19. júní


19. júní - 19.06.1996, Page 9

19. júní - 19.06.1996, Page 9
al þjóðfólagsrýna, þ.e.a.s. þeirra sem líta á ein- staklinga sem hluta af heildarkerfi og þeirra sem ganga út frá fullu sjálfstæði einstaklinga. hjóðfélagsrýnar sem hafna því að einstakling- urinn sé sinn eigin herra leitast við að sýna hvernig einstaklingurinn er samofinn samfó- laginu á margbrotinn og flókinn hátt. Þannig fæðast einstaklingar inn í kerfi sem mótar þá. Skoðanir og gjörðir einstaklinga helgast síðan af stöðu þeirra innan kerfisins. Svo er litið á að í stofnanabundnu valdakerfi fái einstaklings- framtakið litlu breytt. Allar breytingar hljóti að vera afieiðing innri kerfisbreytinga.Slagorð Rauðsokkahreyfingarinnar, engin kvennabar- átta án stóttarbaráttu, var angi af þessum meiði. Enda hafa marxískir feministar löngum haldið því fram að kvennakúgun sé bara enn einn fylgifiskur arðránsins, konur jafnt sem karlar séu fórnarlömb kapítalismans. En það eru síður en svo bara marxistar sem aðhyllast kerfisfræðilega samfélagsgreiningu því að hún hefur verið mjög ríkjandi í félagsvísindum síð- ustu fjóra áratugina. Reynsluheimur kvenna og post-modernismi Olíkt frjálslyndum feminisma lagði önnur kynslóð feminismans, sem fram kom í kring- um 1980, áherslu á hversu ólíkar konur væru körlum. Reynsluheimur kvenna varð rann- sóknarefni. Hin nýja hernaðartækni feminista var að upphefja kveneðlið og reynsluheim kvenna til þess að áskapa mótvægi við alda- langa niðurlægingu kvenna. I stað þess að hamra á því hvað konur og karlar ættu sameig- inlegt leituðust kvennahreyfingar hvarvetna um heirn að skerpa andstæðurnar milli kynj- anna og auka þannig samhjóm meðal kvenna. Hugmyndafræði Samtaka um kvennalista á síðasta áratug byggði um margt á slíkum kvennaáherslum. Þá gáfu þessar kvennaá- herslur kvennafræði einnig byr undir báða vængi sem sjálfstæðri fræðigrein. Hin síðustu ár hefur hins vegar þriðja kynslóð feminsmans verið að ryðja sér til rúms. Sú kynslóð hefur verið sett undir hatt post-modernisma. Svo er sú aðferðarfræði nefnd sem vísar því á bug að hægt sé að lýsa samfélaginu sem einu kerfi sem gangi fyrir sameiginlegu hreyfiafli. Þá hafna þeir sem aðhyllast post-modernisma því að til sé einn algildur sannleikur og að gildis- framhald á bls. 8 7 19.jÚní RIT KVENRÉTTINDAFÉLAGS ÍSLANDS

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.