Fréttablaðið - 03.12.2010, Blaðsíða 36
2 föstudagur 3. desember
núna
✽ ekki missa af
augnablikið
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Umsjón Sara McMahon og Álfrún Pálsdóttir Forsíðumynd Anton Brink
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Hallgrímsdóttir
sigridurh@365.is sími 512 5432 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
blogg vikunnar
Hreint og hvítt
Hönnunarbloggið www.
enmammas dag.com/weronica er
eins skandinavískt og þau gerast,
stútfullt af fallegum myndum af
rómantískum herbergjum.
Endurbætur
Bloggið www.jord-
gubbarmedmjolk.blog-
spot.com
er annað
sænskt
hönnunar-
blogg.
Bloggarinn
leyfir lesend-
um að fylgjast með endurhönnun
heimilis hennar en hún býr í gömlu
og fallegu húsi sem virðist helst
eiga heima í sögu eftir Astrid Lind-
gren. Húsið er tekið í gegn og er
afraksturinn skandinavísk krúttleg-
heit.
Sagan endalausa
Hin unga og efnilega Saga Sig-
urðardóttir stundar nám í tísku-
ljósmyndun í London. Á blogg-
síðu hennar www.saganendalausa.
blogspot.com má skoða það sem
stúlkan hefur verið
að taka sér fyrir
hendur á meðan
hún dvelur í borg-
inni. Skemmti-
legt blogg
með afskap-
lega falleg-
um mynd-
um sem
gaman er
að kíkja á.
SVARTKLÆDD Ofurfyrirsætan Kate
Moss kynnti nýtt ilmvatn sitt, Vintage
Muse, í verslunum Boots síðustu helgi.
Hún var smekkleg að vanda en skart-
aði nýrri hárgreiðslu.
Jóladagatal Norræna hússins
hóf göngu sína á miðvikudag-
inn og á hverjum degi fram að
jólum verða óvænt atriði í boði
jóladagatalsins.
Þetta er fjórða árið í röð sem
Norræna húsið býður upp á
slíka skemmtun og er markmið
jóladagatalsins að bjóða upp á
skemmtilega dagskrá fyrir jólin
án þess þó að jólin sjálf komi
við sögu. Fjöldi listamanna hefur
tekið þátt í daga talinu undanfar-
in ár og má þar helst nefna Björk,
Jón Gnarr, Sjón og Hjaltalín.
Í ár munu meðal annars Amiina,
Bloodgroup og Ómar Ragnarsson
koma fram en þó gestir vita hverj-
ir munu troða upp vita þeir ekki
hvenær.
Jóladagatalið fer fram á hverjum
degi klukkan 12.34.
Skemmtilegt jóladagatal fyrir fullorðna:
Kemur á óvart
Bloodgroup Hljómsveitin Bloodgroup er á meðal þeirra sem koma fram í Jóladagatali
Norræna hússins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
B
erglind Rósa Magnúsdóttir hefur hann-
að falleg barnaföt undir nafninu Beroma
frá því í byrjun þessa árs. Vörurnar hafa
slegið í gegn enda skemmtilegar og ein-
stakar.
Berglind Rósa lærði fatahönnun við Margrethe-
hönnunarskólann í Kaupmannahöfn og útskrifað-
ist þaðan árið 2003. Eftir útskrift ákvað hún að taka
sér hlé frá fatahönnuninni og flakka þess í stað um
heiminn. „Ég fékk svo sem nóg af fínum tilboðum
eftir útskrift en ég var orðin þreytt á náminu og
ákvað í staðinn að flytja til Spánar og Frakklands og
vinna á lúxushótelum,“ útskýrir Berglind en henni
bauðst meðal annars vinna við að hanna búninga
fyrir leikstjórann Lars Von Trier.
Berglind Rósa segir það hafa verið tilviljun að
hún hafi nú lifibrauð sitt af því að hanna barna-
föt. Upphaflega hafi hún aðeins ætlað að sauma
nokkrar flíkur á syni sína en það hafi fljótlega undið
upp á sig. „Þetta spurðist bara út og nú hef ég varla
undan við að sauma. En mér finnst þetta ofboðs-
lega skemmtilegt og nú er þetta orðin mín vinna
og mig langar að halda þessu áfram eins lengi og
ég get,“ segir hún.
Efnin sem Berglind Rósa notar hefur hún sankað
að sér í gegnum árin og mikið fær hún að gjöf frá
ömmum sínum og frænkum. „Með því að panta ekki
efni frá heildsölum tryggi ég það frekar að hver flík
sé einstök og mér finnst það svolítið skemmtilegt,“
útskýrir Berglind Rósa, sem er að vonum ánægð með
þessar góðu viðtökur sem Beroma hefur fengið.
Fötin eru fáanleg í versluninni Fiðrildinu í Reykja-
vík, Hrími á Akureyri, Húsi handanna á Egilsstöð-
um, í Svíþjóð og bráðlega verða þau einnig fáanleg
í Bandaríkjunum. Berglind Rósa verður einnig þátt-
takandi í Pop Up markaðinum sem fram fer í Hug-
myndahúsi háskólanna um helgina. - sm
Berglind Rósa Magnúsdóttir hannar falleg barnaföt:
Hafnaði Lars Von Trier
SKEMMTILEGT STARF Berglind Rósa Magnúsdóttir hannar barnaföt undir nafninu Beroma. Hún segir til-
viljun hafa ráðið því að hún fór að hanna barnaföt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FLOTT SAMSTARF Hljómsveitin Hjaltalín
hélt tónleika í sumar ásamt Sinfó og var fullt út
að dyrum. Tónleikarnir voru teknir upp og eru nú
komnir út í sérstakri hátíðarútgáfu undir heitinu
Alpanon. Flott plata sem vert er að kíkja á.