19. júní - 19.06.2000, Síða 7
ÞórólfurJónsson, lögfræðingur, telur að lögin feli í sér risaskref íjafnréttisbaráttunni.
Karlar fúsir til að jafna
stöðu kynjanna
Þórólfur Jónsson lögfræðing-
ur er nýorðinn faðir fyrsta
sinni. Þau Brynhildur Ólafs-
dóttir fréttamaður eignuðust
dóttur 16. apríl síðastliðinn;
hann nýtur því reyndar ekki
góðs af nýju lögunum um
fæðingarorlof að þessu sinni,
þar sem þau hafa enn ekki
tekið gildi. Þórólfur sagði
Skapta Hallgrímssyni að sér
litist afskaplega vel á lögin.
,,Eg horfi glaður til framtíðar; ef
sagan endurtekur sig hjá okkur;''
segir Þórólfur þegar Skapti leit
við í lok maf. Þórólfur tók sér frí úr
vinnu í tvær vikur eftir að dóttirin
fæddist. Segist reyndar fúslega
geta viðurkennt að hann hefði
viljað taka sér ívið lengra frí, en
ekki hefði verið möguleiki á því
að þessu sinni. „En þetta var tími
sem ég hefði alls ekki viljað missa
af. Eg held hreinlega að fátt sé
eins mikilvægt í uppeldinu og að
fá að vera með barninu fyrstu
vikurnar og mánuðina; ég held
það sé afar brýnt að feðun alveg
eins og mæður, fái tækifæri til
þess."
Það er ótrúlega stutt síðan
algengt var, og sjálfsagt þótti, að
feður kæmu mjög lítið nálægt upp-
eldi barna sinna, að minnsta kosti
framan af. Er hugarfar þinnar kyn-
slóðar ekki allt annað?
„Maður þekkir auðvitað
hvernig þetta var áður fyrr; til
dæmís þegar ég var sjálfur að
alast upp. Það má segja að þá hafi
þótt mjög eðlilegt að konur
bæru hitann og þungann af þessu
öllu saman. Eg finn að þetta er
töluvert öðruvísi núna vegna
þess að feður eru í meira mæli
farnir að áskilja sér rétt til þess að
vera með í uppeldinu af fullum
krafti. Það kann að vera að hér
áður fyrr hafi mönnum þótt eitt-
hvað verra að þurfa að grípa í
ryksuguna eða moppuna - fund-
ist það kvenmannsstörf- en það
er breytt, og ef sömu lögmál hafa
gilt um barnauppeldi, þá eru þau
líka breytt." Þórólfur telur karl-
menn almennt nefnilega hafa
mikinn áhuga á að sinna uppeldi
barna sinna. „Það vill stundum
verða þannig með jafnrétti að
manni finnst konur eiga þar undir
högg að sækja og verði að sækja
rétt sinn með einhverjum að-
gerðum. En hvað uppeldi barna
varðar held ég að karlar séu
mjög viljugir og fúsir til þess að
jafna stöðu kynjanna."
Er það ekki einmitt jafnréttismál
þeim til handa - að þeir fái tæki-
færi til að taka miklu meiri þátt I
uppeldi barnanna en áður?
„Jú, ég Ift þannig á málin að hér
sé fyrst og fremst um að ræða
rétt karlmanna, sem þeir hafa
farið á mis við hingað til."
Þannig að þú telur að þessi nýju
lög falli almennt í góðan jarðveg hjá
þínum aldurshópi?Að fólk telji svona
nokkuð nauðsynlegt og sjálfsagt?
„Já, og í sjálfu sér held ég að
þetta sé í grunninn mjög jákvætt.
Fyrir fólk sem er í sambandi er
verið að lengja þann heildartíma
sem hægt er að verja með barn- ►
7