19. júní - 19.06.1969, Page 36
Formannaskipti í Kvenréttindafélagi íslands
Lára Sigurbjörnsdóttir var kosin formaður
K.R.F.l. 1964. Eftir nýjum félagslögum á kosning
formanns að fara fram eftir en ekki fyrir lands-
fund eða fulltrúaráðsfund, og var því á aðalfundi
formannskjör. Lára Sigurbjörnsdóttir baðst þá ein-
dregið undan kosningu. Hún var búin að vera for-
maður í 5 ár, og áður varaformaður í 11 ár og
ritari í 4 ár, eðta samtals 20 ár í stjórn félagsins.
A siðasta ári — 1968 — reyndi hvað mest á stjórn-
arhæfileika og dugnað Láru, en þá var að loknum
landsssfundi félagsins haldinn fundur norrænna
kvenréttindafélaga á Þingvöllum. Á fundinum
og eftir hann hlaut Lára verðskuldað lof hinna er-
lendu fulltrúa fyrir formanns- og fararstjórnar-
hæfileika. Lára hefur einnig starfað í ýmsum öðr-
um félagsskap af miklum áhuga. 19. júní þakkar
Láru Sigurbjörnsdóttur áhuga hennar og gott sam-
starf við útbreiðslu og dreifingu blaðsins.
Sigurveig Guðmundsdótlir, kennari og húsmóðir
í Hafnarfirði, var kosin formaður Kvenréttinda-
félags fslands á aðalfundi 12. marz 1969. Hún var
í stjórn félagsins 1964 til 1968. Á landsfundi 1964
var hún kosin i útgáfustjórn 19. júní, og á lands-
fundi 1968 í útvarpssnefnd, en var áður varamað-
ur. 19. júní óskar Sigurveigu Guðmundsdóttur allra
heilla í hinu umfangsmikla starfi hennar sem for-
inaður K.R.F.Í. og væntir alls góðs í samvinnu við
hana á ókomnum árum.
34
1 9. JÚNÍ