19. júní


19. júní - 19.06.2002, Side 28

19. júní - 19.06.2002, Side 28
skyldunnar, hag kvenna og barna og stöðu þeirra í þjóðfélaginu. Opinber þjónusta er gersamlega í skötulíki. Það er tómarúmið, sem fjölskyldan fyllir upp í. Hvers vegna er þetta svona? Það er vegna hins óforbetranlega karlaveldis í stjórnmálum, stjórnsýslu og atvinnurekstri. Konan er í stöðugri varnarbaráttu fyrir hönd fjölskyldunnar gegn þessu kerfi. Þetta er að minnsta kosti mín niður- staða af eigin reynslu, umhugsun og samanburði á Ítalíu og þeim norrænu hefðum, sem mér voru innrættar. Konan veit hvað hún hefur Saga Ítalíu er saga fjölskyldunnar. Eftir því sem ríkinu og stofnunum þess hnignaði og þeim mun rækilegar sem getuleysi ríkisins til að fullnægja þörfum almennings kom í Ijós, þeim mun brýnna var, að fjölskyldan stæði saman og þeim mun mikilvægara var hlutverk fjölskyldunnar til að halda uppi siðmenntuðu þjóðfélagi. Þeim mun ve- sælla og spilltara, sem ríkisvaldið varð, þeim mun meiri varð ábyrgð fjölskyldunnar að fylla upp í tómarúmið. Fjölskyldan varð haldreipi samfélags- ins, límið, sem batt saman hinar smáu einingar í einhvers konar heild, enda ekki öðrum til að dreifa. íhaldssemi ítalsks þjóðfélags birtist í því að halda dauðahaldi í óbreytt ástand; í þessa hefð. Að baki býr aldagömul og grunnmúruð vantrú á, að stofnanir þjóðfélagsins (ríkið, embættiskerfið, heilbrigðiskerfið, tryggingarkerfið, borgarkerfið) rísi undir skyldum sínurm. Þegar nútíminn og al- þjóðavæðingin sækja að virkisveggjum fjölskyld- unnar, t.d. með kröfunni um atvinnuþátttöku kvenna utan heimilis, fer fjölskyldan í varnar- stöðu. Konan veit hvað hún hefur, en ekki hvað hún hreppir. Þessi klassíska fjölskylda sem hefur ráðið ríkjum á Ítalíu öldum saman er í stöðugri mótsögn við ríkisskrifræðið, þjóðfélagið, hún lok- ar sig af, einangrar sig og er einstaklega eigin- gjörn í eðli sínu. Hún heldur dauðahaldi í hefð- bundin gildi á óvissu tímum. Hennar megin hlut- verk er fyrst og fremst að leysa þarfir ,,þegna sinna“. Fjölskyldan ver sig og sína með kjafti og klóm og skirrist ekki við að gera það á kostnað heildarinnar „solidariat sociale". Þetta fyrirbæri kalla ítalir „familismo amorale" - siðblindu vensl- anna -, og það hefur verið verðugt viðfangsefni fræðimanna og rithöfunda sem sérítalskt fyrir- bæri. „La famiglia" - fjölsyldan - sem snýst í kring- um móðurímyndina, „figura della madre“. Karlaveldið lokar dyrum sínum Fjölskyldan er allt í senn, löghelgun á sambandi kynjanna, uppeldisstofnun, tryggingarstofnun, at- vinnumiðlun, lífeyristrygging og elliheimili. Allir vita, að ríkið er fullkomlega ófært um að leysa fjöl- skylduna af hólmi. Það hlýtir engum reglum. Það er spillt. Það mismunar fólki eftir uppruna, efna- hag, menntun, stöðu. Það misnotar fé. Enginn hefur trú á að hægt sé að breyta því til hins betra. Allar umbótatilraunir hafa runnið út í sandinn. Fjölskyldan, þetta virki konunnar sem byggir á fórnfýsi hennar, hefur staðið af sér öll áhlaup. Ríkisskrifræðið, karlaveldið er óábyrgt, spillt, óhagkvæmt og rúið trausti. Um það eru allir sam- mála, bæði kyn, ungir og gamlir. Það er því skilj- anlegt, að karlinn vilji viðhalda hinum helgu véum fjölskyldunnar, þar sem föðurveldið - „patriarkið" - er viðurkennt að nafninu til, þótt konan haldi öll- um þráðum í hendi sér í reynd, og meira að segja konan er treg til að gefa upp virkið, þótt það byggi á sjálfsafneitun hennar og fórnfýsi, vegna þess að hún veit að karlaveldið er ófært um að taka við hlutverki hennar. Kaþólska kirkjan umlykur þetta allt saman og helgar með hefðum og heilagleika trúarinnar, sem hvílir eins og mara yfir öllum sam- an. Þversögnin er því sú, að bæði kyn, karlar og konur, snúa bökum saman um að verja virkið - fjölskylduna - fyrir áreiti og ásókn nýrra tíma, sem boða frelsun konunnar frá undirokun karlaveldis- ins. Kirkjan fordæmir hvort tveggja getnaðarvarn- ir og fóstureyðingar, og þar með frelsun konunn- ar frá hefðbundnu móðurhlutverki. Karlaveldið lokar dyrum sínum í stjórnmálum, stjórnsýslu og fyrirtækjum fyrir hinni frjálsu útivinnandi nútíma- konu, og konan sjálf hikar við að knýja þar dyra vegna þess að hún veit, hvað hún hefur, en ekki það sem hún hreppir. Niðurstaðan er „status quo“, óbreytt ástand, farg fortíðarinnar hvílir af öllum sínum þunga á herðum konunnar, sem heldur þessu þjóðfélagi uppi af fórnfýsi sinni - í nafni hins eilífa kvenleika. □ 28

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.