Sólskin - 01.07.1937, Blaðsíða 89
Ása: Hvers vegna eru þær það?
Finna: Það er vegna þess, að lirfurnar alast
upp í vatni. Vorflugurnar verpa eggjum sín-
um á strá við vötn. Þegar lirfurnar koma úr
þeim, skríða þær ofan í vatnið. Þær búa til hús
úr jurtum, er þær búta sundur með bitkrók-
unum, og spinna saman, því að þær hafa
spunakirtil. Húsið er sívalt og opið í báða
enda. Lirfurnar skríða með það um botninn.
Teitur: Ég hefi séð vorflugulirfu í polli hjá
Nauthól. Húsið hennar var einn jurtastöngull
og það var alveg mátulega langt fyrir skrokk-
inn á henni.
Finna: Já, það hefir verið stöngull af brúsa-
k o 11 i, sem vex þar í mógröfunum og sumar
vorflugutegundir nota. Hér á landi eru kring-
um tíu tegundir af vorflugum.
Ösk: Ó! þarna hljóp b j a 11 a. Ég hélt, að hún
hefði skriðið ofan í skóinn minn.
Teitur: Það var j á r n s m i ð u r. Og þarna
kemur annar, og er gylltur.
Finna: Hann heitir g u 11 s m i ð u r.
Ása: Eru líka til bjöllur, sem heita trésmiðir?
Finna: Nei, en ein bjöllutegund er nefnd
h ú s a s m i ð i r, og hún finnst aðeins í híbýl-
um manna. En ég held, að hún sé ekki hér í
Reykjavík.
87