Barnablaðið - 01.02.1993, Blaðsíða 9
BARNABLAÐIÐ 9
Palli og Tobbi fyrirgefa
Palli er reiður út í Tobba. Og Tobbi er
reiður út í Palla.
Palli krotar stórt rautt strik yfir myndina
hans Tobba. Og Tobbi krassar með
bláum lit á myndina hans Palla.
Þeir vita báðir að þeir eru að gera rangt,
maður á ekki að skemma fyrir öðrum
En um hvað eru þeir eiginlega að rífast?
Af hverju eru þeir ósammála?
Hugsið um þetta:
1) Stundum gerum við eitthvað rangt,
jafnvel þótt við vitum að það er rangt.
Af hverju gerum við það?
2) Af hverju ætli Palli og Tobbi hafi
verið ósammála?
3) Hvernig geta þeir leyst vandamálið?
Vandinn að fyrirgefa
Það getur verið erfitt að fyrirgefa einhverjum sem hefur
gert á hluta manns. Stundum virðist það vera erfitt að
segja: Þetta er allt í lagi, ég fyrirgef þér. En einn er sá
sem getur hjálpað okkur og kennt að fyrirgefa öðrum.
Það er Jesús! Hann fyrirgaf meira að segja þeim sem
krossfestu hann! Þegar maður hugsar um það, er ef til
vill auðveldara að fyrirgefa þeim sem hafa gert eitthvað
smávegis á okkar hlut.