Sólskin - 01.07.1931, Blaðsíða 50
Ása.
(Vikivaki) Lag: Nú cr glatt í hverjum hól.
Ása brosir ung og blíð
eins og rós á vori,
hún er nett og hún er fríð,
hún er létt i spori.
Báran sér leikur við bleikan fjörustein.
Fagurt syngur fuglinn á grænni skógargrein
Ása stígur dansinn dátt
djörf með yndisþokka,
höfuðfatið ber hún blátt,
bjarta skin á lokka.
Báran sér leikur við bleikan fjörustein.
:,: Fagurt syngur fuglinn á grænni skógargrein
Allir sveinar Ásu þrá,
Ása er meyjaprýði,
stjörnuaugun blika blá,
— Bjart skín sól í víði —
Báran sér leilcur við bleikan fjörustein.
:,: Fagurt syngur fuglinn á grænni skógargrein
Ása, þú átt ást og vor
unaðsbjarta daga,
— ljúfur söngur, léttstíg spor —
lífs þíns verði saga.
Báran sér leikur við bleikan fjörustein.
:,: Fagurt syngur fuglinn á grænni skógargrein
48