19. júní - 19.06.1996, Qupperneq 72
Jafnréttisbaráttan
framhald af bls. 69
Aðalfundur 1995
Á aðalfundi árið 1995 urðu þær breytingar
á stjórn félagsins að Inga Jóna Þórðardóttir gaf
ekki kost á sér til formanns, en í hennar stað
var Bryndís Hlöðversdóttir kjörin formaður til
tveggja ára. Ellen Ingvadóttir var kjörin vara-
formaður í stað Bryndísar til eins árs, Valgerð-
ur K. Jónsdóttir var kjörin'í aðalstjórn til
tveggja ára og Málfríður Gísladóttir var kosin í
aðalstjórn til tveggja ára í stað Guðnýjar Bene-
diktsdóttur er gaf ekki kost á sér áfram. í vara-
stjórn voru kosnar Margrét Vala Kristjánsdóttir
til tveggja ára í stað Ragnhildar Hjaltadóttur er
gaf ekki kost á sér áfram og Hrund Hafsteins-
dóttir sem var kosin til eins árs.
Að loknum aðalfundi skipti stjórnin með sér
verkum þannig að Hulda Karen Olafsdóttir var
kjörin gjaldkeri, Málfríður Gísladóttir ritari og
Valgerður K. Jónsdóttir meðstjórnandi.
Fundir stjórnar og
framkvæmdastjórnar
Frá síðasta aðalfundi voru haldnir 8 stjórn-
arfundir, en framkvæmdastjórn heldur fundi
að jafnaði vikulega.
Þann 19. maí komu stjórnarkonur saman
ásamt ritnefnd 19. júní og héldu vorblót um
leið og Inga Jóna Þórðardóttir, fráfarandi for-
maður, var kvödd. Henni var færður penni að
gjöf, áritaður með kveðju frá stjórninni.
Þann 26. október buðu stjórnarkonur öllum
þingkonum til morgunverðarfundar til að ræða
dóma sem kveðnir voru upp á árinu um ör-
orkubætur til stúlkna, en dómar þessir höfðu
verið gagnrýndir fyrir að vera í andstöðu við
lög og alþjóðasamninga um jafnrétti kvenna og
karla. Lára V. Júlíusdóttir kynnti dómana og
að því loknu voru umræður. Fundinn sóttu 11
manns, þrátt fyrir aftakaveður og slæma færð.
Samþykkt var á fundinum að beina áskorun til
Lögmannafélags íslands, lagadeildar Háskóla
íslands og Dómarafélags íslands um að standa
að fræðslu og kynningu á ákvæðum laga og al-
þjóðasamninga um jafnrétti kvenna og karla en
á fundinum komu fram áhyggjur af því að ekki
væri nægilega vel staðið að þessum málum.
Bréf voru send til ofangreindra aðila og undir-
rituðu svo til allar stjórnarkonur KRFÍ og all-
flestar þingkonur bréfin. Nú nýlega fór formað-
ur ásamt Láru V. Júlíusdóttir á fund Þorgeirs
Örlygssonar, forseta lagadeildar Háskóla fs-
lands, en á þeim fundi voru reifaðar hugmynd-
ir um að komið yrði á kennslu í kvennarétti við
lagadeildina. Var vel tekið í þá hugmynd og
ákveðið að vinna áfram að henni í samráði við
deildina.
Foreldrar framtíöarinnar -
vilji og væntingar
Þann 6. maí var haldið málþing í tilefni af
ári fjölskyldunnar árið 1994. Málþingið var
haldið á Kornhlöðuloftinu og stóð frá kl.
10.30-14.00. Sigríður Vilhjálmsdóttir, þjóðfá-
lagsfræðingur og fulltrúi félagsins í landsnefnd
um ár fjölskyldunnar, hélt inngangserindi en
aðrir framsögumenn voru Sigríður Jónsdóttir
ABYRGÐAR
BÓNUS
Fjölskyldur sem vátryggja ALLT HJÁ ÁBYRGÐ
fá allt aö 20% afsláttcA heimilistryggingu og
10% af öðrum vátryggingum nema öku-
tœkjatryggingum og geta unniö sér rétt til
10% endurgreiðs/u iðgjalda.
Þú nýtur einnig aukinnar bónusverndar og
átt rétt á fríum bílaleigubíl í viku ef þú lendir
í kaskótjóni!
Kynntu þér kjörin hjá okkur
TAKTUÁBYRGÐ!
Vátryggingafélagið
til efiingar bindindis og heilsu
Lágmúla 5 - Reykjavík - sími 588 9700
■■■