Sólskin - 01.07.1947, Blaðsíða 9
„Ég panta að eiga allt, sem er á milli þessa
steins hérna og stóra steinsins þarna“, sagði
Bára allt í einu. „Ég panta að eiga það allt
saman“.
„Svo“, sagði Benni með hægð. „Þá panta ég
að eiga allt, sem er fyrir utan steinana og allt
í kring um þá“.
Þá varð Bára dálítið sneypt. Því að óneitan-
lega hafði Benni snúið á hana. Það var miklu
meira, sem hann hafði eignað sér.
„Nei, sjáðu hvað ég fann“, kallaði Benni til
systur sinnar.
„Hvað er það?“ sagði Bára og mátti varla
vera að því að líta upp.
„Hörpudiskur“, sagði Benni himinlifandi.
„Hörpudiskur. Nei. sko, hvað hann er falleg-
ur. En skrýtinn. En veiztu hvaða skel ég vildi
helzt finna?“
„Nei, það veit ég ekki. Ég hugsa, að þú vild-
ir helzt finna hörpudisk. Hörpudiskar eru
skrautlegustu skeljar, sem hægt er að finna
hérna í fjörunni. En þú þarft ekki að hafa
fyrir því að leita að hörpudisk. Þú mátt eiga
þennan. Ég á tvo heima“, sagði Benni um leið
og hann rétti Báru hörpudiskinn.
7