Fréttablaðið - 09.12.2010, Page 72

Fréttablaðið - 09.12.2010, Page 72
56 9. desember 2010 FIMMTUDAGUR > Plata vikunnar Hjaltalín - Alpanon ★★★ „Margt vel gert, en nýju lögin hefðu mátt vera fleiri.“ - TJ > Í SPILARANUM Ég - Lúxus upplifun Robert Plant - Band of Joy Daft Punk - Tron Legacy Ensími - Gæludýr Apparat Organ Quartet - Pólýfónía ÉG APPARAT ORGAN QUARTET David Cameron, forsætisráðherra Bret- lands, fékk á baukinn hjá Johnny Marr, gítarleikara hinnar sálugu hljómsveitar The Smiths, í síðustu viku. Marr sagði tón- list hljómsveitarinnar ekki vera fyrir Cameron, sem lýsti nýlega yfir að hann væri aðdáandi The Smiths. Söngvari The Smiths, sérvitring- urinn Morrissey, tekur undir með Marr í bréfi sem hann birtir á aðdáendasíðunni True to You. Markar bréfið ákveðin tíma- mót þar sem þeir félagar hafa ekki verið sammála um margt undanfarin misseri. „Ég styð Johnny Marr í þessu, ef ég má,“ ritaði Mor- rissey. „David Cameron skýtur og drepur dýr – sér til ánægju, af því er virðist. Plöturnar Meat is Murder og The Queen is Dead voru ekki gerðar fyrir þannig fólk. Þær voru raunar gerðar gegn slíku ofbeldi.“ Morrissey var ekki hættur og skaut föstum skotum á Vilhjálm prins og unnustu hans Kate Middleton. „Vilhjálmur og Kate eru reyndar svo leiðinlegt fólk að það er ómögulegt að ræða þau, en hann hefur samt setið fyrir á mynd með dauðum vísundi sem hann skaut eins og skræfa úr öruggri fjarlægð.“ Morrissey tekur undir með Marr Á MÓTI KÓNGAFJÖLSKYLDUNNI Morriss- ey hefur ekki mikla þolinmæði gagnvart yfirstéttinni. John Grant á bestu plötu ársins að mati breska tón- listartímaritsins Mojo. Þar slær þessi áður óþekkti tónlistarmaður við stórum nöfnum á borð við Arcade Fire og MGMT. Bandaríski tónlistarmaðurinn John Grant hefur fengið frábæra dóma fyrir sína fyrstu sólóplötu, Queen of Denmark, sem kom út í apríl síðastliðnum. Á nýjum lista breska tímaritsins Mojo yfir bestu plötur ársins skákar þessi áður óþekkti tónlistarmaður risunum Arcade Fire og MGMT og trón- ir óvænt í efsta sætinu. Tímarit- ið Q er einnig hrifið af plötunni því þar nær hún sjötta sætinu yfir þær bestu á árinu. Önnur blöð sem hafa hælt gripnum eru NME og The Guardian í Bretlandi sem gáfu henni fjórar stjörnur af fimm mögulegum. Queen of Denmark var tekin upp í samstarfi við þjóðlagarokk- arana Midlake frá Texas. Meðlim- ir sveitarinnar sáu Grant á tónleik- um og heilluðust upp úr skónum af baritónrödd hans og fáguðum, sorg- legum lögunum. Þeir buðu honum með sér á tónleikaferð og fengu hann síðan til að taka upp sína fyrstu sólóplötu í þeirra eigin hljóð- veri. Sjálfir spiluðu þeir undir í lög- unum tólf sem heyra má plötunni. Hinn 41 árs Grant er fyrrum forsprakki hljómsveitarinnar The Czars, sem aldrei náði að slá í gegn og hætti á endanum störf- um 2004. Áður en Midlake sá hann spila íhugaði hann að gefa tónlist- ina upp á bátinn en sem betur fer gafst hann ekki upp og ákvað að halda áfram einn og óstuddur. Queen of Denmark er afar per- sónuleg plata þar sem Grant gerir upp fortíðina og syngur um bar- áttu sína við áfengis- og eitur- lyfjafíkn, misheppnuð ástarsam- bönd og um það hvernig hann tókst á við samkynhneigð sína. Þar hjálpaði það honum ekki að vera alinn upp í trúaðri fjölskyldu í miðvesturríkjum Bandaríkjanna. Platan er nokkuð undir áhrifum bandarískrar þjóðlagatónlistar átt- unda áratugarins og hafa gagnrýn- endur líkt Grant við The Carpent- ers og Harry Nilsson. Einnig sjá þeir líkindi með honum og þeim Gilbert O´Sullivan, Dennis Wilson og Jeff Buckley. Einn gagnrýnandinn nefnir að einu mistök rokkaranna í Midlake, ef mistök skyldi kalla, væru að þeir skyldu hafa hjálpað Grant að búa til plötu sem væri betri en þeirra eigin verk. Til marks um það nær þriðja plata Midlake, The Courage of Others, „aðeins“ sjöunda sæti á árslista Mojo á meðan Grant horf- ir glaður af toppnum niður til velgjörðarmanna sinna. freyr@frettabladid.is Grant gerir upp fortíðina JOHN GRANT Bandaríski tónlistarmaðurinn hefur vakið mikla athygli fyrir sína nýjustu plötu. Tónlist er vinsæl jólagjöf og á góðu verði miðað við margt annað. Margir velja einhverja nýja plötu í jólapakkann, en svo koma líka út vegleg box sem eru m.a. stíluð inn á jólasöluna. Það er slatti af flottum nýjum íslenskum yfirlitsútgáfum í boði hvort sem menn eru heitir fyrir Ellý Vilhjálms, SH Draumi, Bang Gang, Gus Gus eða hljómsveitinni XIII. Metnaðurinn er auðvitað ennþá meiri úti í heimi, enda markaðurinn margfalt stærri. Viðhafnarútgáfur hafa verið að þróast í tvær andstæð- ar áttir undanfarið. Í fyrsta lagi eru menn farnir að búa til rándýra pakka sem þeir safna í nokkrum geisladisk- um, vínylplötum og prentuðu efni. Þessar útgáfur hrópa „sjáðu hvað ég á flott“ og eru stílaðar inn á safnara sem hafa ekki áhyggjur af verðmiðanum. Ágætt dæmi um þetta er sérstök útgáfa af snilldarverki Davids Bowie, Station to Station, sem kom út í haust. Fimm geislaplötur, þrjár vínylplötur og allt meira og minna sama efnið. Þetta, ásamt nokkrum ljósmyndum, er selt á tæp 20 þúsund. Nei takk! Hin leiðin er að safna saman fullt af plötum og selja ódýrt. Nýverið gaf Sony t.d. út 25 diska box með jafnmörgum meistaraverkum úr djasssögunni, The Perfect Jazz Collection. Þarna eru m.a. plötur með Art Blakey, Billie Holiday, Stan Getz, Dave Bru- beck, Miles, Mingus, Monk, Herbie Hancock og Jaco Pastorius. Og bók með. Á Íslandi er þessi pakki seldur á um níu þúsund krónur, 360 kr. hver diskur. Fyrir sama verð fæst þokkalegur hlýrabolur. Á meðal annarra nýrra viðhafnarútgáfa sem til eru hér á landi má nefna Mono boxið hans Bob Dylan (fyrstu 8 plöturnar), Band on the Run með Wings (3 CD + 1 DVD), fjögurra diska útgáfu af bestu tónlei- kaplötu allra tíma að margra mati, The Who Live At Leeds, og spariút- gáfu af Darkness on the Edge of Town með Bruce Springsteen (3 CD + 3 DVD + bók). Og svo er auðvitað heildarpakki Spilverks þjóðanna (7 diskar og bók) væntanlegur í næstu viku … Flottir jólapakkar VEGLEGT Fyrir innan við 10 þúsund er hægt að fá 25 af meistaraverkum djasssögunnar í einu boxi. TÓNLISTINN Vikuna 2. desember - 8. desember 2010 LAGALISTINN Vikuna 2. desember - 8. desember 2010 Sæti Flytjandi Lag 1 Dikta ......................................................................Goodbye 2 Páll Óskar og Memfismafían ......Það geta ekki allir... 3 Hjálmar ....................................................Gakktu alla leið 4 P!nk .........................................................Raise Your Glass 5 Rihanna .......................................Only Girl In The World 6 Kings Of Leon ................................................Radioactive 7 Bruno Mars ..................................Just The Way You Are 8 Björgvin Halldórsson og Mugison ................. Minning 9 Mammút ...................................................................Follow 10 Blaz Roca, Bent og Raggi Bjarna .. Allir eru að fá sér Sæti Flytjandi Lag 1 Baggalútur ..........................................................Næstu jól 2 Frostrósir ................................................... Hátíðin heilsar 3 Bubbi ..................................Sögur af ást, landi og þjóð 4 Elly Vilhjálms .......................................... Heyr mína bæn 5 Páll Rósinkranz ...........................................Ó hvílík elska 6 Björgvin Halldórsson .............................................Duet II 7 Raggi Bjarna ........................... 75 ára afmælistónleikar 8 Prófessorinn og Memfismafían ................. Diskóeyjan 9 Blaz Roca ............................. Velkomin til KópaCabana 10 Sigurður G. og Memfismafían .. Nú stendur mikið til Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds- son, 12 tónar, Smekkleysa plötubúð, Havarí, Elkó, tonlist.is, Bónus Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is. Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista Skýringar: A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R 10. - 26. mars 2011 Fararstjórar: Sigríður Margrét Guðmundsdóttir & Kjartan Ragnarsson Mexíkó dularfull og litskrúðug Sp ör e hf . Mexíkó er sannkölluð paradís þeirra sem hafa áhuga á menningu, sögu, landi og þjóð. Við kynnumst mótsagnakenndri náttúru landsins, fjöllunum, regnskógunum og opnu sléttunum. Fáum einnig innsýn í lífið í landinu og skoðum þær fjölmörgu áhugaverðu minjar sem forfeðurnir létu eftir sig, m.a. hina fornu menningu Azteka og Maya. Skoðuð verða stórkostleg hof og píramídar, sem færa sönnur á háþróaða menningu innan stjörnufræði, stærðfræði og byggingarlistar. Sólarpíramídinn og Tunglpíramídinn verða skoðaðir, áhugaverð söfn, hið 200 ára gamla tré, Tule, farið í bátsferð eftir Sumidero gljúfrinu og þorp indíána heimsótt. Dvalið fyrstu næturnar í Mexíkóborg og þaðan haldið til Tequesquitengo, áfram til Oaxaca, Tuxtla og San Cristóbal de la Casas, þar sem einmitt fararstjórar ferðarinnar bjuggu. Þar settust nýlenduherrar að og þar búa Maya indíánar enn í dag í fjallshlíðunum allt um kring. Ferðin heldur áfram til Palenque, Chichen Itzá og Merida þar sem minjar hinnar fornu borgar Maya verða skoðaðar. Síðasti áfangastaður okkar er borgin Cancun og gefst þar tækifæri til að slappa aðeins af á glæsilegum stað áður en haldið er heim á leið. Kynningarfundur verður haldinn 9. desember kl. 20:00 í Síðumúla 2, 2. hæð. www.baendaferdir.is s: 570 2790 tonlist@frettabladid.is TÓNNINN GEFINN Trausti Júlíusson
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.