19. júní - 01.10.1995, Page 14
hornum undir kjörorðunum jafnrétti, þróun og
friður. Þetta er í fyrsta sinn sem ég kem á svona
stóra ráðstefnu. Við vonumst til að ráðstefnan
hafi áhrif á stöðu kvenna í Bangladesh."
Felicia Hayes:
„Eg er frá Bandaríkjunum og kom hingað á
ráðstefnuna til að sjá konur úr öllum heims-
hornum koma og bera saman bækur sínar. Ég
hef áhuga á málefnum kvenna í Asíu og fór því
á marga fyrirlestra hjá japönskum konum. Ég
er að ljúka mastersprófi í japönsku, og hef
áhuga á tölvu- og upplýsingatækni og hef
reynt að kynna mér það hér.
Ég kem hingað á vegum kvennasamtaka og er
að safna efni. Hef því einnig farið á ýmsa
vinnuhópa og fyrirlestra um konur í fjölmiðl-
um. Ég hef fengið mjög mikið út úr sumum
vinnuhópunum en þeir eru misjafnir, sumir
eru janfvel leiðinlegir, sumir fyrirlesarar virð-
ast ekki hafa undirbúið sig nægilega. En mér
finnst mjög gaman að taka þátt í ráðstefnunni,
sitja hér á sólhlífasvæðinu á morgnanna og fá
mér morgunmat og sjá allar þessar ólíku konur.
Mér finnst gaman að fylgjast með fólki og
samskiptum þess. Og það er athyglisvert að
fylgjast með samskiptum fólks sem skilur ekki
14
hvert annað, talar ekki sama tungumálið. Ég
fer með heilmikið af upplýsingum með mér
heim, það er ekkert eitt sem mér kemur í huga
í því sambandi, ég fæ hér upplýsignar sem
hjálpa mér að halda áfram vinnu minni heima.
Það eru margir mjög fordómafullir gagnvart
Bandaríkjamönnum, halda að þeir hafi það all-
ir svo gott og séu vellauðugir. En ég er mjög
fátæk, hef enga vinnu og ég er ekki ein um þá
stöðu í Bandarfkjunum. Konur um heim allan
eiga ýmislegt sameiginlegt. Það jákvæða sem
flestar konur eiga sameiginlegt er að okkur er
tamt að hugsa um aðra, það er eitthvað sem er
okkur meðfætt, þó að við berjumst gegn því,
og þar af leiðandi eigum við auðvelt með að
ná sambandi hver við aðra. Það er mikill kraft-
ur sem fylgir konunum hérna og hann fylgir
okkur héðan hvert sem við förum.“
Karen Jöb:
„Ég kem frá Guiyana, rétt hjá Brasílíu í Suður-
Ameríku. En ég bý í Bandaríkjunum er að
nema þar og er ljóðskáld. Og ég er einnig ein-
stæð móðir, dóttir mín er 14 ára gömul. Ég
kom hingað þar sem ég hef mikinn áhuga á
heimsbreytingum og taldi þetta vera einn besta
möguleika á að ná sambandi við sem flestar
konur í heimi á einum stað. Ég hef farið á
nokkra mjög góða vinnufundi, ég fór á fund
með konum úr kvennahreyfingu á Kúbu, fór á
annan fund sem konur frá Puerto Rico héldu.
Konur um allan hcim eiga ýmislegt sameigin-
legt. Vera mín hér hefur sagt mér að við verð-
um að berjasl enn harðar fyrir réttindum okkar,
konur fá enn mun lægri laun en karlar, karlar
hafa aðgang að svo mörgum björgum í samfé-
laginu sem við konur höfum ekki en ættum að
hafa í sama mæli og þeir. Það er mjög mikil
umræða hér um ofbeldi gegn konum. Fyrsta
dag ráðstefnunnar sagði kona nokkur mér að
hún hefði talið 27 fyrirlestra og vinnuhópa sem
fjölluðu um ofbeldi gegn konum, annað hvort
hefur ofbeldi gegn konum aukist eða umræða
um það opnast. Við gerum okkur betur grein
fyrir því nú að ofbeldi er til og hefur verið til.
Við höfum náð ákveðnunt réttindum konur, en
við erum svo sannarlega ekki þar sem við ætt-
um að vera. Miðað við greind okkar, fegurð og
snilld erum við svo sannarlega ekki þar sem
við ættum að vera.“
r \ ■ \ \v
\ r, • -' - W
éssmimÁ® sssi&ál '__
?>?* If&xa*#
/ V* \ '■
1 ffíifá | \
\ fú . . •,
>.
Shen Peirong
„Ég er kínversk og bý hér í Peking. Ég var
beðin um að leiða umræðufund um stöðu eldri
kvenna í Kína. Gamalt fólk hefur haft mun
betri félagslega stöðu hér í Kína en á Vestur-
löndum, hér er reynsla þess metin og eldri kon-
ur hafa haft virðingarstöðu í kínversku samfé-
lagi. En staða kvenna hér hefur breyst mjög
mikið frá 1949, við höfum fengið öll sömu
réttindi og karlar. Við höfum verið að ræða um
félagslega og efnahagslega stöðu eldri
kvenna. Við höfum einnig fjallað um læknis-
þjónustu, við erum að koma upp heimahjúkrun
hér. Vegna takmarkaðs fjölda sjúkrarúma er
verið að koma upp kerfi þar sem aðstandendur
sjá um að hjúkra fólkinu og læknirinn kemur í
heimsókn tvisvar í viku reglulega þó að hægt
sé að fá hann oftar ef þörf krefur. Ef sjúkling-
arnir þurfa nákvæma rannsókn eru þeir fluttir á
sjúkrahúsið. A þennan hátt er hægt að draga úr
kostnaði og sjúklingurinn fær að vera áfram í
sínu eðlilega umhverfi. Við höfum einnig rætt
um ýmsa hrörnunarsjúkdóma en svo virðist
sem konur séu fleiri meðal þeirra sjúklinga
sem fá þá. Skýringanna er að leita í því að kon-
ur eru oft minna menntaðar og hafa um færra
að hugsa en karlarnir og fer því meira aftur
andlega. Við ræddum einnig um félagslega
stöðu eldri kvenna hér í Kína. Og svo ræddum
við um menningarlega stöðu þeirra. Við erum
með háskóla sem eru sérstaklega ætlaðir eldra
fólki.
Þá sýndum við líkamsæfingar sem við iðkum á
morgnanna. Ég held það sé mjög gagnlegt fyr-
ir konur að hittast, við eldri konur hér á NGO
höfum lagt áherslu á að reynsla eldri kvenna sé
metin í samfélögunum og að þær geti sem mest
séð um sig sjálfar."
Viðtal og myndir:
Valgerður Katrín Jónsdóttir