19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1958, Qupperneq 22

19. júní - 19.06.1958, Qupperneq 22
Annað ráð var það að reisa svonefnd „kollektiv- hús“, sem mætti e. t. v. nefna samneyzluhús á ís- lenzku. Þar var séð um alla matargerð í central- eldhúsi og maturinn annaðhvort sendur í lyftum til leigjenda eða framreiddur í sameiginlegum mat- sal. Á dagheimili voru börnin örugg, meðan móð- irin var á sínum vinnustað utan heimilis. Óhrein- um fatnaði var hægt að fleygja í pokum eftir sér- stökum leiðslum ofan í þvottamiðstöð, sem skilaði þvottinum hreinum og stroknum. Smíðastofa og leikfimissalur var handa hálfstálpuðum börnum. Hjálparstúlkur voru ráðnar til að annast tiltekt í íbúðunum, ef þess var óskað. — Er að furða, þótt okkur fyndist sem við hefðum himin höndum tek- ið að fá íbúð í svona húsi fyrir einum 14 órum. Og þó fylgdu þessu gallar, — húsaleigan var svo há, að oft neyddist húsmóðirin til að vinna fullan vinnutíma utan heimilis, — sem mér finnst var- hugavert, þar sem börn eru á heimili, einkum meðan þau eru lítil, en það er viðkvæmt vanda- mál, sem frú Alva Myrdal tekur til athugunar í bók sinni „Kvinnan tvá áldrar11. Samneyzluhúsunum fylgir líka sá galli, að íbúð- unum er þrengt saman utan um aðalkjarnann, — samneyzlukerfið, og gerir það húsin að hóum skýja- kljúfum. Fátt á þó eins illa saman og lítil börn og „skýja- glópar11 þessir, með óendanlegum stigum eða leið- inlegri lyftu, gluggum og svölum í svimhæð, sem eru hættulegar freistingar óvitum, en martröð for- eldranna. Yfirleitt hefur mikið verið rætt undanfarið um kosti og galla á þessum gifurlega háu húsum, — bæði í blöðum og á byggingarmálaráðstefnum. Talið er sjálfsagt, að miðbik bæjanna með búð- um og skrifstofum sé háhúsakerfi. Hitt er vafa- atriði, hvort ibúðarhús fyrir bamafjölskyldur eigi að vera af sama tæi. Margir álíta, að með því að byggja hús, allt að fjörutíu hæða, sparist svo bygg- ingargrundvöllurinn, að svæðið kringum húsið sé hægt að nota sem lystigarð, íþróttasvæði eða leik- völl og yfirleitt una þar í sveitarsælu í nýtízku íbúð, þrunginni veraldarinnar tæknikynstrum. Ekki amalegt, finnst okkur, sérstaklega meðan við erum tvítug, einhleyp, gædd óbilandi tauga- styrk og áhuga á fallhlifarflugi. En séum við af eldra tæi og af veika kyninu og með hjarta og heimili fullt af ungviði, — læðist þó ekki annar draumur upp í hugann? Þar tifa barnsfætur út og inn af grasbletti, beint inn á stofugólf. Rós ilmar þar við vegg, kisuhnoðri strýkur sér upp að dyrastaf, og afi og amma kunna við sig nálægt „grundinni vallar11 í stað þess að hanga í lokuðum lyftum á milli heims og heljar. Húsateiknari einn í Gautaborg stakk upp á því nýlega, að háa húsið væri lagt gætilega á hliðina, — hver íbúð fyrir sig gróðursett í frjórri mold, með mátulegu millibili, svo að sálin fengi þar svig- rúm í ofurlitlum urtagarði. Það yrði í framkvæmdinni ekki miklu dýrara en að reisa þessi háu hús með öllum sínum stiga- gangi og lyftum, dýrari veggjasmíði og erfiðari byggingaraðferð. Aftur á móti yrði þá lóðin stærri og vegalengdir meiri, — en til hvers eru allir þessir bílar? Hingað til hefur þó engum tekizt að byggja einstaklingshús jafnódýrt og samsvarandi íbúð í leiguhúsi, og hefur þó margt verið reynt, — svo sem verksmiðjuframleiðsla á ýmsum hlutum hússins eða ný byggingarefni tekin í notkun eins og t. d. „plastið11. Þó held ég, að það, sem mest hafi hindrað bygg- ingu smáíbúða, séu lánaskilyrðin. Reyndar hefur verið hægt að fá allt að 90% af byggingarkostnaði í lánum fyrir einstaklinga, ef þeir byggja samkv. kröfum frá Bostadsstyrelsen, en þeir verða samt að leggja fram að minnsta kosti 10% úr eigin vasa, og bera alla ábyrgð, fyrirhöfn og áhyggjur út af lánatöku og afborgunum. Auðveldara er að fá íbúð í leiguhúsi, þó þarf aðeins að borga mánaðarleigu, sem getur þó orðið strembin, þegar leiga fyrir hvern fermetra er 45 1 9. JÚNf 20
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.