Sólskin - 01.07.1937, Blaðsíða 41
eyjar annars vegar, en Örfiriseyjar og Akur-
eyjar hins vegar. Liggur þar leið skipanna
inn á Reykjavíkurhöfn. Hólmarnir eru
tvær litlar eyjar á milli Akureyjar og hafnar-
garðsins vestari. Grynningar eru milli þeirra
og garðsins. Má stundum ganga þurrum fót-
um um f jöru í hólmann, sem nær er. S e 1 s k e r
eru skammt fyrir vestan Hólmana. Ekki veit
ég, hvort þið koroið auga á þau.
I>ór: Jú, ég held að ég sjái þetta allt.
Ása: Er þetta eyja eða svona stórt nes, þarna
skammt fyrir austan Viðey?
Finna: Það er Geldinganes. Og munar
litlu að það sé eyja. En þó tengir örlítill
grandi það við land. Fyrir norðan Geldinga-
nes eru L u n d e y og Þ e r n e y, en fyrir
austan það Leiruvogur, sem Leirvogsá, er renn-
ur um Mosfellssveit, fellur í. Þerney er byggð,
en Lundey ekki.
í>ór: Hvað heitir nesið fyrir norðan Leiru-
voginn ?
Finna: Það heitir Á1 f s n e s, og fyrir norð-
an það er Kollafjörður. Og þá er komið upp
undir Esju.
Ása: Mig langar til þess að vita, hvað stóra
nesið heitir, sem er fyrir vestan Esjuna.
Finna: Það heitir K j a 1 a r n e s. Fjörðurinn
39