19. júní - 19.06.1970, Síða 27
VIRKUR ÁHUGI UNGRA . . .
Þær ræða uppbyggingu fjölskyldu við unga menn og
eru þeim alveg sammála. Gerðar eru tilraunir með nýtl
form á fjölskyldu. Hinn venjulegi fjölskyldukjarni er
enn ríkjandi, en byggt er þó á sanngjarnari skiptingu
ábyrgðar og byrða en fyrr, það er jafnrétti karls og
konu. Markviss menntunarleil og gagnrýni ungmenna á
venjubundin þjóðfélags- og fjölskylduform munu einnig
hafa áhrif á álil þeirra á samtakamætli.
Þetla kemur fram á þann hátt að ungl fólk tekur í
auknum mæli þátt í starfinu og má það heita jákvætt.
Það flytur með sér nýja strauma í samtökin og virk
áhugamál þeirra hafa áhrif á félögin og stjórnendur
þeirra. Með hjálp þessara ungu og framsæknu hjúkrun-
arkvenna niun verða lekin til athugunar sú uppbygging
cg þær reglur sem samtökin búa við í dag.
Það mun hafa úrslitaþýðingu fyrir framtíðarstöðu
cg tilveru samtakanna að okkur auðnist að skapa mark-
mið cem miðast við styrk einingarinnar en feli einnig í
sér eitthvað það, sem bæði yngri cg eldri geti sameinazl
um og verið virkir þútltakendur í að hrinda í fram-
kvæmd.
Það er eins mikils virði að ekkur auðnist að skapa
þær aðstæður að byggt sé á lýðræðislegum grundvallar-
hugsjónum, þannig að allir starfshópar í fagi okkar,
hjúkruninni, fái að beita sanngjörnum áhrifum cg með-
ákvörðunarrétti.
Hjúkrun er, að mér finnsl, fag hinna þúsund mögu-
leika. Ef samtökin geta á komandi árum skapað sam-
fellda heild og beitt sér að vandamálum líðandi slund-
ar, geta þau einnig átt þúsund möguleika á að ná til-
gangi sínum og geta haft áhrif á vinnuskilyrði hjúkrun-
arkvenna og þjóðfélagsaðstæður almennt.
Sú skylda hvílir því ú hverri einstakri hjúkrunarkonu
að leggja sig fram og sýna áhuga í starfinu. Samtökin
verða eins sterk og hver einstakur meðlimur þeirra
gerir þau.
SKIPULAG OG UMHYGGJA
Hvað er gert til að auðvelda þeim hjúkrunarkonum
að vinna, sern haja heimili?
A síðastliðnu vori tók til starfa barnaheimili Borgar-
spítalans, og þar er rúm fyrir 24 börn. Hefur það verið
ómetanleg hjálp fyrir stofnunina. Einnig er nokkuð um.
að hjúkrunarkonur séu í hálfu starfi.
Er nœgilegt jramhoð á hjúkrunarkonum?
Þó að á Borgarsptíalanum starfi nú um 90 hjúkrunar-
Rannveig Löve:
Speglun
Eg er sápukúlan
þú ert töjramaðurinn.
Þú velur stað í sólskininu
og birtan fellur
á gljáandi jlöl kúlunnar,
í hverjulli dýrð
speglar hún umhverjið
annað ekki —
konur, eru sjaldan allar stöður skipaðar. Það hefur ver-
ið ráðizt i svo miklar framkvæmdir á sviði heilbrigðis-
mála á undanförnum árum, að eftirspurn hefur verið
miklu meiri en framboð.
Að lokum, Sigurlín?
Ég vona, að hjúkrunarstéttin megi eflast og styrkjast,
svo að hægt sé að mæta þörfinni, og aldrei gleymist einn
mikilsverðasli þáttur hjúkrunarstarfsins, en það er hin
bróðurlega umhyggju og virðing fyrir einstaklingnum,
þrátt fyrir tækni og hraða nútímans.
HJÚKRUNARNÁM
Það vill og vera óhægt um félagslíf, þegar stærsti
hluti nemahópsins er í vinnu ú mismunandi tímum sólar-
hringsins. Við höldum að sjálfsögðu árshátíð, og innan
hvers bekkjar eða holls eru yfirleitt haldnir svokallaðir
hollfundir. Enda þótt félagslíf sé ekki mjög öflugt, virð-
ast mér almenn kynni nema á milli yfirleitt mun meiri
en í öðrmn skólum, og skapast þau kynni yfirleitt við
samslarf á sjúkradeildum. 011 umgengni og samstarf
nema eru yfirleitt mjög jákvæð og skemmtileg.
19. JÚNÍ
25