Barnablaðið - 01.12.1938, Side 6
12
BARNABLAÐIÐ
heimilisfang eigandans, og það
reyndist að vera svo. Ásamt dá-
litlum seðlabunka og nokkrum
stórum peningum, sem Davíð
hafði sjaldan séð, fann hann þar
einnig nafnspjald, og af því gatan,
sem hinn ókunni maður bjó í, var
ekki langt frá búðinni sem Davíð
þurfti í, hljóp hann þangað strax
og hringdi dyrabjöllunni.
„Er það herra Henriksen?“
spurði Davíð, þegar aldraður mað-
ur opnaði hurðina. „Já, það er
hann“, svaraði maðurinn, „en hvað
vilt þú mér“.
„Ég fann peningapyngjuna yð-
ar“, svaraði Davíð og rétti hinum
ókunna manni hana um leið, því
næst kvaddi hann og flýtti sér
niður tröppurnar.
„Nei, bíddu svolítið, drengur
minn, ég ætla að sjá hvort allir
peningarnir eru í pyngjunni“,
hrópaði maðurinn uppi í dyrun-
um; Davíð kom strax til baka, og
nú varð hann að segja hvar hann
hefði fundið pyngjuna, og bíða
svo meðan eigandinn rannsakaði
innihald hennar.
„Það er gott, vinur minn, það
vantar ekkert“, sagði hann og
klappaði Davíð á herðarnar. Þú
skalt áreiðanlega fá laun fyrir
ráðvendni þína“. Og nú hafði
röddin allt annan hljóm, svo mild-
an og vingjarnlegan. Um leið
stakk hann tveimur tíu krónu
seðlum í lófa Davíðs. Það var
reglulega óvænt. Aldrei hafði Da-
víð dreymt um að eignast svo
stóra upphæð; það kom svo mikið
fát á hann, að hann átti erfitt með
að þakka fyrir sig.
Svo hljóp hann til kaupmanns-
ins, eins hart og fæturnir gátu
borið hann, keypti það sem móðir
hans hafði beðið hann, og fór svo
beina leið heim.
„Mamma“, hrópaði hann og
ljómaði af gleði, „mamma, sjáðu
bara, þessa tvo seðla hefir ókunn-
ur maður gefið mér, fyrir að ég
fann peningapyngjuna hans og
hljóp með hana heim til hans. Það
er fjórum sinnum það sem ég
hefði fengið, ef rósin mín hefði
hlotið verðlaunin. Nú getum við
áreiðanlega farið í skóginn í
sumar, er það ekki gaman!“
„Jú, það er það, drengur minn“,
svaraði frú Bruun og strauk blíð-
lega yfir hár Davíðs, „og þetta er
ekki tilviljun, heldur er Guð að
launa fyrir það, að þú gafst Elsu
rósina þína. Gelymdu því aldrei,
barnið mitt, að það er enginn, sem
launar eins ríkulega eins og Guð!“
(Lauslega þýtt úr >>Kirkeklokken«).
3ARNABLAÐIÐ kemur út annan hvorn
nánuð og verður 48—50 síður á ári. Ár-
gangurinn kostar kr. 0.75. í lausasölu
kostar eintakið 15 aura. Borga má með
ónotuðum íslenzkum frímerkjum. — Rit-
stjórar: séra Nils Ramselius og Sigmund
lacobsen. Afgreiðsla: Þingvallastræti 4.
Útgefandi: Bókadeild Filadelfíu Akureyri.