19. júní - 19.06.1989, Page 11
Tímamót á fæðingadeild Landspítalans:
Fyrsta
glasa-
barnið
Óskíröur Grímsson, fyrsti íslend-
ingurinn sem getinn var í til-
raunaglasi. fæddist á Landsmtal-
„MYNDUM
EKKI
ÞAÐ AFTUR"t
Grímur Björn stœkkar óðum
SEGJA FORELDRAR FYRSTA ÍSLENSKA GLASABARNSINS
Við myndum ekki hika við að
gera þetta aftur — þetta segja þau
Halldóra Björnsdóttir og Grímur
Friðgeirsson, hjónin sem eignuðust
fyrsta íslenska glasabarnið í mars
árið 1988. í viðtölum sem birtust í
dagblöðum skömmu eftir fæðingu
sonarins, Gríms Björns, sögðu
foreldrarnir að það hefði verið
stórkostleg upplifun að eignast
hann, ekki síst vegna dvalarinnar á
sjúkrahúsinu í Englandi sem
sérhæfir sig í þessum aðgerðum.
I samtali við 19. júní sögðu
Halldóra og Grímur að þau mæltu
heils hugar með þessari aðferð fyrir
fólk sem er svipað ástatt fyrir og hjá
þeim. Þau sögðust hafa verið búin
að gera árangurslausar tilraunir til
þess að eignast barn en hefðu
ákveðið að reyna þessa leið sem
lokatilraun, samkvæmt ábendingu
frá Jónasi Bjarnasyni kven-
sjúkdómalækni, sem hefði reynst
þeim afar vel.
— Við gerðum okkur engar vonir
um árangur en ákváðum samt að
drífa okkur út til Bourn Hall Clinic
í Englandi. Við fórum til þess að
við þyrftum ekki að naga okkur í
handarbökin síðar yfir því að hafa
ekki reynt. Þetta var loka-
punkturinn í tilraunum okkar sem
voru búnar að taka mörg ár.
Hjónin voru sammála um að allt
starfsfólk á Bourn Hall hefði verið
mjög elskulegt og gert sér far um að
andrúmsloftið á staðnum væri
eðlilegt og rólegt og að mannlegi
þátturinn gleymdist ekki. Kváðust
þau vona að þegar að því kæmi að
aðgerðirnar yrðu framkvæmdar hér
heima yrði mannlegi þátturinn í
hávegum hafður, því þó aðgerðin
sjálf væri tæknilegs eðlis þá hefði
líðan fólks á meðan á henni stæði
afar mikið að segja.
11