19. júní - 01.10.1995, Blaðsíða 12
götunum fyrir neðan og þá var eins gott að
taka regnfötin með.
Og svo hófst ráðstefnan. Fyrirlestrar
hófust klukkan níu á morgnana og lauk
ekki fyrr en 12 tímum síðar. Boðið var upp
á 3.500 mismunandi fyrirlestra og vinnu-
hópa og oft var vandi að velja. Islensku
þátttakendurnir tóku virkan þátt, hver eftir
sínu áhugasviði. Bryndís Hlöðversdóttir
flutti fyrirlestur um konur í stjórnmálum á
Islandi og CEDAW samninginn, eða
samning um afnám allrar mismununar
gagnvart konum, Guðrún Jónsdóttir og
Steingerður Kristjánsdóttir sögðu frá
Stígamótum og tóku þátt í samnorrænum
fyrirlestri um ofbeldi á Norðurlöndunum.
Kolbrún Oddsdóttir landslagsarkitekt var
með vinnuhóp uin leiksvæði barna og
hvernig hægt er að nota ýmsa þætti þjóð-
menningar til að skapa athyglisvert leik-
svæði fyrir börn. Fjallað var um konur og
heilsufar, konur í stjórnmálum, 011)0101
gegn konum, konur í fjölmiðlum, stöðu
eldri kvenna í samfélaginu, málefni yngri
kvenna, konur og tækni, konur og atvinnu-
líf, menntun kvenna, o.fl. o.fl. Þar sem
mikið framboð var af alls kyns áhuga-
verðu efni skiptust þátttakendur á um að
sækja fyrirlestra og miðluðu hinum svo af
reynslu sinni.
Konur frá ólíkum menningarsvæðum hitt-
ust og skiptust á skoðunum. Þrátt fyrir
ólíka lifnaðarhætti voru baráitumálin svip-
uð eða hin sömu, barátta fyrir sömu laun-
um og karlar, eða bættri fjárhagsstöðu,
jafnri foreldraábyrgð, jöfnum aðgangi
kynjanna að auðlindum, fæðu, heilsugæslu
og valdastöðum innan samfélaganna svo
eitthvað sé nefnt. I tjaldi sem var við inn-
ganginn á ráðastefnusvæðið í Huariou og
kallað var „global tent“ var venjulega
margt um manninn, mikið af prentuðum
upplýsingum víðs vegar að úr heiminum
og þar voru sölukonur fljótar að hreiðra
um sig með ýmsan varning, þar sem oft er
stutt í kaup og sölu þar sem konur eru ann-
ars vegar, enda fjármögnuðu margar konur
ferðina með því að selja heimatilbúinn
varning. Þarna var því hægt að kaupa ýms-
an varning frá Afríku, töskur og hálsbindi
úr slönguskinni, töskur úr krókódílaskinni,
fatnað, hálsfestar, skartgripi, ýmsa út-
skorna muni og fleira. Sölukonur og sölu-
menn breiddu einnig úr sér meðfram göt-
unum í Huariou og þar var hægt að finna
enn meiri fjölbreytni.
Rigningin var viðvarandi, og regnkápur og
hlífar því oftast innan seilingar. Þannig
setti rigningin strik í reikninginn þegar
Hillary Clinton hélt ræðu sína. Kínverjarn-
ir höfðu komið upp útiborðum með sól-
hlífum á stóru svæði þar sem gert var ráð
fyrir að ráðstefnugestir hvíldu sig milli
fyrirlestra og þar gátu þeir einnig fengið
sér léttar veitingar. Hillary Clinton átti að
halda ræðu sína þar, því þar gátu allir heyrt
í henni og séð til hennar á sviðinu. En þar
sem flóðgáttir himinsins höfðu opnast var
dagskráin flutt inn í hús. Fyrir utan biðu
vonsviknir „áheyrendur" sem heyrðu ekk-
ert þar sem hátalarakerfi hafði ekki verið
sett upp utan dyra. Enginn vissi því hvað
fram fór fyrr en fréttir fóru að berast á öld-
um Ijósvakanna og í dagblöðunum sem
gefin voru út meðan á ráðstefnunni stóð.
Björk og Bing dao
Ráðstefnusvæðið var vel skipulagt og auð-
velt að komast um það. Öryggisgæslan var
heilmikil, handtöskur og fólk gegnumlýst
áður en það fékk að fara inn á fundarstað-
ina. Komið hafði verið upp ferðasalernum
víða um svæðið, en það voru ekki nema
þeir allra huguðustu sem treystu sér inn á
þau, jafnvel þó að þau væru hreinsuð eftir
hvern gest. Þrátt fyrir að mótmælagöngur
væru ekki vel séðar, mótmæltu konur
ýmsu óréttlæti, gömlu baráttuspjöldin
voru hafin á loft og söngvar voru sungnir
við kertaljós, gamlar „lummur", svo sem
eins og „give peace a chance“. Það voru
líka ýmsir aðrir tónar sem ómuðu um
svæðið og dálítið skemmtilegt að heyra
sérkennilega rödd hinnar íslensku Bjarkar,
sem er orðin frægari en sjálfur Snorri
Sturluson, magnast upp úr þartilgerðum
hátölurum. April Light Orcestra lét einnig
í sér heyra, en það er samnorræn kvenna-
hljómsveit sem lék eitt kvöldið lög eftir
hljómsveitarmeðlimi. Ymsar uppákomur
voru á kvöldin, Kínverjarnir buðu upp á
þrautþjálfað fjöllistarfólk, tónlistarfólk og
12