við setningu Reykjavíkurleik-
anna sem haldnir voru nú í janúar
voru hópar úr mismunandi íþrótta-
greinum með stórkostlega sýningu
á íþrótt sinni og við það tilefni
sagði borgarstjóri: „Ég fæ gæsa-
húð, þið eruð íþróttalistamenn!“
Ef til vill sá hann hvernig þessir
tveir hópar sem eru að vinna öfl-
ugt og gott starf, geta og eiga að
vinna saman.
Ég held það sé kominn tími til
að slíðra sverðin og snúa bökum
saman í þeirri baráttu sem fram-
undan er til að fá aukna fjármuni
til starfs með börnum og ungling-
um í frítíma þeirra. Hvort sem er
frá ríki eða sveitarfélögum.
„Íþróttalistamenn“
Tónlistarnám
Ingvar
Sverrisson
formaður ÍBR
Munurinn liggur
… ekki í framlagi
borgarinnar þar sem hver
einstaklingur í tónlist-
arnámi kostar borgina
266.000 krónur á ári á
meðan einstaklingur í
íþróttum kostar Reykja-
víkurborg 80.000 krónur
á ári