Fréttablaðið - 07.12.2010, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 07.12.2010, Blaðsíða 30
 7. desember 2010 ÞRIÐJUDAGUR22 timamot@frettabladid.is Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, Sveinn Sæmundsson, Hjúkrunarheimilinu Eir, áður til heimilis að Lyngholti 15, Reykjanesbæ, lést laugardaginn 4. desember. Júlíana Sveinsdóttir Vilhjálmur Sveinsson Hulda Fríða Berndsen Sveinn Daði Einarsson Þórhildur Önnudóttir Berglind Anna Einarsdóttir Ísak Vilhjálmsson Lilja Torfadóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, Sigríður Theódóra Pétursdóttir, Lágholti 21 Stykkishólmi, sem lést 1. Desember s.l. verður jarðsunginn frá Stykkishólmskirkju föstudaginn 10. Desember kl 14.00. Eggert Bergmann Halldórsson Særún Sigurðardóttir Þórir Halldórsson Þórkatla Kristín Valþórsdóttir Erla Halldórsdóttir Ívar Sigurður Kristinsson Gyða Stefanía Halldórsdóttir Ævar Karlsson og barnabörn Elsku móðir okkar, tengdamóðir og amma, Úlla Þormar Geirsdóttir Árdal, Lindarsíðu 2, Akureyri, lést á Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri 1. desember sl. Hún verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju, fimmtudaginn 9. desember kl. 13.30. Kristín Árdal Friðrik Jósepsson Geir Árdal Margrét Bjarnadóttir Tómas Árdal Selma Hjörvarsdóttir Páll Hallfreður Árdal Ólöf Kristín Stefánsdóttir Álfheiður Árdal og barnabörn. Ástkæra mamma, tengdamamma, amma og langamma, Hólmfríður Guðlaug Jónsdóttir, fyrrverandi sendiherrafrú, Þorragötu 5, Reykjavík, sem lést sunnudaginn 28. nóvember, verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 9. desember kl. 13.00. Bergljót K. Ingvadóttir Einar Kr. Guðmundsson Guðfinna Anna Guðni Grétar Ástríður Guðrún Hólmfríður Guðlaug Ingvi Ágústsson Þórhildur Sif Þórmundsdóttir Ingvi Sigurður Þór Trausti Ágúst Örn Okkar ástkæri sonur, bróðir og mágur Hannes Ragnarsson Klapparhlíð 24, Mosfellsbæ lést á Landspítalanum 30.nóvember. Jarðaförin fer fram í Fossvogskirkju miðvikudaginn 8.desember kl.13:00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarstofnanir. Guðbjörg K. Hannesdóttir, Kristín Ó. Ragnarsdóttir Friðgeir Guðnason Magnea Ragnarsdóttir Þórir Lárusson Jakob Ragnarsson Margrét Halldórsdóttir Þorbjörg Ragnarsdóttir Karl Sigurðsson Sigurjón Ragnarsson Hrönn Ásgeirsdóttir Ingibjörg Ragnarsdóttir Valgarður Guðmundsson Sigrún Ragnarsdóttir Árni Freyr Jónsson. ÓLAFÍA HRÖNN JÓNSDÓTTIR leikkona er 48 ára í dag. Það er stundum dálítil áhætta að taka þátt í gríni. Það er eins og að henda sprengju, þú veist ekki hvort hún virkar eða virkar ekki. Merkisatburðir 1431 Hinrik VI. Englandskonungur er krýndur konungur Frakk- lands í París. 1881 Minnisvarði um Jón Sigurðsson forseta er afhjúpaður á gröf hans í Hólavallakirkjugarði í Reykjavík að viðstöddu miklu fjölmenni. 1933 Í fyrsta sinn er útvarpað miðilsfundi í Ríkisútvarpinu. Þar kemur fram Lára miðill og mælir fyrir munn margra framlið- inna. 1936 Í Bjarneyjum á Breiðafirði rignir skyndilega síld og er talið að skýstrókur hafi náð að sjúga upp síldina er hann átti leið yfir sjó. 1941 Japanar ráðast á Perluhöfn og draga þannig Bandaríkin inn í síðari heimsstyrjöldina. 1980 Golfklúbburinn Kjölur er stofnaður í Mosfellsbæ. Sameinuðu þjóðirnar eru alþjóðasamtök stofn- uð árið 1945 til að koma í veg fyrir stríð í fram- tíðinni vegna sameiginlegra öryggishagsmuna aðildarríkja. Alls eru aðildarríki að Sameinuðu þjóðunum 192 talsins og funda þau reglulega um málefni er varða samtökin í höfuðstöðvum þess í New York. Ísland hefur verið aðildarríki frá árinu 1946. Nítján árum frá stofnun Sameinuðu þjóðanna tóku þau upp sérstakan fána, nánar tiltekið 7. desember árið 1964. Fáninn sýnir kort af jörðinni með norðurpól í miðju en það á að sýna hversu afstæð miðja hennar er. Bakgrunnurinn er blár og merkir himininn sem allir jarðarbúar sjá sömu augum og einnig ólífugreinar, sem ásamt hvíta litnum á jörðinni og greininni eru friðartákn. Við þetta má bæta að valdamesti embættismaður Sameinuðu þjóðanna er aðalritari samtakanna. Suður-Kóreumaður- inn Ban Ki-moon hefur gegnt því embætti frá 1. janúar 2007. Heimild: www.wikipedia.org ÞETTA GERÐIST: 7. DESEMBER 1964 Sameinuðu þjóðirnar taka upp fána „Mér þykir virkilega vænt um þessa viðurkenningu,“ segir Harpa Dís Harðardóttir um hvatningarverðlaun Öryrkjabandalags Íslands 2010 í flokki einstaklinga. Þau hlaut hún fyrir metn- aðarfullt hugsjónastarf við gerð orlofs- húss með góðu aðgengi fyrir fatlað fólk svo og áralanga baráttu fyrir réttind- um fatlaðra. Harpa Dís býr í Björnskoti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Hún er skóg- fræðingur að mennt og starfar hjá Suðurlandsskógum sem svæðisstjóri í Árnessýslu. Auk þess situr hún í sveit- arstjórn í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og er stjórnarmaður í Þroskahjálp. Það eru opinberu störfin. Hún er líka hús- freyja og móðir. Meðal annars á hún tvö fötluð börn, stúlku fædda 1990 og dreng fæddan 1994. „Stelpan mín er í stórum hjólastól og ósjálfbjarga og ég var búin að reyna á eigin skinni að það eru engin orlofs- hús á landinu sem fatlað fólk gat nýtt sér. Hjólastóll kemst hvergi inn á bað- herbergin eða það vantar sjúkrarúm. Fatlaðir þurfa svo mikið pláss og góða aðstöðu. Þannig að mér datt í hug að stinga upp á að Þroskahjálp á Suður- landi gerði ýmsar endurbætur á húsi sem þau samtök hafa átt í tæp þrjátíu ár við Lambhaga á Selfossi og gerði það að aðlaðandi orlofshúsi fyrir fatl- aða. Það var gert og húsið var upppant- að í allt sumar, þannig að það var virki- leg þörf fyrir það. Við auglýstum það líka á landsvísu hjá öllum hagsmuna- samtökum fatlaðra einstaklinga. Það stendur þeim öllum til boða.“ Harpa Dís segir foreldra fatlaðra barna á svæðinu hafa komið á fót þjón- ustu við fötluð börn í húsinu þegar það var keypt á sínum tíma. „Foreldrarnir unnu merkilegt starf. Svo gerðist það að ríkið yfirtók reksturinn og fékk húsið til afnota en flutti sína starfsemi úr húsinu árið 2007 þannig að Þroska- hjálp tók við því aftur. Húsið var því tilvalið til notkunar fyrir fatlað fólk að mörgu leyti, það þurfti bara að gera vissar endurbætur, innrétta upp á nýtt að hluta og útvega það sem til þurfti.“ Í ítarefni sem Öryrkjabandalagið sendi fjölmiðlum vegna hvatningar- verðlaunanna kemur fram að Harpa Dís og hennar fjölskylda hafi unnið ómælda sjálfboðavinnu við breyting- ar á húsi Þroskahjálpar. Þegar það atriði er borið undir Hörpu Dís segir hún: „Við viljum halda kostnaðinum í lágmarki til að sem flestir hafi efni á að dvelja í húsinu. Það er alltaf stutt í ungmennafélagsandann hjá mér enda tel ég að við sköpum sjálf samfélagið sem við búum í og getum ekki alltaf krafist alls af öðrum. Ég hef því alltaf verið fús til að vinna sjálfboðavinnu í þágu góðra mála.“ gun@frettabladid.is HARPA DÍS HARÐARDÓTTIR: HLAUT HVATNINGARVERÐLAUN ÖBÍ 2010 Notalegt að fá klapp á bakið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.