19. júní


19. júní - 19.06.2000, Side 16

19. júní - 19.06.2000, Side 16
við vinnum báðar við að leið- beina fólki í líkamsrækt. Hvernig völduð þið þátttakend- ur í hóþinn? Við völdum ekki neina sér- staka „gerð" af konum, eða konur í einhverju ákveðnu líkam- legu ástandi. Við auglýstum eftir þátttakendum á námskeiðið og þær sem komu voru af öllum tegundum og gerðum og á ýmsum aldri. Við vorum með mikla fræðslu í byrjun en tilgang- urinn með því var að upplýsa konurnar um að rétt mataræði og regluleg hreyfing er góð af svo mörgum ástæðum: Það fyrir- byggir sjúkdóma, eykur likur á góðri heilsu í framtíðinni, dregur úr verkjum, og eykur almenna vellíðan. Við héldum þeim vel við efnið og á miðju tímabilinu buðum við þeim upp á einkaviðtöl til að fara yfir stöðuna, hvað mætti betur fara, hvernig þeim gengi osfrv. Af þeim 34 konum sem tóku þátt frá byrjun, hættu fjórar. Hinar 30 kláruðu allar námskeið- ið sjálft en aðeins 18 þeirra mættu í allar lokamælingar og svöruðu spurningalistanum að námskeiðinu loknu. Spurninga- listinn „Heilsutengd lífsgæði", sem lagður var fyrir konurnan er saminn af geðlæknum og sál- fræðingum, og hann er sérstak- lega settur saman með íslenskt fólk í huga. Þetta er viðurkennd- ur listi sem mikið hefur verið notaður á hópa sjúklinga sem eru i'meðferð.t.d. hjartasjúklinga. Tólf þættir voru athugaðir: Heilsa (general health), depurð, samskipti, fjárhagur þrek, kvíði, líkamsheilsa, sjálfsstjórn, svefn, li'ðan, hugsun og verkin Konurnar fóru vel upp fyrir meðaltal í öllum þáttunum að loknu nám- skeiði. Marktækur munur var á öllum þáttunum nema svefni og líkamsheilsu.Vert er að benda á að hærra skor í neikvæðum þátt- um eins og depurð, kvíða og verkjum, merkir að dregið hefur úr þeim, öfugt við hærra skor í jákvæðu þáttunum, sem merkir að þeir hafa aukist. En áhugavert er að skoða hvers vegna t.d samskipti og fjárhagur batnar við bætt líkamlegt ástand. Þetta er auðvitað ekki svona einfalt, það er svo margt sem spil- ar inn f og eitt leiðir af öðru. Sá sem upplifir sjálfan sig á jákvæðan hátt í sem víðastri merkingu er betur í stakk búinn til að takast á við Iffið. Kona sem hefur kannski verið óánægð með sig, henni líður strax betur bara við það eitt að gera eitthvað i' því sem hún vill að betur fari. Það styrkir ekki bara kroppinn að ná árangri í lík- amsrækt, það bætir líka sjálfs- myndina að verða þannig ágengt með sjálfa sig. í beinu framhaldi af því er viðkomandi öruggari í öllum samskiptum við annað fólk. Auk þess kynntust konurnar nýju fólki á námskeiðinu og mynduðu ný tengsl. I fjárhagsþættinum var spurt hvernig viðkomandi gengi að láta enda ná saman og einnig var spurt um áhyggjur af fjármál- um. Við sjáum á línuritinu að sjálfsstjórn fór upp á við og það hefur áhrif á svo margt, m.a. hvernig viðkomandi tekur á fjár- málum sínum. Niðurstöðurnar sýna einnig að dregið hefur úr almennum kvíða, og það skilar sér m.a. í minni áhyggjum af pen- ingamálum. Þetta helst allt í hend- ur Við vitum t.d. að þegar fólk stundar lilsamlega áreynslu þá sefur það betur Og að sofa vel er grundvallaratriði í allri vellli'ðan. En hvernig komu líkamlegu þættirnir út? Það var marktæk breyting í auknu þreki, minni fituprósentu og þyngdartapi. Þessar 18 konur sem teknar voru inn í tölfræðina, losuðu sig við 52 kíló samtals. Kilóin sem þær misstu voru frta en ekki vöðvamassi. Við erum mjög ánægðar með þann árang- ur því það er allt of algengt að konur tapi vöðvamassa þegar þær eru að létta sig, því þær hætta að borða. Slíkt er auðvitað ekki gott fýrir heilsuna. Konur eru af einhverjum ástæðum ótrúlega tregar til að sleppa þessari gömlu hugsun um að besta leiðin til að grenna sig sé að svelta sig. Ein af þessum fjórum konum sem hætti á námskeiðinu hætti vegna þess að henni fannst við vera að blekkja sig. Við lögðum riTa áherslu á að konurnar borðuðu sex máltíðir á dag. Henni fannst þetta bara vera bull í okkur og hún var sannfærð um að hún yrði Eflir líkama og sál Soffla Stefánsdóttir heima í stofu. Soffía Stefánsdóttir er ein af þeim eldri í hóþi þeirra kvenna sem tóku þátt í nám- skeiðinu. Þetta var í fyrsta skiþti á ævinni sem hún fór í markvissa líkamsrækt. „Það kom mér virkilega á óvart hvað þetta var skemmtilegt. Hópurinn var ekki einsleitur, tímarnir fjölbreyttir og fræðsl- an öll fannst mér mjög upplýsandi. Ég fór ekki á þetta nám- skeið til að megra mig, held- ur fyrst og fremst til að hreyfa mig og styrkja lík- amann og einnig til að sjá hvort það myndi draga úr viðvarandi höfuðverk. Ég fann mikinn mun eftir að ég var komin vel á veg í nám- skeiðinu, aukna vellíðan og aukið þol. Það dró úr höfuð- verknum og ég styrktist mikið. Fyrir nokkrum árum varð ég fyrir slysi á skíðum og slasaðist illa á hné. Hnéð hrjáði mig allar götur síðan, þrátt fyrir aðgerð . Ég þurfti því að hlífa hnénu sérstak- lega í byrjun námskeiðsins. Smám saman styrktust vöð- varnir í kringum hnéð og nú finn ég ekki fyrir neinum óþægindum. Ég hef haldið ótrauð áfram og fer þrisvar i' viku á námskeið hjá Gígju og Unni. Þetta fyrirkomulag hentar mér mjög vel og ég mæli eindregið með svona heildrænu námskeiði þar sem áherslan er ekki einhliða, heldur fjölmargir þættir tekn- ir inn í þjálfunina. Þetta eflir bæði líkama og sál!" ■ 16

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.