Sólskin - 01.07.1937, Blaðsíða 53
Finna: Já, hún minnir þá á nýja vini, sem í
vændum eru.
Teitur: Þá búa þeir til hreiður.
Ása: Sofa fræin í moldinni yfir veturinn?
Finna: Þau sofa saklaus eins og lítil börn,
þangað til þau eru vakin, og móðirin góða gef-
ur þeim að drekka.
Ósk: Hvað gefur hún þeim að drekka?
Finna: Dögg, sem vætir moldina, og regn-
dropa, sem seytla gegnum hana. Og fræin
litlu fá svölun, eins og barn, sem lagt er á
brjóst.
Ósk: Hafa þau munn til að drekka með?
Finna: Nei, en þau sjúga næringuna gegnum
fræskurnið. Og þau anda að sér hlýjum vor-
blænum, sem um þau leikur.
ósk: Og þau anda þá líklega gegnum fræ-
skurnið, því ekkert nef hafa þau til að anda
með.
Ásta: Hvað gera fræin ?
Finna: Þau vaxa eins og öll börn, er hafa góða
umönnun, nóg að drekka og gott loft.
Teitur: Hvernig fara fræin að vaxa?
Finna: Fræskurnið er aðeins umbúðir eða
reifar, utan um lítið barn, barn jurtarinnar,
fræið. Þegar vorylurinn, hreini blærinn og
döggin hafa vakið þau af vetrarsvefni, og þau
51