19. júní - 19.06.2001, Qupperneq 66
Eftir Roald Eyvindsson
Kynhlutverk
í KVIKMYNDUM
Draumaverksmiðjan í Hollywood hefur lengi þóst boða róttækar hugmyndir en er í eðli sínu fast-
heldin á rótgrónar og íhaldssamar samfélagshugmyndir. Hollywood hefur t.d. örsjaldan fjallað af
viti um breyttar áherslur á kynin og kynhlutverkin. Lengi vel hafa tilraunir til að fjalla um þessar
breytingar verið frekar kjánalegar eins og sannast af myndum á borð við Three Men and a Baby
frá árinu 1987 í leikstjórn Leonard Nimoy.
Three Men and a Baby fjallar um þrjá piparsveina sem hafa fleytt rjómann af
Iffinu, m.a. með kvennafari og öðru skemmtanalífi, en verða fyrir því að korna-
barn er skilið eftir á tröppunum hjá þeim. Söguþráðurinn gengur síðan út á að
sýna hve klaufskir uppalendur karlarnir eru en smám saman læra þeir þó að
axla ábyrgð á börnum (t.d. með því að skipta um kúkableiur). í lok myndarinnar
snýr síðan móðir barnsins aftur og því fer allt á besta veg: konan tekur víð
hlutverki móðurinnar og strákarnir fá því aftur svigrúm til að vera strákar.
Vinsælt viðfangsefni
Myndir sem fjalla um konur og karla í óhefðbundnum kynhlutverkum hafa lengi
verið vinsælt viðfangsefni. Það hefur a.m.k. sýnt sig að almenningur virðist vera
tilbúinn til að borga sig inn á þær sbr. Three Men and a Baby sem fór sigurför
um heiminn þegar hún var frumsýnd. Oft er fléttan á þá leið að aðalhetjan þarf
af einhverjum ástæðum að bregða sér út fyrir kynhlutverk sitt til að ná markmiöi
sinu sem getur verið mjög misjafnt: allt frá þvi að hafa í sig og á sbr. Julie
Andrews sem fátæk söngkona i VictorA/ictoria (Blake Edwards, 1982), Robin
Williams sem vill hitta börnin sín i Mrs. Doubtfire (Chris Colobus, 1993) eða
piparsveinarnir þrír sem þurfa að læra aö axla ábyrgð í Three Men and a Baby.
Nýlegt dæmi um það er Walt Disney-teiknimyndin Mulan (Tony Bancroft og
Tony Cook, 1998) þarsem viðsnúningur á hefðbundum kynhlutverkum gengur
enn lengra. Myndin gerist á ófriðartímum Kínverja og Húna og segir af kín-
verskri almúgastúlku, Fa Mulan, sem dulbýst sem karl og gengur í herinn til að
forða öldruðum föður sínum frá dauða og halda heiðri ættarinnar á lofti. Með
dirfsku og áræðni sigrar hún foringja andstæðinganna eftir langa og stranga
herþjálfun og að launum er henni boðið sæti í kínverska ríkisráðinu sem er einn
æðsti heiður sem gat fallið í skaut konu á þeim tíma. Fa Mulan þakkar pent fyrir
sig en hafnar boðinu. Hlutverki hennar sem hermanns er lokið og því á hún sér
enga ósk heitari en að snúa aftur heim. M.ö.o. er markmiðinu náð og Fa Mulan
getur því brugðið sér aftur i hið hefðbundna kynhlutverk sitt. Á þessu er síðan
hnykkt með bónorði herforingjans Li Sang, sem hafði reyndar skömmu áður
skilið Mulan eftir illa særða þegar upp um hana komst. Og viti menn, Fa Mulan
samþykkir ráðahaginn eins og sannri undirlægju sæmir. Myndinni lýkur því eins
og dæmigerðri ástarsögu í rauðu seríunni: með endanlegu afsali Fa Mulan á hinu
nýfengna en skammvínna frelsi.
Ljót mynd af konum
Walt Disney-fyrirtækið hefur verið harðlega gagnrýnt fyrir að breyta þeim
upprunalegu sögum sem myndir þess leggur út af. í kínversku þjóðsögunni
sem Mulan byggir á breytist Fa Mulan hreinlega í karlmann en forráðamenn
Walt Disney hafa dregið mörkin við klæðskipti hennar og félaganna sem fara í
drag til að blekkja óvinina. Ástæðan fyrir þessu kann líka að vera sú að það hafi
þótt of erfitt mál að útskýra kynskiptin fyrir yngstu áhorfendunum.
64
J