Fréttablaðið - 07.12.2010, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 07.12.2010, Blaðsíða 16
 7. desember 2010 ÞRIÐJUDAGUR Starfsemi bandaríska sendiráðsins hér á landi er sambærileg við starfsemi annarra sendiráða um heim allan, þar á meðal íslenskra sendiráða erlendis. Internet og alþjóðavæðing hefur samt dregið úr mikilvægi upplýsinga frá sendiráðum. „Kannski leiðir þetta til þess að bandarískum sendiráðsstarfs- mönnum mun reynast ögn erfið- ara að ræða við embættismenn og ráðamenn hér,“ segir Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur um áhrifin, sem leki sendiráðsgagna á Wikileaks getur haft hér á landi. „Samt eiga þau sem tala við bandaríska sendiherrann hér á landi að gera sér grein fyrir því að þetta er allt fært til bókar og verður meira og minna opið eftir tuttugu til þrjátíu ár. Munurinn felst í tímasetningunni og menn vilja geta treyst því að það sem heitir trúnaðarsamtal sé trúnað- arsamtal.“ Guðni segir starfsemi sendiráða reyndar hafa breyst mikið síðustu áratugi. „Áður var þessi upplýsingaöfl- un miklu viðameiri, því oft var sendiráðið eina heimildin sem stjórnvöld í Washington höfðu um það sem var að gerast hér á landi. En með interneti og alþjóðavæð- ingu hefur það breyst mikið. Eftir stendur þó að diplómatar eru oft í þeirri aðstöðu að geta fengið við- töl við ráðamenn og álitsgjafa. Þeirra hlutverk er að veita ráða- mönnum og embættismönnum í heimalandinu upplýsingar og ráð- gjöf. Þeir gera það kannski misvel og hafa mismikil tök á því að kom- ast að kjarna málsins.“ Bandaríska sendiráðið hefur yfir mun meiri mannafla, fjárráðum og tækjabúnaði að ráða en til dæmis íslensku sendiráðin erlendis. Póstar sambærilegir skýrslum Bandarísku sendiráðspóstarnir eru engu að síður sambærilegir við skýrslur sendiherra Íslands erlendis eða annarra starfsmanna sendiráðanna, sem sendar eru heim til utanríkisráðuneytisins, eins og sjá mátti þegar nokkrar slíkar skýrslur voru birtar á vef íslenska utanríkisráðuneytisins í síðasta mánuði meðal annarra gagna varðandi stuðning Íslands við Íraksstríðið 2002-2003. Þar á meðal er bréf frá Helga Ágústs- syni sendiherra dagsett 14. apríl, 2003, þar sem Helgi skýrir frá kvöldverðarborði hjá Donald Rumsfeld: „Sendiherrahjón voru sl. laugar- dag meðal kvöldverðargesta Don- ald Rumsfeld, varnarmálaráð- herra og eiginkonu hans á heimili þeirra hjóna á Kalorama Road. Boðið var haldið fyrir fulltrúa þeirra ríkja sem eru á stuðnings- lista Bandaríkjanna vegna stríðs- ins við Írak.“ Í bréfinu segir Helgi að þau hjónin hafi átt góð samtöl við ráð- herrahjónin og aðra matargesti, þar á meðal Dick Cheney varafor- seta og Richard B. Myers, yfir- mann herráðs Bandaríkjanna. „Varnarmálaráðherrann þakk- aði Íslendingum hlýlega veittan stuðning,“ segir Helgi í bréfi sínu heim til íslenska utanríkisráðu- neytisins, en að öðru leyti er lítt fjallað um efni samræðna kvölds- ins. Öryggið fyrir bí Bandarísku sendiráðsskýrslurnar, sem Wikileaks kom höndum yfir, voru aðgengilegar á öryggisneti Bandaríkjahers, SIPRNet, sem haldið er aðgreindu frá almenna internetinu. Bandaríska varnarmálaráðu- neytið í Washington sér um rekst- ur þessa öryggisnets hersins, en eftir árásirnar á Bandaríkin haust- ið 2001 var ákveðið að gera aðgang að þessu neti opnari en áður til þess að auðvelda upplýsingamiðl- un um öryggismál. Meðal annars var æ fleiri sendiráðum Banda- ríkjanna veittur aðgangur að neti hersins, og um leið fékk herinn aðgang að því efni sem sendiráð- in um heim allan sendu utanríkis- ráðuneyti Bandaríkjanna í Wash- ington. Þetta var gert meðal annars vegna þess að skortur á aðgengi upplýsinga var talinn eiga sinn þátt í því að ekki tókst að koma í veg fyrir hryðjuverkin 11. sept- ember jafnvel þótt sumar leyni- þjónustustofnanir hafi haft í fórum sínum upplýsingar sem hugsanlega hefðu getað komið stjórnvöldum á sporið í tæka tíð. Nú á að stíga þessi skref til baka, og takmarka aðgengi að netinu á ný. Utanríkisráðuneyti Bandaríkj- anna brást skjótt við og aftengdi sendiráðspóstana frá neti hers- ins og Hvíta húsið boðaði allsherj- ar endurskoðun á öryggismálum í tengslum við upplýsingar í stjórn- sýslunni. Sú endurskoðun tekur hins vegar tíma og nokkur ár geta liðið þang- að til Bandaríkin hafa komið sér upp nýju upplýsinganeti, sem er nægilega öruggt en kemur þó upp- lýsingum þangað sem þær þurfa að berast. WIKILEAKS: Hverju breytir lekinn? Guðsteinn Bjarnason gudsteinn@frettabladid.is Guðrún Ögmundsdóttir og Einar Kárason lesa úr bókum sínum. Léttar veitingar í boði. Félagsmenn, takið með ykkur gesti. Jólagleði 60+ Miðvikudaginn 8. desember kl. 17–19 að Hallveigarstíg 1, 2. hæð. xs.is60+ í Samfylkingunni í Reykjavík Verð frá kr.: 162.500 Elica háfar Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur Platinum, Isobella, Twin, Wave og Grace háfar á tilboði* glæsileg hönnun og fágað yfirbragð Samræður við sendiráð verða sjálfsagt erfiðari SENDIRÁÐ BANDARÍKJANNA Skýrslur sendiráðsins til stjórnvalda í Washington hafa verið á öruggu neti Bandaríkjahers undanfar- in ár, en á því er nú orðin breyting. GUÐNI TH. JÓHANNESSON Allt er fært til bókar og verður hvort eð er aðgengilegt eftir fáa áratugi. Tryggjum öllum börnum gleðileg jól Taktu þátt í Pakkajólum Bylgjunnar við jólatréð í Smáralind Við óskum öllum gleðilegra jóla Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði á 120 stöðum um land allt. Nánari upplýsingar á visir.is/dreifing

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.