Barnablaðið - 01.12.1938, Side 8
14
BARNABLAÐIÐ
áfram upp eftir veginum þangað,
sem Flemming á heima, og tala
saman um að búa til böggul úr
gömlum, götóttum fötum og láta
hann fyrir utan dyrnar heima hjá
Georg —; og svo að skrifa utan á
hann: „Handa Georg — Frá Jesú“.
— Á veginum, rétt á eftir
drengjunum, gengur Björg Lar-
sen, hjúkrunarkona á spítalanum.
Hún hefir heyrt allt, sem dreng-
irnir hafa komið sér saman um að
gera. í hennar hjarta er talandi
rödd, sem segir: „Þú skalt kaupa
ný í'öt handa Georg“. — Þess
vegna hraðar hún sér í búð og
pantar fatnað handa 9 ára göml-
um dreng, allt úr beztu tegund og
með hæsta verði. Lætur hún búa
vandlega um fötin og skrifar utan
á böggulinn: „Til Georgs — Fi'á
Jesú“. — Að því búnu hefir hún
gætur á drengjunum. Þegar kvöld
er komið, sér hún þá koma þang-
að, sem Georg býr, — með stóran
böggul undir hendinni. Hún tek-
ur þá líka sinn pakka og laumast
á eftir þeim. — Strax og dreng-
irnir voru farnir aftur heimleiðis,
tekur hún böggulinn, sem þeir
höfðu látið fyrir utan dyrnar hjá
Georg, og lætur svo sinn pakka í
hans stað.
Snemma næsta morguns opnar
mamma Georgs hurðina og finnur
þá böggulinn, — og með gleði og
undrun kallar hún á Georg. Hann
kemur strax, — les utanásrkiftina
á bögglinum og hrópar upp: „Þökk
fyrir, kæri Jesú!“ — Það varð
mikil gleði á heimilinu þeirra,
þegar Georg litli tekur bréfið utan
af bögglinum og sér fallegu fötin,
sem reyndust alveg mátulega stór
handa honum. —
Þegar liðið er fram á dag, koma
þeir Eiríkur, Óli og Fiddi. Georg
opnar hurðina glaður, og býður
þeim að koma inn og sjá það, sem
„Jesús“ hefir gefið honum. —
Þégar drengirnir sjá Georg svona
glaðan, verða þeir hissa, og
sneyptir koma þeir inn í stofuna.
En þegar þeir sjá fallegu fötin
hans fara þeir að gráta, — og
Flemming kastar sér niður á gólf-
ið og segir: „Jesús — Jesús“. En
strax rís hann upp aftur og geng-
ur að Georg og segir, um leið og
hann faðmar hann að sér: „Nú
skil ég hvers vegna þú ert svo
duglegur í skólanum, — það er af
því að þú biður Jesú að hjálpa
þér, — þess vegna gengur þér svo
miklu betur en okkur. Nú vil ég
líka leita Jesú og læra að biðja og
að verða betri drengur. Kæri, góði
Georg! Fyrirgefðu mér allt“.-----
Svo komu þeir Óli og Eiríkur og
báðu um fyrirgefningu, — og allir
fjórir krupu og báðu Jesú að
hjálpa sér til þess að byrja nýtt líf
og verða góðir og vandaðir menn
alla æfi.
Kær kveðja frá
Mildu.