Fréttablaðið - 09.12.2010, Blaðsíða 6
6 9. desember 2010 FIMMTUDAGUR
DÓMSMÁL Tveir ungir menn, átján
og nítján ára, hafa verið ákærðir
fyrir tilraun til brennu og brots
gegn valdstjórninni fyrir Héraðs-
dómi Vesturlands. Þeir voru hand-
teknir í Borgarnesi í lok nóvem-
ber í fyrra eftir að hafa kastað
bensín sprengjum í lögreglustöð
bæjarins til að reyna að frelsa vin
sinn úr haldi.
Piltarnir höfðu verið á dansleik
fyrr um kvöldið og lent þar í orða-
skaki við lögreglu eftir að ódæll
félagi þeirra var handtekinn.
Hann hafði í ölæði ógnað fólki
með hafnaboltakylfu. Samkvæmt
ákæru fóru þeir í kjölfarið og
útbjuggu bensínsprengju með því
að fylla áfengisflöskur af bensíni
og troða tuskum niður í flösku-
hálsinn. Sprengjunum köstuðu
þeir logandi í lögreglustöðina.
Önnur brotnaði, en eldurinn læsti
sig ekki í húsið.
Í ákæruskjali segir að atlagan
„hefði getað leitt til eldsvoða sem
hefði haft í för með sér almanna-
hættu með miklum skemmdum
eða eyðileggingu á húsnæðinu,
ef eldur hefði náð að breiðast út,
en hending ein réði því að svo var
ekki“.
Þrátt fyrir að piltarn-
ir hafi ráðist að húsinu í
því skyni að frelsa mann
úr haldi var húsið mann-
laust, enda hafði félagi
þeirra verið fluttur með
lögreglubíl til Reykja-
víkur þegar í ljós kom
að hann var eftirlýst-
ur þar. Þetta höfðu þeir
hins vegar ekki hug-
mynd um. Fjórir voru
upphaflega handteknir
vegna málsins en sem
fyrr segir eru einung-
is tveir ákærðir. - sh
Tveir ungir piltar eiga fangelsisvist yfir höfði sér fyrir að bregðast of harkalega við handtöku félaga síns:
Ákærðir fyrir sprengjuárás á lögreglustöð
FRÉTTIN FRÁ
28. NÓVEMBER
„Sem betur
fer er þetta
rammbyggt
steinhús þannig
að við fuðrum
nú ekki svo glatt
upp,“ lét Theódór
Þórðarson yfirlög-
regluþjónn hafa
eftir sér þegar málið
kom upp.
FJARLÆGÐ EFTIR KATRÍNU SIGURÐARDÓTTUR
Allur ágóði sölunnar rennur óskertur
til starfs í þágu fatlaðra barna og ungmenna.
STYRKTARFÉLAG LAMAÐRA OG FATLAÐRA
SÖ
LU
TÍ
M
A
BI
L
4.
-1
8.
D
ES
EM
BE
R
Út
sö
lu
st
að
ir
á
k
ae
rle
ik
sk
ul
an
.is
BETRI BORG
f y r i r a l l a
Flutningur málefna fatlaðra frá
ríki til sveitarfélaga
Opinn fundur mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar
þann 10. desember kl. 08.30–09.45 í Tjarnarbíó.
DAGSKRÁ
08.30 Setning 62. fundar mannréttindaráðs
Reykjavíkurborgar
Margrét K. Sverrisdóttir
formaður mannréttindaráðs
08.35 Næsti kafli
Steinunn Sigurðardóttir
fatahönnuður
08.45 Fatlað fólk eða fatlað samfélag?
Embla Ágústsdóttir
varaformaður í stjórn NPA-miðstöðvarinnar
09.00 Mannréttindi — aukin tækifæri geðfatlaðra
í nærsamfélagi
Jóna Rut Guðmundsdóttir
verkefnastjóri á skrifstofu velferðarsviðs
Reykjavíkurborgar
09.15 Fyrirspurnir og umræður
09.45 Fundarslit
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir
Boðið verður upp á morgunverð
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
STÝRÐU UMRÆÐUNNI Í ÁTT TIL ÞÍN
Meiri Vísir.
WIKILEAKS Kevin Rudd, utanríkis-
ráðherra Ástralíu og fyrrverandi
forsætisráðherra, segir Banda-
ríkjastjórn sjálfa bera ábyrgð á því
að samskiptakerfi Bandaríkjahers,
sem átti að vera öruggt, reyndist
ekki vera nægilega öruggt.
Ábyrgðin sé engan veginn á
herðum Julians Assange, stofn-
anda Wikileaks sem þessa dagana
birtir hvert leyniskjalið á fætur
öðru frá bandarískum sendiráð-
um víðs vegar um heim.
„Ég tel að spyrja megi um það
hvort öryggiskerfi þeirra hafi
verið nægilega traust og hvaða
aðgang fólk hafði að þessu efni
yfir langt tímabil,“ sagði Rudd.
„Meginábyrgðin, og þar með
lagaleg ábyrgð, hvílir á þeim ein-
staklingum sem bera ábyrgð á
þessum upphaflega leka í heim-
ildarleysi.“
Þessi afstaða Rudds stangast
nokkuð á við yfirlýsingar Júlíu
Gillard forsætisráðherra, sem
tók við af Rudd í júlí eftir að hafa
steypt honum af leiðtogastóli
Verkamannaflokksins.
Hún sagði Wikileaks-birtingarn-
ar „gróflega ábyrgðarlausar“, en
tók reyndar fram eins og Rudd að
birting skjalanna hefði ekki orðið
möguleg ef lög hefðu ekki verið
brotin í Bandaríkjunum.
Áströlsk stjórnvöld eru enn að
skoða hvort Assange hafi með ein-
hverjum hætti gerst brotlegur við
áströlsk lög.
Assange var handtekinn í Lond-
on á þriðjudag og verður í varð-
haldi meðan framsalsmál hans
er til afgreiðslu í breska dóms-
kerfinu. Sænsk stjórnvöld vilja
fá hann framseldan til Svíþjóðar
vegna ásakana um kynferðisbrot,
en Assange hefur mótmælt fram-
salsbeiðninni.
Hann hefur ekki verið formlega
ákærður, en kærur hafa verið lagð-
ar fram og saksóknari vill fá hann
KJÖRKASSINN
Ætlar þú að eyða minna í jóla-
gjafir í ár en í fyrra?
Já 67,7%
Nei 32,3%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefur þú dregið úr akstri á
árinu vegna hækkandi bensín-
verðs?
Segðu þína skoðun á visir.is
Rudd segir sektina
vera Bandaríkjanna
Julian Assange bíður úrskurðar breskra dómstóla um framsal til Svíþjóðar.
Utanríkisráðherra Ástralíu segir að öryggiskerfi Bandaríkjanna hafi brugðist. Þar
sé hin eiginlega ábyrgð lekans, en ekki hjá stofnanda Wikileaks sem birtir skjölin.
UPPLJÓSTRUNARSÍÐAN WIKILEAKS Tölvuþrjótar hafa tekið höndum saman um að ráðast á fyrirtæki sem hafa neitað Wikileaks
um þjónustu. NORDICPHOTOS/AFP
Assange er ásakaður fyrir brot gegn tveimur konum og eru þau sögð hafa átt
sér stað í ágúst síðastliðnum þegar Assange dvaldist um tíma í Svíþjóð vegna
ráðstefnu sem þar var haldin.
Bæði breskir og sænskir fjölmiðlar hafa kafað ofan í þessar ásakanir, rætt við
ýmsa heimildarmenn og dregið upp ítarlega mynd af því sem á að hafa gerst.
Assange kom til Stokkhólms 11. ágúst og fékk að gista í íbúð konu sem var
fjarverandi en starfaði með samtökunum sem héldu ráðstefnuna. Hún kom síðan
heim degi fyrr en til stóð og leyfði Assange að gista eina nótt í viðbót.
Assange ber ekki á móti því að hafa sofið hjá henni þá um nóttina, og þeim
ber saman um að smokkur hafi brugðist. Náin kynni þeirra héldu samt áfram
með hléum í nokkra daga.
Á ráðstefnunni, sem haldin var á laugardegi, daginn eftir að fyrri konan kom
heim í íbúðina sína, kynntist Assange annarri konu. Sú var frá Jönköping og tveim-
ur dögum síðar, á mánudegi, fóru þau saman til Jönköping þar sem þau sváfu
saman, og þeim ber báðum saman um að þá hafi verið notaður smokkur.
Um morguninn virðist sem Assange hafi aftur haft samfarir við hana, að þessu
sinni án smokks og að því er virðist meðan hún var sofandi eða hálfsofandi. Þau
skildu engu að síður í góðu og ákváðu að hafa samband áfram.
Daginn eftir ræddu konurnar tvær, sem höfðu hist á ráðstefnunni, hins vegar
saman og virtust báðar komnar með bakþanka, höfðu áhyggjur af þungun eða
kynsjúkdómum og gengu á fund lögreglunnar í Stokkhólmi undir lok vikunnar þar
sem þær báðar lögðu fram kærur.
Atburðirnir í Svíþjóð
Í sænskum lögum er gerður greinarmunur á þremur afbrigðum nauðgunar eftir
því hve alvarlegt brotið þykir vera. Alvarlegasta gerðin felur í sér gróft ofbeldi og
liggur við því allt að tíu ára fangelsisdómur.
Þar á eftir er nauðgun, sem vissulega felur í sér ofbeldi en þó ekki jafn gróft. Við
þess konar nauðgun liggur allt að sex ára fangelsi.
Loks er hægt að ákæra fyrir „ólögmæta þvingun“, sem er vægasta afbrigðið
en getur engu að síður haft í för með sér allt að fjögurra ára fangelsisdóm. Þetta
afbrigði nauðgunar getur til dæmis falist í því að settur sé andlegur eða tilfinninga-
legur þrýstingur á fórnarlambið til að þvinga það til kynmaka.
Þrjú afbrigði nauðgunar
til yfirheyrslu áður en ákvörðun
verður tekin um ákæru.
Sænsk lög um kynferðisbrot eru
strangari en í flestum öðrum lönd-
um, þannig að Assange gæti reynst
erfitt að komast undan þeim. Á
fréttasíðum breska útvarpsins
BBC segir að lögfræðingar gant-
ist stundum með að menn þurfi að
fá skriflegt leyfi áður en stofnað
er til kynmaka.
gudsteinn@frettabladid.is
Önnur konan
Sakaður um vísvitandi áreitni
Sakaður um kynferðislega áreitni - neitaði
að nota smokk
Sakaður um ólögmæta þvingun - hélt
henni niðri
Hin konan
Sakaður um nauðgun - hafði samfarir við
hana án smokks þegar hún var sofandi
Ásakanirnar