Barnablaðið - 01.12.1968, Blaðsíða 9
drukknaði á svipstundu, engum var hægt að
bjarga. Enn var þess getið á forsíðu nefnds
heimsblaðs, að háttsettur embættismaður í
einu sambandsríkjanna í Ameríku hefði orðið
bráðkvaddur þá um nóttina. „Hann hafði
ekki kennt nokkurs lasleika áður,“ stóð í
tilkynningunni um fráfall hans. Meira að
segja hafði læknir hans athugað heilsufar
hans rétt áður, og sagt að hann hefði beztu
heilsu. Kvöldið áður hafði hann verið í veizlu,
sem ríkisstjórnin hélt vissum gestum, og eng-
inn hafði séð annað, en að lrann hefði beztu
heilsu.
Það er hið venjulega daglega líf mannsins,
sem Salómon lýsir með þessum orðum: ,,Eng-
inn maður ræður yfir vindinum, svo að hann
geti stöðvað vindinn, og enerinn maður hefur
vald yfir dauðadeginum" (Préd. 8, 8). „Það
liggur fvrir mönnunum eitt sinn að devja, en
eftir það er dómurinn (Hebr. 9,27). Þannig
farast höfundi Hebreabréfsins orð. Allir viður-
kenna raunveruleika dauðans, en samt kemur
hann óvænt yfir flestalla menn.
Hver sku'u viðbrögð mannsins vera gagn-
vart því, að dauðinn kemur svo óvænt til
fólks?
„Búðu konu þína undir það, að hún geti
orðið ekkja,“ var ráðlegging, sem þekkt blað
vildi gefa öllum kvæntum mönnum.
Tryggðu þig nógu hátt hiá einhverju líf-
tryggingarfélagi,“ segja áróðursmenn slíkra
félaga. En viðbúnaður af þeirri tegund nær
ekki nógu langt. Þessi leið getur tryggt efna-
lega afkomu þeirra, sem rnissa ástvini sína,
en það tryggir ekki þann, sem dauðinn drep-
ur á dvr hjá, fyrir hinu óvænta.
Dauðinn er ekki sorgarefni fvrir þann, sem
er undirbúinn að deyja. Spámaðurinn Amos
segir: „Ver viðbúinn að mæta Guði þínum.“
En hvernig getur maðurinn búið sig undir
það að mæta dauðanum? Þeim sem trúir á
Jesúm Krist, er burtför héðan af heimi í
sannleika trygging upp á það, að vera með
Guði hinum megin tialdsins. Páll staðhæfir,
að það sé miklu, miklu betra en allt það
sem við getum notið hér á jörðu. Ekki und-
arlegt þó að T. De Witt Talmadge segi það
sem hann segir í þessum orðum: „Hendi þig
það slys á götunni, að þú misstir lífið, mundi
það ekki skaða þig. Þú mundir standa upp í
sömu andrá. Þú mundir standa á liinni himn-
esku götu. Þú mundir vera meðal hins himn-
eska skara, sem um eilífð þjónar Guði og er
eilíflega hamingjusamur.“
Hvenær þarf maður að undirbúa sig?
í athyglisverðu kvæði, er komið hefur út
eftir Robert Browning segir frá manni, er
fyrir hönd ættingja síns leitar leiðbeiningar í
and’eeum efnum hjá rabbí nokkrum.
Rabbíinn svaraði: „Segðu honum að hann
skuli iðrast á dánarbeðnum."
„En hvernig getur maður vitað, hvenær
dauðastundin kemur?" spurði maðurinn
furðu lostinn.
„Segðu honum þá, að hann skuli iðrast
strax í dag,“ þrumaði rabbíinn.
Postulinn Páll segir nákvæmlega það sama:
„Nú er híálpræðisdagur." Þetta stóra, óvænta
se-m dauðinn er, getur komið á hverri stund
sem er. Fyrir þann, sem ekki er viðbúinn
þýðir dauðinn eilífa óeæfu. En hinn trúaði,
sem er undirbúinn, hann er reiðubúinn til
þess að gansra til Paradísar, vegna þess að
hann er reiðubúinn að deyja.
Tekið úr Ekko.
Eru þetta allir sveinarnir?
Þá svaraði tsaí Samúel og sagðl: ,,Enn er hinn yngsti
eftir, og sjá, hann gætir sauða. Og Samúei sagði við Isai:
Send eftir honum og lát sækja hann, þvi að vér setjumst
ekki til borðs fyrr en hann er kominn hingað." — Nú
sendi pabbi eftir litia Davíð sínum, og begar hann var
kominn, sá Samúel undir eins, að hann var ..fagureygur
og vel vaxinn." Og nú sagðl Drottinn við Samúel, að
nú skyldi hann flýta sér að standa upp og smyrja unga
sveininn, því að hann ætti að verða konungur yfir öllum
tsrael. Þá var nú Samúel ekki lengl á sér. Hann spratt
upp úr sæti sinu og smurði hann til konungs þarna mitt
á meðal bræðra hans. ,,Og Andi Drottins kom yfir Davlð
upp frá þessum degi."
Hafið þlð heyrt fallegrl sögu af iitlum dreng?
9