Alþýðumaðurinn - 16.04.1987, Page 3
ALÞÝÐUMAÐURINN - 3
Þokum okkur saman
Stundum flytja blöðin okkur
efni, sem hrífur hugann og lyftir
okkur upp úr lágkúru hversdags-
leikans, eygjum sólroðinn fjalls-
tind yfir mengunarþoku flatn-
eskjunnar og múgamennskunn-
ar. Ein slík grein er viðtalið við
Jón Baldvin Hannibalsson í
Alþýðublaðinu 14. apr. Þar er á
ferðinni ein af stóru greinunum,
sem sjást svo óendanlega sjaldan
á hinum síðari árum. Ef einhvern
tíma verður birt úrval stefnuyfir-
lýsinga stjórnmálaforingja aldar-
innar, á þessi grein tvímælalaust
sæti í fremstu röð. En hvers
vegna? Vegna þeirrar hrein-
skilni, djörfungar og drengskapar
ásamt raunsæi og djúpum skiln-
ingi, sem leiftrar í hverri setn-
ingu.
Málflutningur Jóns sýnir án
vafninga, hver er stefna Alþýðu-
flokksins og um leið, að hún er
eina leiðin, sem liggur í átt til að
skapa hér gott þjóðfélag. Þar er
afdráttarlaust mörkuð stefna
velferðarríkisins, ekki sem óljós
draumsýn, ekki sem glæsilituð
skrumauglýsing, heldur sem
raunhæf leið, ef við erum sam-
taka um að brúa torfærurnar og
ryðja stórbjörgunum úr vegi, þar
sem sérhagsmunum, einokun
auðsins, skattsvikum og sið-
leysisbruðli er sagt stríð á
hendur.
Engum, sem greinina les, dylst
að þar er á ferðinni vaskur for-
ingi, sem kveður þjóðina til víga
gegn ranglæti því og spillingu,
sem sameinað átak stjórnarflokk-
anna Sjálfstæðis og Framsóknar,
hefir þróað og haldið hlífiskildi
yfir. Og enginn efar, að þeir
flokkar muni halda áfram á sömu
braut ef þeim gefst færi á, og
Borgaraflokkurinn styðja þá af
öllum mætti, og allir muni þeir í
sameiningu sigla hafskipi sínu og
leita lægis í höfn nýfrjáls-
hyggjunnar.
En það er ekki nóg að eiga
frækinn foringja, sem ber hátt
inerki velferðarinnar, merki betri
framtíðar. Til þess að hann fái
sigrað myrkraöfl þjóðfélagsins,
grafið fyrir rætur spillingarinnar
og gefið brauð fyrir steina, þarf
að fylgja honum fast eftir. Bar-
áttusveitir hans mega hvergi
hika, né sýna á sér bilbug, þótt
virkið falli ekki við fyrsta högg.
Múrinn brotnar, ef nógu ötullega
er á honum hamrað ekki af ein-
um fræknum foringja heldur
öllum, sem sjá og skynja hvert
stefnt er.
Gæfa íslensku þjóðarinnar er
háð því að Alþýðuflokkurinn efl-
ist svo að hann verði að loknum
kosningum 25. apríl þungamiðj-
an í stjórnmálum þjóðarinnar, og
fái markað stefnuna.
Við hér í Norðurlandskjör-
dæmi eystra eigum nú í fyrsta
sinni möguleika á að senda tvo
fulltrúa Alþýðuflokksins á þing,
og um leið að láta nokkuð kveða
að rödd landsbyggðarinnar í söl-
um Alþingis. En til þess svo megi
verða hljótum vér að standa sam-
an og fylgja merkinu af sama
drengskap og djörfung og for-
maðurinn hefur lyft því.
Fylkjum okkur öll um Alþýðu-
flokkinn, hvar í stétt, sem við
stöndum hvort heldur við erum
ung eða gömul. Enginn er of ung-
ur né of gamall til að leggja góðu
máli lið eftir því sem kraftar hans
leyfa.
Sýnum og sönnum á kjördegi
að sýn Norðlendingsins Jónasar
Hallgrímssonar verði veruleiki.
Fríður foringi
stýri fræknu liði,
þá fylgi sverði sigur.
Steindór Steindórsson,
frá Hlöðum.
Bylting í íslenskum sjávarútvegi
Tölvuvindan
Einfaldari stjómun
Fullkomnari veiðikerfi
Mjög afkastamikið og öruggt veiðitæki
Fáanleg fyrir smokkfískveiðar og m. línuspili
Tveggja ára ábyrgð og örugg þjónusta um allt land
Óseyri 4 • Sími 96-26842 ■ Pósthólf 157 • 602 Akureyri
Hagkaup
auglýsír
Höfum opið
til kl. 21.00 þann 15. apríl
og til kl. 20.00 þann 22. apríl.
HAGKAUP
Akureyri
Viðskiptavinir
athugið
Kjörbúðir KEA Akureyri
verða opnar
laugardaginn fyrir páska
frá kl. 9-12.
★
Söluop
verða lokuð
föstudaginn langa
og páskadag
annars opin
eins og venjulega.
S#Matvörudei Id
V
DÖMUR MÍNAR OG HERRAR
„VELKOMIN TIL AKUREYRAR "
// LEIKHÚSPAKKAFERÐIR >/
KABARETT
PERLAN í PAKKANUM
SÖNGLEIKURINN:
FLUG - FIMM GISTISTAÐIR - FIMM VEITINGASTAÐIR.
ÞÚ VELUR SJÁLFUR í PAKKANN.
Dæmi: Leikhúsmiði + tvær nætur á hóteli með baði. Kr. 2690.- fyrir manninn
Leikhúsmiði + leikhúskvöldverður kr. 1600,- fyrir manninn.
^SPARNAÐARPAKKI: miðvikudagur - fimmtudagur.
U1
MIÐASALA
SlMI
96-24073 IflKFGLAG AKURGYRAR
(Æ
fluqfélaq
noróurlands hf". Umboðsmenn