Fréttablaðið - 09.12.2010, Blaðsíða 22
22 9. desember 2010 FIMMTUDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Hvernig gengur rekstur nýju bankanna?
Viðskiptabankarnir þrír
sem féllu fyrir rétt rúmum
tveimur árum eru að taka
við sér. Tekjur af reglulegri
starfsemi hafa aukist en eft-
irspurn eftir lánsfé er lítil.
Forstjóri bankasýslu ríkis-
ins segir bankana verða að
samræma uppgjör sín.
Viðskiptabankarnir þrír högnuð-
ust samtals um 35 milljarða króna
á fyrstu níu mánuðum ársins.
Þriðji ársfjórðungur var bönkun-
um erfiður; hann einkenndist öðru
fremur af tengdum málum; óvissu
um útreikning á gengistryggðum
lánum eftir dóm Hæstaréttar í júní
og úrlausn á skuldavanda heim-
ilanna, og setti skarð í rekstrar-
niðurstöðu þeirra.
Afkomutölur bankanna sýna
ástandið öðru fremur. Ætla má að
hagnaður þeirra þriggja hafi numið
rétt rúmum 1,4 milljörðum króna að
meðaltali á mán-
uði frá janúar til
júníloka sem er
sambærilegur
meðalhagnaður
á mánuði og í
fyrra. Á þriðja
ársfjórðungi var
meðalhagnaður
bankanna um
fjögur hundruð
milljónum krón-
um minni að meðaltali á mánuði til
loka september, en á fyrsta árshelm-
ingi.
Léleg afkoma í fyrra
Í fyrsta mati Bankasýslu ríkisins í
júlí kom fram að bankakerfið væri
enn of stórt og arðsemi Arion banka
og Landsbankans væri langt undir
því sem undir venjulegum kringum-
stæðum sé krafist. Þá kom fram að
þótt hagnaður bankanna hafi numið
51 milljarði króna í fyrra skrifist
stór hluti af tekjum þeirra á end-
urmat á bókfærðu virði eigna við
yfirfærslu frá gömlu bankanna til
þeirra nýju. Færslan fór fram með
töluverðum „afslætti“ frá bókfærðu
virði.
Áhrifin komu skýrt fram í upp-
gjöri Landsbankans í fyrra auk
þess sem gengisbreytingar höfðu
neikvæð áhrif á afkomu bankans.
Gengissveiflur höfðu jákvæð áhrif
á afkomu Arion banka og Íslands-
banka.
Bankarnir skríða saman eftir hrun
ELÍN JÓNSDÓTTIR
Jón Aðalsteinn
Bergsveinsson
jab@frettabladid.is
Staðan að batna
Elín Jónsdóttir, forstjóri Banka-
sýslu ríkisins, segir rekstur bank-
anna hafa batnað verulega á fyrri
hluta árs. Vísbendingar eru um að
sú þróun muni halda áfram til ára-
móta. „Arion virðist halda sínu
striki en Landsbankinn átt erfiðari
þriðja ársfjórðung,“ segir hún.
Bankasýslan hefur pælt sig í
gegnum uppgjör bankanna frá ára-
mótum til septemberloka og skoðað
grunnrekstur þeirra í samanburði
við síðasta ár. Niðurstaðan er sú
að afkoma bankanna af regluleg-
um rekstri hefur batnað verulega
hjá þeim bönkum sem verst stóðu í
fyrra á meðan rekstur Íslandsbanka
virðist í jafnvægi.
Stoðirnar styrkari
Eins og áður sagði setti Bankasýslan
varnagla við arðsemi bankanna af
reglulegum rekstri. Lægst var arð-
semin hjá Landsbankanum í fyrra
en mest hjá Íslandsbanka.
Arðsemi Íslandsbanka í fyrra
stakk í stúf og gerir enn. Elín bend-
ir á að ekki hafi orðið mikil leiðrétt-
ing eftir að tillit var tekið til óreglu-
legra liða og endurmats eigna. „Það
skýrðist að einhverju leyti af því
hvernig vaxtatekjur eru reikn-
aðar. Þetta eru áhrif af mismun-
andi samningum við sölu á eignum
gömlu og nýju bankanna,“ segir hún
en bætir við að bankarnir sem eigi
að koma undan uppstokkun fjár-
málageirans verða að vera traust-
ir og öflugir. Það sé eina leiðin til
að tryggja að þeir geti miðlað fjár-
magni með hagkvæmum hætti.
Elín bendir á að áhrif af endur-
mati eigna gæti enn í töluverðum
mæli. Hjá Íslandsbanka kemur það
m.a. fram í miklum vaxtamun, sem
var 5,7 prósent, eða rúmum 110 pró-
sentum hærri en hjá Landsbankan-
um. Þessi mikli munur veldur því
meðal annars að arðsemi Íslands-
banka er mun hærri en hinna bank-
anna þrátt fyrir hátt eiginfjárhlut-
fall, en hátt eiginfjárhlutfall geri
bönkum alla jafna erfiðara um vik
að halda uppi hárri arðsemi.
„Há arðsemi þarf ekki að koma
á óvart. Þegar bankar hafa verið
endurreistir eða stofnaðir á grunni
gamalla banka, eignasafn fært á
milli þeirra og mikið afskrifað á
meðan óvissa ríkir um verðmæti
þess þá er ekki óeðlilegt að sjá mikla
arðsemi,“ segir hún og bætir við að
það segi þó ekki mikið um rekstur-
inn sjálfan.
Elín telur að áhrifanna af eigna-
tilfærslunni geti gætt í uppgjör-
um bankanna enn um sinn þótt þau
muni hafa lítið að segja um rekstur
þeirra til lengri tíma litið.
Óskýr og misjöfn uppgjör
Þeir sem rætt hefur verið í tengsl-
um við málið segja uppgjör bank-
anna óskýr og erfitt að átta sig á
þeim.
Bankastjórarnir þrír, þau
Höskuldur H. Ólafsson, banka-
stjóri Arion banka, Birna Einars-
dóttir, bankastjóri Íslandsbanka,
og Steinþór Pálsson, bankastjóri
Landsbankans, taka undir þetta.
Þau benda í grófum dráttum á
að samningar um kaup á eignum
gömlu bankanna séu misjafnir og
gefi því nokkuð skakka mynd af
afkomunni. Ljúka verði við endur-
skipulagningu lánasafna, bæði til
heimila og fyrirtækja, og hreinsa
eignir út úr efnahagsreikningi
bankanna áður en hægt verði að sjá
nokkuð hreinræktaðan efnahags-
reikning. Þau telja öll fyrstu vís-
bendingarnar sjást um mitt næsta
ár. Hugsanlega ljúki ekki vinnunni
fyrr en undir lok árs 2013. Allt
fer þetta eftir því hvort viðskipta-
vinir bankanna hafa nýtt sér þau
greiðsluúrræði sem staðið hafa til
boða eður ei. Reikna má með að
úrræðin tefji fyrir.
Elín segir æskilegt að bank-
arnir greini á milli áhrifanna af
endur mati á yfirteknu eignasafni
og hvað tilheyri afkomu af reglu-
legum rekstri.
„Bankar eru flókin fyrirtæki en
upplýsingagjöfin þarf ekki endilega
að vera það. Ég held að bæta megi
upplýsingagjöfina,“ segir Elín og
áréttar að í nágrannalöndunum birti
fjármálafyrirtæki mjög greinar-
góðar upplýsingar. Þótt það eigi við
skráð fyrirtæki megi nýta tækifær-
ið nú til að til að gera upplýsingar
íslenskra banka jafn góðar.
„Þetta eru miklir breytinga tímar
og sennilega engin forskrift að
þeim hjá bönkunum. En ég held að
við ættum að vera að fikra okkur
að því að þetta verði samanburðar-
hæfar upplýsingar.“
Í bönkunum (eins og öðrum félögum) liggur fjármagn sem hluthafar hafa lagt
fram. Í almennum rekstri (ekki góðgerðafélögum) vilja hluthafar að jafnaði
ávaxta fé sitt og vænta þess jafnvel að fá betri ávöxtun yfir lengri tíma en
skuldabréfaeigendur, þar sem áhætta þeirri er meiri. Ávöxtun banka er ýmist
tekin út í formi arðgreiðslu eða með endurfjárfestingu í félaginu. Verðmæti
eignarhluta hluthafa ætti þá að aukast. Ríkið hefur lagt 135 milljarða króna
sem hlutafé í bönkunum (122 milljarða í Landsbankann, 9,9 milljarða í Arion
Banka og 3,25 milljarða í Íslandsbanka). Ríkið hefur sett það fram sem eitt af
meginmarkmiðum sínum með eignarhaldi í fjármálafyrirtækjum að fá arð af
því fé sem það hefur lagt í bankana. Þá þurfa bankarnir sömuleiðis að vaxa í
takt við hagkerfið. Ef enginn er vöxtur eigin fjár bankanna er hætt við að þeir
geti ekki lánað út fé og leita lántakar því annað.
Af hverju þurfa bankar að skila hagnaði?
Ég vil hjálpa með 100 krónum á mánuði.
Ég skrái mig með SMS- skilaboðunum FHI í síma 1900 og eftir það
styrki ég Fjölskylduhjálp Íslands með 100 krónum á mánuði.
Viðkomandi fær svo sent eitt SMS á mánuði sem kostar 100 krónur
sem færist á símareikning um hver mánaðarmót.
Öll símafyrirtækin gefa sína þjónustu.
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
A
T
A
R
N
A
Hrærivél
MUM 4405
Vélin sem hefur
verið elskuð og
dáð í íslenskum
eldhúsum
í áraraðir.
Jólaverð:
22.900 kr. stgr.
(Fullt verð: 28.900 kr.)
fyrir
Afkoma bankanna og nokkrar lykiltölur*
Liður Arion banki Íslandsbanki Landsbanki
2009 2010** 2009 2010** 2009 2010**
Hagnaður 12,9 8,9 24,0 13,2 14,3 12,9
Heildareignir 757,3 819,7 717,3 714,8 1.061,1 1.085,5
Eigið fé 90,0 102,6 92,1 105,2 157,6 170,5
Vaxtamunur 1,7% 3,0% 4,7% 5,7% 1,4% 2,7%
Arðsemi eigin fjár 10,0% 10,4% 30,0% 17,6% 10,0% 10,9%
- af reglulegum rekstri 3,8% 12,4% 28,7% 25,8% 2,4% 6,8%
- af kjarnarekstri 7,9% 12,3%*** 32,5% 26,0%*** 6,4% 8,5%***
Eiginfjárhlutfall 13,7% 18,1% 19,8% 22,6% 15,2% 17,3%
* Allar tölur eru í milljörðum króna ** Við lok þriðja ársfjórðungs *** Í lok júní
Arðsemi bankanna
árið 2009 og fram yfir þriðja ársfjórðung 2010
■ 2009
■ 2010*
■ 30.9.2010
40
35
30
25
20
15
10
5
%
Ar
ðs
em
i
Kj
ar
na
ar
ðs
em
i
Ar
ðs
em
i r
eg
lu
le
gs
re
ks
tra
r
Ar
ðs
em
i
Kj
ar
na
ar
ðs
em
i
Ar
ðs
em
i r
eg
lu
le
gs
re
ks
tra
r
Ar
ðs
em
i*
*
Kj
ar
na
ar
ðs
em
i
Ar
ðs
em
i r
eg
lu
le
gs
re
ks
tra
r
* Fyrstu sex mánuðir ársins.
** Að teknu tilliti til afkomutengdrar gjaldfærslu til gamla Landsbankans (LBI). Ef ekki er tekið
tillit til hennar var arðsemi eiginfjár á fyrstu sex mánuðum ársins 19,6%
Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka
„Arðsemi af reglulegum rekstri hefur batnað
talsvert, en þyrfti að vera betri til framtíðar. Breyt-
ingarnar 8. janúar skipta miklu en þá fengum við
eiginfjárinnspýtingu sem breytti mjög efnahags-
reikningi bankans; hann stækkaði um 80 milljarða
án þess að nýr beinn kostnaður tengdur starfsfólki
eða kerfum félli til. Það var óheppilegra að þetta
skyldi ekki hafa gerst fyrir áramótin. Það er erfitt
að bera bankana saman enn sem komið er. Þar er
mikið af óreglulegum liðum sem skekkja stöðuna,
við erum til að mynda með fyrirtæki sem bankinn
hefur tekið yfir og eru í ótengdum rekstri inni í
okkar samstæðuuppgjöri. Ég
held að það verði svona
fram á næsta ár. Ef
ekkert kemur upp á
ætti rekstur bankans
að vera kominn í
fastar skorður upp úr
miðju næsta ári.“
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka
„Þegar nýju bankarnir keyptu lánasöfn gömlu
bankanna var ekki notuð sama aðferðafræði í
öllum tilvikum. Þess vegna eru uppgjörin ólík.
Hópur á vegum Fjármálaeftirlits og Bankasýslu
ríkisins vinnur að því að samræma uppgjörin.
Við verðum komin með nokkuð góða mynd af
rekstrinum þegar bankarnir verða búnir að endur-
skipuleggja lánasöfn sín. Á meðan ekki hefur verið
endursamið við viðskiptavini um vexti og hreinsað
til í lánasöfnum þá held ég að við getum lent í því
að hafa miklar breytingar á lánasöfnum í gegnum
rekstrarreikning. Við reiknum með að stór hluti
þess klárist á næsta ári og að rekstur
Íslandsbanka verði kominn á
eðlilegt ról í lok árs 2013.
Við erum með töluvert
meira eigið fé en hinir
bankarnir tveir. Það setur
okkur í sterka stöðu. Við
þurfum að ávaxta eigið fé
okkar, sem skilar sér í meiri
vaxtamuni.“
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans
„Við störfum í mjög óvenjulegu umhverfi núna.
Mjög stórir liðir tengdir mati á eignum eru að
sveiflast til og stórar færslur sem færðar höfðu
verið á varúðarreikning hafa gengið til baka. Það
er ekki hefðbundið og er ekki hægt að reikna með
því til lengri tíma. Við höfum áhyggjur af því hvað
eftirspurn er lítil. Við erum með sterka lausafjár-
stöðu og tilbúin að lána en því miður er eftirspurn
lítil. Við höfum verið upptekin við að bíða, bíða
eftir dómi Hæstaréttar í gengismálinu, bíða eftir
því hvað verði gert í skuldaaðstoð við heimili og
fyrirtæki. Það hefur haft þau áhrif að allt hefur
frosið fast. Já, bankakerfið er of stórt. Það þarf
að leita leiða til að hagræða og gera það með
þeim hætti að þjónustan versni ekki. Við sjáum
tækifæri en menn verða að vera óhræddir við
að nýta þau og auðvitað horfa menn til ríkis-
ins í þeim efnum. Ég myndi halda að innan
tveggja til þriggja ára verði eftirspurn aftur
orðin eðlileg og úrvinnslu skuldavanda heim-
ila og fyrirtækja verði lokið eða að minnsta
kosti mjög langt komin. Þá er mikilvægt að
bankakerfið sé komið í gott jafnvægi.“
Þetta segja bankastjórarnir