Fréttablaðið - 04.12.2010, Blaðsíða 66
4. desember 2010 LAUGARDAGUR2
vinnunni allan daginn á meðan ég
hakka í mig konfektið, en ég vona
að ég fái eitthvað gott á laugar-
dagskvöldið. Svo væri ég alveg til
í að skreppa á sýningu í Borgar-
leikhúsinu eftir matinn og sjá
Jesú litla, sem ég á alltaf eftir að
sjá. Ég held það sé alveg tilvalið
að fara á aðventunni og sjá þessa
sýningu með þessum frábæru
trúðum.“
Viðar á líka hundinn Drakúla,
þarf ekki að sinna honum um
helgina? „Jú, jú, jú. Hann
Drakúla litli sér um það að maður
fái hreyfingu. Honum finnst
gaman að fara í langar göngu-
ferðir og er eiginlega búinn að
merkja sér allan Fossvogsdalinn
og þykist eiga hann alveg skuld-
lausan, en þarf reglulega að
fara og endurnýja merkingarn-
ar. Hann er reyndar óskaplega
þægur og stilltur og auðveldur í
ferðum þannig að ég þarf ekkert
að vera á neinum hlaupum með
honum, en hann sér alfarið um
líkamsrækt mína.“
Hvað er svo á dagskránni á
sunnudaginn? „Á sunnudaginn
klukkan tvö ætla ég að hlusta
á tvö leikrit eftir Svein Einars-
son í Útvarpsleikhúsinu og á
meðan ætla ég að strauja tólf
skyrtur. Mér finnst svo óskap-
lega gott að strauja á meðan ég
hlusta á útvarpsleikrit. Útvarpið
er nefnilega öðruvísi en sjónvarp
sem tekur alla athyglina, það er
hægt að gera eitthvað í höndun-
um á meðan maður hlustar. Og
ég er ekki mikill hannyrðamað-
ur en alveg afskaplega góður í að
strauja.“
Annað sem Viðar stefnir að
á aðventunni er að hitta gamla
vini yfir kakóbolla á kaffihúsi og
fara á sem allra flesta tónleika.
„Aðventan er til þess að njóta
lestrar, tónlistar, leikhúss og sam-
skipta við vinina. Og ef þú hittir
gamlan vin sem þú hefur ekki séð
lengi yfir kakóbolla á aðventunni,
þá get ég lofað þér því að það
verður eins og sambandið hafi
aldrei rofnað.“
„Ómissandi hluti af aðventunni er að njóta góðs texta eftir afbragðshöfunda,“ segir
Viðar, sem ætlar að verja laugardeginum í að lesa aftur bestu kaflana úr bókunum
fimm sem tilnefndar eru í flokki fagurbókmennta til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
MYND/SIG. JÖKULL
Jólarósir Snuðru og Tuðru verða
sýndar að nýju í Tjarnarbíói á
morgun klukkan 16.
Leiksýningin Jólarósir Snuðru og
Tuðru sem er byggð á sögu eftir
Iðunni Steinsdóttur var fyrst á
dagskrá hjá Möguleikhúsinu fyrir
jólin 2001 og var sýnd í þrjú ár við
miklar vinsældir. Sýningin er nú
tekin upp að nýju með nýjum leik-
urum og verður fyrsta sýningin í
Tjarnarbíói klukkan 16 á morgun.
Leikstjóri upprunalegu sýningar-
innar var Bjarni Ingvarsson,
en umsjón með þessari endur-
uppsetningu hefur Pétur Eggerz,
sem einnig skrifaði leikgerðina.
Búninga hannaði Katrín Þorvalds-
dóttir og tónlist er eftir Vilhjálm
Guðjónsson. Leikarar eru Magnea
Björk Valdimarsdóttir og Aino
Freyja Järvelä.
Sýningin er miðuð við áhorfend-
ur á aldrinum tveggja til tíu ára og
miðaverð kr. 1.500 og miðapantan-
ir hjá miðasölu Tjarnarbíós, s. 527-
2102, midasala@tjarnarbio.is og á
midi.is. - fsb
Snuðra
og Tuðra í
Tjarnarbíói
Jólarósir Snuðru og Tuðru eru byggðar á
bókum Iðunnar Steinsdóttur.
Íbúar Voga og Vatnsleysustrandar
buðu grönnum sínum að njóta haust-
uppskerunnar með sér á sveitamark-
aði í september síðastliðnum. Að
þessu sinni verður sveitamarkaður-
inn með jólalegu yfirbragði en
meðal þess sem verður
á boðstólum eru jóla-
legar sultur, kæfa, rúg-
brauð og smákökur.
Einnig verða til sölu
húfur, dúkku rúmföt,
jólakransar og kerti
ásamt öðru handverki.
Boðið verður upp á
heitt súkkulaði og jóla-
glögg á sanngjörnu verði.
Markaðurinn er haldinn í hlöðu sem
stendur við bæinn Minni-Voga, Egils-
götu 8 í Vogum, og hefst hann stund-
víslega kl. 12 laugardaginn 4. desem-
ber.
Jólin í Hlöðunni
SVEITAMARKAÐUR HLÖÐUNNAR
Í VOGUM Á VATNSLEYSUSTRÖND
VERÐUR HALDINN Í DAG FRÁ KLUKKAN
12 TIL 17.
Ölgerðin opnar dyrnar fyrir gestum og gangandi í dag milli 13 og 15. Margt
spennandi verður í boði. Krakkar geta blandað sinn eigin safa eða gosdrykk,
hægt verður að fylgjast með framleiðslu á Egils appelsíni og síðan geta gestir
skoðað Borg Brugghús og smakkað á nýjustu bjórunum.
FULL BÚÐ AF NÝJUM VÖRUM!
20%
afsláttur
af öllum vörum
Jóla og útskriftarkjólarnir
frá New York og París komnir
Verð 16.990,-
m/afsl. 12.990,-
Verð 24.990,-
m/afsl. 19.990,-
Opið sunnudag frá kl. 13-16
SNILLDARJÓLAGJÖF 15%
Jólafsláttur af
þessum frábæru
hleðslutækjum
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRA SKÚBB
Meiri Vísir.
Framhald af forsíðu