Sólskin - 01.07.1937, Blaðsíða 28
Þór: Þarna sé ég bæ norðan í Valhúshæð
niðri við sjóinn.
Finna: Það eru Mýrarhús, og skólinn, Mýrar-
húsabarnaskólinn, er ofar og nær, rétt við
veginn.
Þór: Já, ég sé hann líka. Hann er þó ekki al-
veg uppi á hæðinni. Hvað ætli hún sé há?
Finna: Valhúshæð er þrjátíu metra há yfir
sjávarflöt.
Ása: Ég sé líka bæi sunnan við hæðina.
Finna: Þar eru bæirnir: Bakki, Hrólfsskáli,
Melshús og Lambastaðir. Fleiri bæir eru í
kring um Valhúshæð, en ég held þa.ð séu
elstu og helstu býlin, sem við erum búin að
telja upp.
Teitur: 0g Eiði.
Finna: Já, Eiði, ekki megum við gleyma því.
Það er hérna megin við Valhúshæðina, norð-
ur við sjóinn. Nokkuru nær er Eiðistjörn.
Nesið er afar lágt þarna. Komið hefir fyrir,
að sjórinn hefir gengið alveg yfir það í af-
talía brimi.
ósk: Hve nær var það? é
Finna: Það var um 1800, og var kallað flóðið
mikla, þegar sjórinn gekk yfir nesið. Þá var
ófært á löngum kafla, svo ekki varð komist
út á Valhúshæð, hvorki gangandi eða ríðandi.
26
i