19. júní - 19.06.1955, Page 52
E L S A E. GUfiJÓNSSON:
GERVIEFNI - GÆÐAMERKING
Það er vissulega ekki lítið ijárliagslegt atriði fyr-
ir heimilin, að farið sé vel með fötin og að kaupum
á fatnaði sé hagað á sem hagkvæmastan hátt. Dug-
leg og hagsýn húsmóðir getur sparað stórfé á því
einu að halda fatnaði heimilisfólksins vel við og
saumasjálf allar einfaldar flíkur. En til þess aðliús-
móðir geti gert góð kaup á vefnaðarvöru, verður
hún að þekkja vöruna það vel, að hún geti verið
örugg um gæði hennar, Jrví að ekki er nærri alltaf
liægt að treysta þeim upplýsingum, sem afgreiðslu-
fólk verzlana lætur viðskiptavinum í té, og um ís-
lenzka gæðamerkingu á vefnaðarvöru og fatnaði er
ekki að ræða.
Hér áður fyrr var tiltölulega auðvelt að átta sig
á vefnaðarvöru, Jrví að þá voru gerðirnar fáar og
hráefnin, sem vita þurfti deili á, aðallega fjögur:
bómull, hör, ull ogsilki. En nú er öldin önnur. Nú
úir og grúir af alls konar dúkum, gerðirnar eru
nær óteljandi, og tala algengra vefjarefna hefur að
minnsta kosti þrefaldazt, síðan skriður komst á
framleiðslu gervivefjarefna. Svo er vefjarefnum nti
iðulega blandað saman tveim eða fleirum í sama
dúknum, og auk Jress er stöðugt veriðað finna upp
nýjar og nýjar frágangsaðferðir á efnum, til Jress
að auka notagildi þeirra. Af Jressu öllu sézt Jrví, að
ti 1 mikils er ætlazt af húsmóður að kunna skil á
vefnaðarvöru eins og nú er háttað.
Sum hinna nýju gervivefjarefna eru nú þegar
vel kunn liér á landi, eins og t. d. rayon, acetat og
nylon. Önnur munu minna þekkt, þóttþau hafi nú
í nokkur ár flutzt til landsins í einliverri mynd, að-
allega Jró í tilbúnum fatnaði eða sem blendings-
efni í ýmis konar álnavöru. Skal hér vikið nokkuð
að þessum nýjustu gervivefjarefnum, eiginleikum
þeirra og notkun, en fyrst drepið á nokkur aðal
atriði viðvíkjandi gervivefjarefnum almennt.
Gervivefjaref n i.
Orðið gervivefjarefni er látið ná yfir öll tilbúin
vefjarefni til aðgreiningar frá hinum náttúrlegu.
38
Silki, hör, bómull og ull teljast náttúrleg vefjar-
efni, en t. d. rayon — sem enn er oft ranglega nefnt
gervisilki — og nylon eru gervivefjarefni. Fram-
leiðslu gervivefjarefna er í höfuðdráttum hagað
þannig, að búin er til upplausn af efnasamband-
inu, sem nota á í vefjarefnið. Nefnist hún spuna-
upplausn. Henni er Jrrýst gegnunr áhald alsett ör-
smáum götum, og myndast þá fíngerðir þræðir. Má
h'kja þessari aðferð við aðferð Jrá, sem silkilirfan
notar til þess að framleiða silkiþráð, enda hug-
myndin upprunalega frá henni komin.
Gerviþræði er liægt að framleiða eins langa crg
vill, og taknrarkast lengdin aðeins af spólunum,
senr þeir eru undnir á. Þeir eru því stundum nefnd-
Rayon
spuna-
u pplausn
cr scig-
fljótandi,
ápekk
sykur-
kvoðu.
19. J Ú N í