Barnablaðið - 01.12.1955, Blaðsíða 10
Enginn parf að óttast siður
en Guðs barna skarinn friður.
Fugl i laufi innsta eigi,
ekki stjarna á himinvegi.
Hvað var þetta? Tár rann niður
kinnina á Borg. Gott að enginn sá
það. Mamma var í eldhúsinu.
Borg kennari svaf ekki mikið
þessa jólanótt. Guð talaði til hans.
Vildi hann taka á sig ábvrgðina af
því að taka þessa tryggu barnatrú
frá drengnum sínum, sem Evert
átti?
Um morguninn stóð liann við
rúm drengjanna og ýtti við þeim.
„Á fætur nú. Við förum til jóla-
guÖsþjónustunnnar,“ sagði hann.
Drengirnir glaðvöknuðu og
stukku fram úr rúmunum.
Á þessum jólum urðu þáttaskipti
í lífi fjölskyldunnar. Það var að
þak'ka Guði, sem sendi þeixn litla
jólagestinn frá Skáni.
Til Ie§enda Itarnablað§in§.
Við þökkum hjartanlega sam-
starfið á þessu ári, sem nú er bráð-
um á enda runnið. Mjög margir
kaupendur hafa greitt árgjöld sín,
eitt eða fleiri, og eru því skuld-
lausir við blaðið. Þetta er ómetan-
legur styrkur fyrir útgáfu þess og
framtíð.
Okkur hefur dottið í hug að
hyrja á þeirri nýbreytni frá og með
næsta blaði, að hii'ta gítai'-grip og
þá einföldustu leiðbeiningar fyrir
byrjendur. Við ti'úum því, að það
geti oi’ðið einhverjum lesendum
blaðsins til ánægju og fróðleiks.
74 BARNABLAÐIÐ
Þá hefur komið til orða, að koma
til móts við óskir margra lesenda,
og byrja framhaldssögu í næsta
blaði. Verði það svo, að það nái al-
mennum vinsældum lesendanna,
gæti orðið áframhald á því.
Það er gott að kaupendur láti í
Ijós álit sitt á efni blaðsins, svo að
við fáum að heyra, hvað þeim
finnst. En mest áríðandi er að við
sameinum okkur í bæn til Guðs
fyrir blaðinu og efni þess.
Með beztu kveðjum.
Ritstj.