19. júní - 19.06.2001, Qupperneq 10
Eftir Gunnar Hersvein heimspeking og blaðamann
S J
/
I
□ SLÆÐU DANS
AUGLYSINGU
I N N
M
Ef hún vildi dansa fyrir sig Sjö slæðu dansinn
mætti hún biðja hann hvers sem hún óskaði sér.
M.D. Mascetti
Greina má endurkomu gálunnar í tveimur nýjum íslenskum
auglýsingaherferöum. Tálkvendið var algeng sjón í auglýs-
ingum á sjöunda áratugnum, en arfmynd hennar er Salóme
sem þurfti að fella sjö slæður í dansi og opinbera nekt sína til
að fá karlana til að gera eitthvað fyrir sig. Myndlestur, grein-
ing og túlkun, á íslensku auglýsingunum sýnir að bak við svalt
yfirborðið leynist gamaldags og úrelt hugsun um kynin.
Hópur fagfólks skapar sérhverja auglýsingu; textagerðarmaður, útlitshönnuður,
Ijósmyndari, myndlistarmaður, hugmyndasmiður - hópurinn íhugar, vegur og
metur - hann hugsar, og hann hugsar skýrt því miklir peningar eru í húfi.
Auglýsingin höfðar svo til ákveðins markhóps og hún þarf að komast yfir þrjá
þröskulda; athygli, löngun/áhugi, hegðun. Hún þarf að ná athygli viðskipta-
vinarins, vekja með honum löngun eða áhuga og fá hann til að gera eitthvað
eins og að kaupa vöru eða foröast eitthvað. Mér finnst ósanngjarnt að saka
auglýsingafólk og kaupendur þeirra um að hugsa ekki um merkingu auglýs-
inganna og skilaboðin sem í þeim felast. Auglýsingaherferð stendur yfir ákveðið
tímaskeið, viku eða mánuð, og þegar öflug fyrirtæki leggjast i herferð komast
fáir hjá því að bera verkin augum. Veruleik-
inn er bókstaflega veggfóðraður; auglýs-
ingaskilti, strætó, strætóskýli, blöð, tímarit,
sjónvarp, útvarp - og af þeim sökum finnst
mér að það ætti undanbragðalaust að
kenna auglýsingalestur strax í grunn-
skólum og svo aftur í framhaldsskólum.
Auglýsingar eru hluti borgarmyndarinnar,
ásýndarinnar. Auglýsingar gegna svo veiga-
miklu hlutverki i samfélaginu að frjálsir fjöl-
miðlar, fjórða valdið, þrífast ekki án þeirra.
Morgunblaðið kæmi ekki út, ekki DV, ekki
Fréttablaöið, Stöð tvö væri ekki með
útsendingar, ekki Skjár einn heldur - og af
þessum sökum finnst mér að stunda ætti
kraftmikla auglýsingagagnrýni í fjölmiðlum.
Mér finnst jafnslæmt að sjá fordóma í
verkum auglýsingagerðafólks eins og hjá
blaðamönnum, eða er ábyrgð þeirra
minni?" Auglýsingar eru ákveðin tegund af
fréttum. Ný föt eru kynnt, ný tæki(færi),
þær eru fréttir handa neytendum.
8