19. júní - 01.10.1995, Síða 37
ferðina hefur svipt sig
lífí.
Betri menn
Göran var spurður að því, hvort ekki
væri verið að þröngva feðrum til þess að
vera viðstaddir fæðingu barna sinna. En
hann taldi það afar fátítt. Næstum allir
vilja vera með eigi þeir þess kost.
Fæóingarolof feóra
Hann talaði um mikilvægi þess að feð-
ur hefðu sjálfstæðan rétt til fæðingaror-
lofs. Þannig er hvatningin frá samfélag-
inu alveg skýr og miklu meiri líkur á að
þeir nýti sér rétt sinn. Hann sagðist hvetja
feður til þess að ætla sér ekki að gera ein-
hver ósköp í fæðingarorlofinu. Fæðingar-
orlof er ekki neitt venjulegt frí. Það er
tímafrekt umstang í kringum ósjálfbjarga
barn. - Dragið úr vinnu, leggið áhugamál
og fyrirætlanir til hliðar í bili. Þið hafið
nóg að gera við að sinna litlu barni.
Göran sagði vafasamt að skipta jafn
stuttu fæðingarorlofi og konur eiga rétt til
á íslandi. Ekki væri hægt að horfa fram
hjá því samvaxtarástandi (symbios) sem
ríki milli móður og barns á fyrstu mánuð-
um barnsins, einkum þegar barn er á
brjósti. Og konan þarf tíma til þess að
jafna sig líkamlega og andlega eftir hverja
fæðingu. Það er líka algengast í Svíþjóð,
þar sem fæðingarorlofið er helmingi
lengra, að karlmenn taki sinn hluta ekki
fyir en barnið er orðið 6-12 mánaða. Og
37
Flestir karlmenn
sem beita ofbeldi eru
efni í betri menn. Ef
næst til þeirra í tíma
má hafa mikil áhrif á
þá. Arangurinn er
ótvíræður. Um fimm
þúsund karlmenn hafa
af einhverjum ástæð-
um sett sig í samband
við karlamiðstöðina
(Mans-centrum) í
Stokkhólmi. 250 hafa
lokið meðferð af því
tagi sem Göran veitir
og allir breytt hegðun
sinni. Þegar þessi
staðreynd fór að koma
í ljós fékk Göran
Wimmerström uppá-
stungu frá annarri
konu. - Af hverju
reynirðu ekki að ná til
þessara ungu karl-
manna sem eru að verða feður í fyrsta
sinn?
Fyrst færðist hann undan. Honum
fannst hann enginn sérfræðingur í föður-
hlutverkinu. Og þó. Hann var pabbi. Þó
hann ætti bara eina dóttur. Og hann sló til
og hóf nýtt tilraunaverkefni með verðandi
feðrum í einni af útborgum Stokkhólms,
Upplands Vásby.
Fáfróóir feóur
Hann hittir hina verðandi feður tveim
mánuðum fyrir fæðingu barnsins og fylg-
ir þeim eftir fyrsta hálfa ár þess. Þegar
hann hitti þá fyrst voru þeir býsna borgin-
mannlegir og sögðust hlakka til að verða
pabbar. Og hann spurði hvort þeir væru
ekkert kvíðnir. - Nei, nei, ég hef það fínt
maður! - En þegar hann kannaði hvað
þeir vissu um þann tíma sem í vændum
var, var svarið iðulega: - Ekkert. Ekki
neitt.
- Karlmenn miðla ekki fróðleik af
þessu tagi hver til annars eins og konur
gera, sagði Göran. - Ef þeir kaupa sér
vídeótæki eða farsíma lesa þeir þrisvar
sinnum yfir leiðbeiningarnar, en þegar
barnið þeirra er að koma í heiminn vita
þeir ekkert hvað í vændum er og hvað
þeir eiga að gera. Konur segja hver
annarri sögur af fæðingum, hvernig þær
rifna eða eru klipptar, hvernig gengur
með brjóstagjöfina o.s.frv. o.s.frv. Þær
tala um allar framfarir barnsins og deila
áhyggjum og gleðiefnum hver með
annarri. Konur eignast fleiri vinkonur,
þegar þær verða mæður. Flestir karlmenn
upplifa það öfuga. Vinunum fækkar.
Fæóing frá sjónarhóli föóur
Og Göran talaði um fæðinguna og
fyrstu tengslin við barnið út frá sjónarhóli
feðra. Hann talaði um mikilvægi þess að
faðirinn væri viðstaddur fæðingu barns
síns svo minningin um þennan stóratburð
í lífinu væri sameiginleg minning manns
og konu, hinna nýbökuðu foreldra.
Þannig yrði hún góð minning. Á stund
fæðingarinnar eru allar tilfinningar opnar
upp á gátt, ekki bara konunnar sem líður
kvalirnar heldur er karlmaðurinn einnig
sem opin kvika við fæðingu barns síns.
Þau eru opin hvort fyrir öðru og þau eru
opin fyrir barninu sínu. Um leið og móð-
irin fær barnið á brjóst byrjar hún að
mynda tengsl við það sem einstakling. En
faðirinn verður að fá og vilja mynda þessi
tengsl líka. Alveg frá byrjun. Ekki sem
eftirlíking af móðurinni, heldur á sinn
eigin hátt, sem pabbi barnsins. Barnið
þarf ekki á tveim mæðrum að halda. Það
þarf móður og föður.
L