19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1955, Qupperneq 26

19. júní - 19.06.1955, Qupperneq 26
eins og liann einn væri framfærandi barnsins. Þetta er mjiig ranglátt gagnvart mæðrum og fráskildum konum, þar sem enginn frádráttur er veittur fyrir framlag þeirra við uppeldi barnanna. Það er því greinilegt, að skattalögin vilja alls ekki viður- kenna, að eiginkona og móðir sé framjœrandi, sem er jafn eiginmanni og föður um réttindi og skyld- ur. Heimilisstörfin eru framlag konunnar, sem vinnur iieima, og hjónabandslögin viðurkenna að svo sé. Heimiiisstörfin eru oft miklu meiri en ein manneskja getur innt af hendi á hcefilegum vinnu- degi, þannig að fullnægt verði menningarkröfum um hreinlæti, matargerð og uppeldi barna. (Ath. 24. gr. mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóð- anna: „Hverjum manni ber réttur til hvíldar og tómstunda, og telst þar til hœfileg takmörkun vinnutima og reglubundið orlof að óskertum laun- um“). Skattalögin viðurkenna jafnvel ekki nauð- synina fyrir hjálp móðurinni til handa meðan hún gengur með og elur barn, hversu mörg og hversu ung börn sem fyrir eru á heimilinu. Slík hjálp er álitin munaður fyrir móðurina. Jafnvel fæðingar- styrkurinn er skattskyldur.3 1 23. gr. mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna segir: ,,Hver maður á rétt á atvinnu að frjálsu vali . . .“, en skattalögin gera ógiftum kon- um nær ókleift að höndla þann rétt. Af því sem þegar hefur verið sagt, ætti það að vera auðskilið mál, að gift kona hefur raunverulaga alls ekki frjálst stöðuval. Þegar skattalögunum verður breytt, má ekki gleyma þessum atriðum, sem eru þýðingarmikil frá sjónarmiði kvenna: 1. Eiginmaður og eiginkona hafa í aðalatriðum sama rétt til eigna og tekna. 2. Eiginmaður og eiginkona (faðir og móðir) eru bæði framfærendur barna sinna. 3. Störf eiginkonunnar (móðurinnar), sem ekki hefur „tómstundir" til þess að yfirgefa heim- ilið,4 eru að minnsta kosti eins mikils virði og ef einhver annar vinnur þau, hvort sem er innan heimilisveggjanna eða utan þeirra. — Umsjá stórrar fjölskyldu fylgir meiri vinna en ein manneskja getur annað. Þess vegna verður að gera þessar breytingar: I. Tekjur og eignir hjóna verði skattlagðar sem tveggja jafnrétthárra aðila dn tillits til fram- lags hvors lijóna um sig, í samræmi við skipti við dauðsfall eða skilnað. 2. Frádrætti vegna barna verði skipt milli for- eldra, ef þeir eru ekki samvistum, í samræmi við rétt þeirra og skyldur sem framfærenda. 3. Starf konunnar, sem vinnur lieima — framlag hennar við framfærslu fjölskyldunnar, — verði rnetið með tilliti til stærðar fjölskyld- unnar, aldurs barnanna o. s. frv. og upphæð- in síðan, á sama hátt og innvinningur konu, sem vinnur utan heimilis, lögð við tekjur mannsins, en uþþhæðinni skiþt i tvo jafna hluta til skatlagningar. Frádráttur vegna heimilishjálpar verði ákveðinn og flokkaður í samræmi við matið á heimilisstörfunum, svo og við þann tíma, sem kona vinnur utan heimilis. Þegar viðurkennt hefur verið, að störfin, sem unnin eru heima, séu eins mikils virði og ef þau eru unnin utan heimilis, ætti það' að leiða af sjálfu sér, að persónufrádrátturinn verði ákveðinn í nokkru samræmi við raun- verulegan lágmarkskostnað menningarlífs. 4. Nýr skattstigi verði gerður í samræmi við hið nýja kerfi. Lausn skattavandamálsins á grundvelli fullkom- ins jafnréttis milli hjóna verður einn stærsti áfang- inn að takmarki okkar: Sömu réttindi — sömu skyldur. Tilvitnanir skv. tilvitnunarmerkjum i greininni: 1) Eftir breytingunum, sem gerðar voru á skattalögunum síðan greinin var skrifuð, cru nú tveir skattstigar, annar fyrir ein- staklinga, en hinn fyrir hjón, en eftir sem áður eru skattar lægri á einstaklingum en hjónum, og það enda þótt konan vinni ekki utan heimilis. — Dæmi: Hjón með þrjú börn — nettótekjur kr. 50.000,00 — skattur kr. 785,00. — Hjónaleysi með þrjú börn, sömu tekjur, — skatlur kr. 660,00 (50.00 -j- 610,00). 2) í Danmörku er læknum, tannlæknum, dýralæknum og ljós- mæðrum, sem hafa starfsemi s,na heima, veittur frádráttur fyrir helmingi vinnukostnaðar. 3) Starfsmaður skattstofunnar í Reykjavík sagði mér, eftir að greinin birtist, að fæðingarslyrkurinn væri ekki reiknaður til skatts, en ég vakti athygli hans á því, að á framtalseyðublaðinu hefði það ekki verið sjáanlegt, að fæðingarstyrkurinn væri frek- ar en aðrar bætur frá Tryggingarstofnun ríkisins undanþeginn framtalsskyldu eða skattlagningu. 4) Rétt er að gefa skýringu á þessu orðalagi, enda er í grein- inni sjálfri vísað í marzblað International Women’s News 1951, þar sem sagt er frá kröfu belgískra kvenna um sérsköttun til handa þeim, er vinna utan heimilis. Fjármálaráðherrann sagði í svarbréfi sínu, að slík sérsköttun væri ósanngjörn gagnvart þeim konum, sem ekki hafa „tómstundir" til að yfirgefa heimili sín. Ég vildi nefnilega vekja athygli lesenda I. W. N. á því, að þessi skoðun ráðherrans á við rök að styðjast, þótt það hins veg- ar sé ljóst, að hann heldur, eins og margur annar, að aðeins þær konur vinni utan lieimilis, sem „tómstundir" hafa til þess. 19. JÚNÍ 12
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.