19. júní


19. júní - 19.06.1992, Blaðsíða 23

19. júní - 19.06.1992, Blaðsíða 23
er svona rétt um og yfir tvítugt. Þetta fólk er svo opið og er óhrætt við að fara í löng ferðalög. Þetta fólk hefur mikið samband við mig og býður mér efni." Átt þú blaðið ein? „Ég og mín fjölskylda. Ég á helming- inn og maðurinn minn og börnin skipta hinum helmingnum á milli sín. Ég stofn- aði fyrirtækið árið 1988, en það heitir Farvegur hf. Stafirnir FV eru merkið okkar: Farvegur og Farvís. Fyrsta tölu- blaðið kom út 20. júlí 1988 og annað tölublað síðar á árinu. Fyrst var ég með fyrirtækið heima og mér fannst ég vera í vinnunni allan sólarhringinn. Það var mikill léttir að komast út og svo fannst mér þetta verða eins og meira fyrirtæki þegar við fluttum skrifstofuna út í bæ. Ég fór út, fór í vinnuna og svo heim. Reyndar erum við oft hérna til klukk- an 8-9 á kvöldin en það er samt öðru- vísi." Margar konur eru svo hræddar við að stíga þetta skref sem þú tókst, að verða sjálfstæðir atvinnurekendur og taka á sig alla þá ábyrgð og áhyggjur sem því fylgja. Hvernig lagðist þetta í þig? „Ég ætti líklega ekki segja það til að láta hafa eftir en ég var heimskulega bjartsýn," segir Þórunn og skellihlær. „Því að ég hélt að þetta yrði svo ofsa- lega létt. Þetta hefur verið dýrmæt reynsla. Ég hef kynnst viðskiptalífinu - kannski á erfiðasta háttinn. Og ég hef líka fundið hjá mér ýmsa eiginleika sem voru ónýttir og ég orðið að vekja, eins og t.d. útsjónarsemi ýmiss konar. Ég hef þurft að ráða fram úr æðimörgum vandamálum sem oft á tíðum virtust ól- eysanleg og þetta hefur eflt mig sem einstakling. Ef ég hefði vitað um alla erfiðleikana fyrirfram þá hefði ég aldrei farið út í þetta. Ég sé samt ekkert eftir þessu því þetta hefur verið mjög skemmtilegt." Þú ert þá á réttri hillu? „Ég held það. Ég er búin að prófa ýmislegt og þetta er atvinnugrein sem er mjög skemmtileg. Þarna er ég svo búin að samræma öll mín áhugamál: Mér þykir gaman að ferðast og skrifa. Ég er með bakgrunn í pólítík, blaðamennsku og ferðaþjónustu — og allt sameinast þetta í blaðinu." En má ekki segja að þú hafir betri grunn en margar aðrar konur til að tak- ast á við svona verkefni? „Jú. En ég var líka heimavinnandi í 18 ár." Varstu þá ekkert hrædd við að stíga það skref að fara út að vinna? „Jú, en ég fór bara af stað. Þetta varð einhvern veginn að gerast." Nú ritstýrirðu líka Súlunni, blaði sem Félag íslenskra ferðaskrifstofa og Far- klúbburinn gefa út, sérð um útgáfu Lionsblaðs og svo ertu búin að kaupa annað tímarit. „Já, það var í lok ársins 1991 að ég keypti Áfanga. Ég sameinaði síðan Áfanga I og Farvís í eitt blað og nú er það 5. ár- gangur af Farvís og 12. árgangur af Áföngum sem er að koma út." Af hverju keyptirðu Áfanga? „Mér stóð það til boða og mér fannst að það gæti verið jákvætt að sameina þessi tvö blöð. Áfangar er þekkt nafn og hafði nokkuð stóran áskrifendahóp. Hvort sem allir halda áfram eða ekki þá er þetta góður markhópur því þó að stefna Áfanga hafi verið að skrifa um ís- land þá hafði með árunum orðið stefnu- breyting og blaðið var orðið bæði um ísland og umheiminn. Svo er líka mikil- vægt atriði að ef einhver annar hefði keypt blaðið þá hefði ég kannski fengið sterkari keppinaut. Mér fannst því betra að kaupa upp þennan keppinaut." Hefurðu fengið viðbrögð frá fyrrver- andi Áfangaáskrifendum? „Já, mjög mikil. Sumir vilja fá meira af íslensku efni, enda kannski vanir því, aðrir hafa verið mjög hrifnir af breyting- unni. En við breytinguna er umfangið orðið miklu meira. Ég var vön að pakka blaðinu sjálf en nú verð ég að senda það út í bæ til pökkunar. Þetta varð ein- hvern veginn rniklu meira allt saman og ég verð að viðurkenna að ég ræð ekki lengur við þetta ein." Barnið þitt er sem sagt að vaxa úr grasi og verða stórt. „Ég vona það því þetta er svo skemmtilegt viðfangsefni að það væri leiðinlegt að þurfa að hætta við." ÍÞRÓTTA-OG TÓMSTUNDARÁÐ Kynntu þér rétt þinn til bóta frá Tryggingastofnun rlkisins. Allar upplýsingar er aðfinna i bæklingum okkar. Gefðu þér tfma og kynntu þér rétt þinn—það getur borgað sig. | TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS j •' ■ ‘- <% '''I i ' W'.' 'J i>'V' V-'v.Ví- folassl00, Orvgo, í '-j v&y*jPH ^ * Worðorlöndum 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.