Barnablaðið - 01.12.1981, Side 2
2
Leit
Vítringarma
Matt. 2. Kapítuli, vers 1—2:
,,En erJesús var fæddur íBetlehem ÍJúdeu, á
dögum Heródesar konungs, sjá þá komu
vitringar frá Austurlöndum til Jerúsalem og
sögðu: Hvar er hinn nýfæddi Gyðingakonung-
ur?“ Það sem vekur athygli við þessa leit
vitringanna var leit að konungi, ekki prinsi,
heldur konungi. Jesús er Konungur Konunga og
Drottinn Drottna. Hann var aldrei prins. Kon-
ungstign Hans er frá eitífð. Það var því eftir
mannlegum skilningi og eðlilegum vísdómi
mahna, að leita Hans í konungshöllinni. Virð-
ingar og trausts hafa þessir vitringar notið, því
spurning þeirra og leit vakti felmt, ekki aðeins í
konungshöllinni, heldur meðal allra borgarbúa.
Sagan breiddist út, með þessa aðkomnu menn
og föruneyti þeirra lengst úr austri. Það er eftir-
tektarvert, að jafnvel í sjálfri konungshöllinni og
hjá konungi sjáifum, þá gripu vitringarnir i tómt.
Öllum þeim er leita Jesú í dag fer líkt að og með
vitringana. Jesús finnst ekki eftir vísdómi
manna, ekki heldur éftir eðlilegum likum, ekki
heldur eftir því sem sjálfsagt getur talist.
Heródes vissi ekkert um hann. Vissi þó að eng-
inn konungur var nýfæddur í höllum hans. Hvað
skyldi nú til ráða taka, svo finna mætti Konung-
inn nýfædda. ,,Stjarna Hans sást austur frá!“
Það sem nútíma menn vita um Heródes kon-
ung, er flest annað en trú, eða lestur Ritning-
anna. Sjálfsagt voru þær til i höll hans, með
besta frágangi og úrvals sklnnum. Hann vissi
ekkertum innihaldþeirra. Kallaðihannþvísaman
presta og fræðimenn og spurði þá hvar Kristur
ætti að fæðast. Þeir voru köllun sinni trúir og
starfi sínu vaxnir. Svar þeirra var hiklaust: ,,í
Betlehem í Júdeu." Svo er vitnað til Mika spá-
manns, 5. kapitula, 1.—2. vers. ,,0g þú Betle-
hem Efrata, þótt þú sért einna minnst af hér-
aðsborgunum í Júda. þá skal þó frá þér koma sá
er vera skal, Drottnarl í ísrael og ætterni Hans
vera frá umliðinni öld, frá fortíðar dögum."
Skyldi nokkuð hafa verið marktækt með spá-
dóma Ritninganna? Stóðst spádómurinn?
Vitringarnir settust ekki niður til umræðna um
áreiðanleika Orðsins. Heldur trúðu þeir skil-
yrðislaust og fóru eftir ábendingu Ritninganna til
Betlehem. Fundu Jesú og Maríu móður Hans.
Færðu hinum nýfædda konungi lotningu sína og
gull og reykelsi og myrru. Þeir glöddust harla
mjög. Lelt þeirra bar árangur. Júpiter konungs-
stjarnan og Satúrnus stjarna Gyðinga, voru í
samruna og fóru þessir himinhnettir og plánetur
á þeirri braut, sem samhljóða var Ritningunum í
að benda á Jesú og finna Hann.
Það er eins í dag, fyrir öll börn og alla leitandi
menn, sem þrá og vilja finna Konung Konung-
anna og Dróttinn Drottnanna. Ritningarnar eru
eina örugga leiðin. Sá er leitar til umsagna
þeirra, mun ekki gríþa ítómt. Heldur finna Jesús,
fyllingu og hamingju lífsins. Gleðileg jól!
Ritstjórinn