Sólskin - 01.07.1931, Blaðsíða 58
Elgur flýr veiðimann.
Eitt af þeim skógardýrum Norður-Evrópu, sem sí-
fellt fer fækkaridi, er elgurinn. Hann er stórt dýr, stærri
en hestur, um 2 metrar á hæð um bógana, háfættur,
og fæturnir sterkir og stórar klaufirnar, kemur það sér
vel, þegar liann leggur leið sína um flóa og foræði,
sem lítt fært mundi öðrum dýrum. Hann á oft fót-
um sínum fjör að launa, þegar hann flýr undan klóm
rándýranna, eða kúlu veiðimannsins. Stundum snýr
hann móti óvini sínum, úlfum, gaupum o. fl. og bein-
hrýtur þau í einu höggi með framfótunum. Karldýrin
liafa stór horn, og falla þau af árlega, en kvendýrið
er kollótt. Hann er dökkgrár að lit nema fæturnir eru
ljósgráir. Elgir lifa af jurtafæðu, grasi, laufi og grein-
um og berki trjánna, einkum þykir þeim góður börk-
56