19. júní - 01.10.1995, Side 16
• VIÐTALIÐ
Eva Lundgren prófessor
y* M
OG DA UÐA
Helgina 29. september til 1. október var
haldin ráðstefna í Munaðarnesi á vegum
Samtaka norrænna kvenna gegn ofbeldi,
en það er samstarfsnet tæplega 240
kvennaathvarfa og um 100 stuðningshópa
við þolendur sifjaspella og nauðgana á
Norðurlöndum. Tæplega 160 konur og
einn karl sóttu ráðstefnuna.
Samtök um kvennaathvarf og Stígamót
sáu um framkvæmd ráðstefnunnar og var
Álfheiður Ingadóttir fulltrúi íslands í
norrænu undirbúningsnefndinni. Ráð-
stefnustjóri var Guðrún Kristinsdóttir og
fyrirlesarar dr. Guðrún Jónsdóttir, dr.
Marianne Hester og Eva Lundgren
prófessor.
19. júní birtir hér helstu kenningar Evu
Lundgren byggðar á fyrirlestri hennar,
samtali við hana og bók hennar „Gud och
alla andra karlar".
Aö ráöa lífi og dauöa
„Til að fá skilning á því hvers vegna sum-
ir karlmenn eru ofbeldissinnaðir fann ég
að í stað þess að spyrja mennina hvers
vegna þeir í ósköpunum þeir höguðu sér
svona hræðilega þurfti ég í rannsóknum
mínum að spyrja á annan hátt og velta því
fyrir mér hvað þeir fengju út úr því að
beita konu sína ofbeldi. Og þá kom ýmis-
legt athyglisvert í ljós,“ sagði prófessor
Eva Lundgren.
Eva Lundgren er vel þekkt fyrir rann-
sóknir sínar á ofbeldi innan fjölskyldunn-
ar. Hún er guðfræðingur að mennt og hef-
ur fengist við kvennarannsóknir í heima-
landi sínu, Noregi. Hún hefur skrifað
nokkrar bækur um ofbeldismynstur í fjöl-
skyldum, en þekktastar þeirra eru eflaust
bækurnar sem gætu heitið í íslenskri þýð-
ingu „Guð og allir hinir karlarnir“, „Guð
16
refsar þeim sem hann elskar“ og „í Guðs
nafni“.
Bækur hennar hafa vakið athygli langt út
fyrir heimaland hennar og vegna skrifa
sinna, sem sumum þóttu ögrandi, varð
hún um tíma að vera undir lögregluvernd.
Þá var’hún flæmd úr starfi sínu og fékk
hvergi vinnu. Urn síðir var henni boðin
prófessorstaða við háskólann í Uppsölum
og þar er hún nú. „Ég hafði ekki hugmynd
um að ég væri þetta valdamikil,“ sagði
hún í viðtali við 19. júní. „Viðbrögð
kirkjunnar við rannsóknum mínum voru
sterk, því að ég gerði rannsóknir á ofbeldi
innan kristinna sértrúarflokka. En það
voru einng sterk viðbrögð við því sem ég
var að gera innnan háskólans. Nemendur
mínir urðu að sumra mati of „feminískir“
og það voru aðilar innan skólans sem
vildu að ég færi. Ég trúði þessu ekki fyrst
en sá svo að mönnum var alvara með að
ég færi með góðu eða illu.“
Ýmsar goðsagnir hafa verið uppi varð-
andi ofbeldissambönd. I fyrsta lagi er
konan mjög oft gerð ábyrg fyrir brotinu,
hún er of dugleg, of löt, of ögrandi, of feit
o.s.frv. I öðru lagi hefur þeirri goðsögn
verið haldið fram að konan sé masókisti.
Þá hefur ofbeldið verið talið stafa af fé-
lagslegum erfiðleikum, svo sem áfengis-
sýki. í fjórða lagi hefur ofbeldið verið
talið stafa af því að maðurinn hafi átt erf-
iða æsku.
Ofbeldi grundvallast
oftast á valdabaráttu
Eva Lundgren afgreiðir allar þessar
goðsagnir og segir að ofbeldisbrot gegn
konum, svo sem heimilisofbeldi, nauðg-
un, siljaspell, vændi og klám grundvallist
á valdabaráttu karlanna. Það að vera karl-
maður er að hafa völd og stjórna lífi kon-
unnar, stjórna hugmyndum hennar um
kynhlutverk og lífsrými. Valdið tekur
einnig á sig erótískar myndir, enda er
kynferðislegt ofbeldi stór þáttur í ofbeld-
issamböndum. Einangrun einkennir of-
beldissambönd, karlinn einangrar konuna
og hún fer að einangra sig sjálf til að aðrir
viti ekki hvernig hún hefur það.
Heimilisofbeldi er erfitt viðureignar
vegna þess að konum er ekki trúað,
hvorki af umhverfi né yfirvöldum, þar af
leiðandi fá þær enga hjálp til að komast út
úr sambandinu nema með aðstoð þeirra
sem þekkja vel þennan feril. Lýsing konu
sem er beitt ofbeldi er allt of ótrúleg til að
fólk sem ekki þekkir til trúi henni. Það er
því miklu algengara og auðveldara að
segja að það sé hún sem hafi rangt fyrir
sér, enda kemur ofbeldismaðurinn venju-
lega mjög vel fyrir í augum annarra, er
skemmtilegur og virðist umhyggjusamur,
meðan konan virkar snúin og afundin.
Hvað fær karlmaður út úr því að beita
konu sína ofbeldi? I fyrsta lagi fær hann
vald og það tengist hugmyndum hans um
karlmennsku. Hann beitir ekki hvern sem
er ofbeldi, heldur einungis ákveðna per-
sónu á ákveðnum tíma og stað. Hann seg-
ir að hann beiti konu sína ofbeldi þegar
lilfinningarnar bera hann ofurliði, en í
raun og veru hefur hann stjórn á tilfinn-
ingum sínum og veit mjög vel hvað hann
er að gera. Hann getur stjórnað konunni
með því að einangra hana, ákveður hvern
hún á að umgangast, hvernig henni á að
líða, hvað hún á að hugsa og hvað hún á
að taka sér fyrir hendur. Þetta ferli gerist
ekki á einni nóttu og fyrirlestur Evu
Lundgren fjallaði um það hvernig ofbeld-
ismynstrið verður „eðlilegur“ hluti dag-
legs lífs. Konan breytist meðan á þessu
ferli stendur og þau mörk sem hún hafði