19. júní - 19.06.1966, Blaðsíða 20
Við það að byggð eru æ fleiri háhús og sam-
býlishús i öllum borgum, skapast ávallt vaxandi
þörf fyrir barnagæzlu.
Mikill meiri hluti íbúa allra háhúsa í flestum
borgum Evrópu hafa reynzt vera ungt barnafólk.
Þar af leiðir, að mæðurnar verða að fá einhverja
aðstoð við gæzlu barnanna.
Allt umhverfið, gangstéttir, raðir lokkandi
glugga verzlana, bíla- og hjólaumferð götunnar,
hraði á fólki og ökutækjum, allt orkar á börnin
eins og svimandi snarsnúningur. Þau riða á veg-
brúninni, skjótast fyrir ökutækin og hverfa í
mannþröngina í verzlunum og á gangstéttunum.
Það er því brennandi áhugamál mæðranna að
koma börnunum í örugga gæzlu dag hvern. Gæziu-
vellir eru ókjósanlegasta lausnin og eini mögu-
leikinn til þess að koma öllum ungum börnum
af götunni. Þarfir yngstu barnanna er einfalt að
leysa, þeim nægir að geta ýtt og togað, mokað,
Skýringar:
1. Gamalt stýrishús,
skýli fyrir vörð
(gamall sjómaður).
2. Jarðstrengjapjólur. ^
3. Kassar og kofaefm.
4. Hlaðin sundvarða.
5. Gamlir símastaurar.
6. Netaflækjur.
7. Hjallkofi í smíðum.
8. Bryggja af kambin-
um.
9. Skip 4—6—8 tonna
(afskrifaðir bátar).
10. Opinn bátur.
11. Viti byggður á
„spólu“.
12. Bjarghringir.
13. „Fleki“ (úr spólu).
14. Hamar, naglar og
sagir séu í vörzlu
„sjómanns“.
15. Grjótgarður í
hleðslu.
16. Salemi.