Fréttablaðið - 09.12.2010, Page 94

Fréttablaðið - 09.12.2010, Page 94
78 9. desember 2010 FIMMTUDAGUR HANDBOLTI Ísland mætir í dag liði Svartfellinga á EM í handbolta sem fer fram í Noregi og Danmörku. Svartfellingar komu nokkuð á óvart í fyrstu umferðinni þegar liðið lagði heimsmeistara Rússa en á sama tíma tapaði Ísland fyrir Króatíu. Sigur Svartfellinga kom Júlíusi Jónassyni landsliðsþjálfara nokkuð á óvart. „Ég sá reyndar ekki mikið af leiknum þar sem ég var sjálfur að undirbúa mitt lið fyrir leikinn gegn Króatíu. En þetta kom mér vissulega á óvart,“ sagði Júlíus. „Rússarnir hafa reyndar oft hikst- að í upphafi stórmóta og eflst svo með hverjum leiknum. Yfirleitt endar það með því að þeir enda í einu toppsætanna.“ Hann á von á erfiðum leik gegn Svartfjallalandi í dag. „Styrkur þeirra er svipaður og ég reiknaði með. Þær sýndu í leiknum gegn Rússum að þær eru afar öflugar og leikmenn liðsins búa yfir miklum líkamlegum styrk. Þær eru heldur ekki að spila of flókin leikkerfi og hafa þetta frekar einfalt – það er leitað mikið inn á línu og í þessu liði eru mjög góðir skotmenn eins og reyndar í öllum liðunum í okkar riðli.“ Með liðinu leikur Bojana Pop- ovic, sem er af mörgum talin ein allra sterkasta handknattleiks- kona heims. „Hún er vissulega í þeim hópi en hún hefur afrekað mikið á sínum ferli og er einfald- lega sigurvegari,“ sagði Júlíus um hana. Rússarnir brugðu á það ráð að taka hana úr umferð og gerðu það í stórum hluta leiksins. „Það er eitt af því sem kemur til greina hjá okkur en það hefur ekkert verið ákveðið í þeim efnum enn. En það sem skiptir líka miklu máli er að hún er mikill leiðtogi í liðinu og dugleg að segja félögun- um til og peppa þá upp, hvort sem hún er inni á vellinum eða ekki. Hún er því gríðarlega mikilvægur leikmaður fyrir Svartfellinga.“ Alls eru þrettán leikmenn í landsliði Svartfellinga sem koma úr sama félagsliðinu, ZRK Buducnost sem leikur í höfuðborg- inni Podgorica. „Ætli liðið sé ekki líkara félagsliði en landsliði. Þær þekkjast að minnsta kosti mjög vel og þetta hjálpar þeim heilmikið. Það sést líka vel á liðinu enda eru allar aðgerðir hjá þeim afar vel tímasettar, sem einkennir oft góð félagslið,“ segir Júlíus. „Og þar að auki er Buducnost alvöru lið – eitt það allra besta í Evrópu í dag.“ Hann segir að sínir leikmenn séu klárir í slaginn í dag og að þeir hafi jafnað sig á tapinu á Króatíu. „Það var búið að afgreiða þann leik snemma í morgun [gærmorg- un] og þá hófst strax undirbúning- ur fyrir næsta leik. Það eru allir heilir og tilbúnir fyrir þann leik.“ - esá Júlíus Jónasson um lið Svartfjallands, næsta andstæðing Íslands á EM í Danmörku og Noregi: Landsliðið sem er nánast eins og félagslið EINBEITTUR Júlíus á hliðarlínunni í fyrsta leik. FRÉTTABLAÐIÐ/OLE NIELSEN HANDBOLTI Hanna G. Stefáns- dóttir var markahæsti leikmað- ur íslenska liðsins gegn Króatíu á þriðjudaginn með sex mörk og nýtti þau færi sem hún fékk í hægra horninu vel. Hanna er þó rétthent en þekkir það vel að spila í þessari stöðu. „Þetta hef ég verið að gera í 20 ár,“ segir hún í léttum dúr. „Það háir mér alls ekki enda hef ég gert þetta lengi og finnst ég hafa staðið mig vel. Þetta snýst bara um að læra að hoppa rétt inn og snúa sér í stökkinu. Þá er þetta ekkert mál,“ bætir hún við. Hún segir að meira sé um þetta í handbolta í dag en áður. „Þetta á ekki að koma neinum markverði neitt sérstaklega á óvart. Það á að vera auðveldara fyrir hann að verja frá mér en örvhentum leik- manni. En hann nær mér ekkert og því er þetta í lagi,“ sagði hún og brosti. - esá Hanna G. Stefánsdóttir: Hef spilað svona í 20 ár Á FLEYGIFERÐ Hanna í leiknum gegn Króötum. FRÉTTABLAÐIÐ/OLE NIELSEN HANDBOLTI Fleiri Danir horfðu á landsliðið sitt vinna Serbíu í fyrstu umferð riðlakeppninnar á EM í handbolta en þeir sem fylgd- ust með knattspyrnuliði FCK tryggja sér sæti í 16 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. FCK mætti Panathinaikos frá Grikklandi á þriðjudagskvöldið og náði þeim glæsilega áfanga að komast áfram upp úr riðlakeppni Meistaradeildarinnar og um leið tryggja liðinu gríðarlega miklar tekjur. En það voru stelpurnar í danska landsliðinu sem náðu hylli sjónvarpsáhorfenda. Nærri millj- ón manns fylgdust með útsend- ingu TV2 frá leiknum en tæplega sex hundruð þúsund horfðu á leik FCK á TV3+. Dönsku stelpurnar unnu Serba örugglega, 25-20, og ætla sér stóra hluti í mótinu á heimavelli. „Þetta var stórt kvöld fyrir danska íþróttaáhugamenn og árangur beggja liða frábær. Þetta var stór áfangi fyrir danska knattspyrnu en það gladdi mig einnig að sjá að kvennalandsliðið í handbolta nýtur slíkra vinsælda að það geti staðið af sér harða samkeppni um sjónvarpsáhorf- endur,“ sagði Frederick Lauesen, yfirmaður hjá TV2. - esá Sjónvarpsáhorf í Danmörku: Handboltinn sló við FCK MARGIR SÁTU HEIMA Þótt Danir hafi mætt illa á völlinn horfðu þeir á hand- boltann heima hjá sér. FRÉTTABLAÐIÐ/OLE HANDBOLTI Berglind Íris Hansdótt- ir náði sér ekki á strik frekar en margir aðrir í íslenska landslið- inu í fyrsta leik þess á EM í Dan- mörku og Noregi. Þá tapaði liðið fyrir Króatíu en mætir sterku liði Svartfellinga í dag. „Fyrir leikinn leið mér mjög vel og ég hafði góða tilfinningu fyrir honum,“ sagði Berglind við Frétta- blaðið í Árósum í gær. „Auðvitað var maður með fiðring og þannig á það líka að vera. En ég náði aldrei að tengjast vörninni og þá kom ekki þetta öryggi sem ég þurfti á að halda. Ég varði þar af leið- andi ekki þá bolta sem þurfti til að koma mér inn í leikinn,“ segir hún. „Ég var mjög ósátt við sjálfa mig eftir leikinn en að sama skapi var ég einnig ósátt við varnar- leikinn. Við erum allar óánægðar með hann. Við erum bara komn- ar í þannig bolta að við verðum að stíga út á móti skyttunum og láta finna fyrir okkur. Það gerðum við ekki í þessum leik.“ Hún segir þó að það hafi verið ýmislegt jákvætt við leikinn sem megi ekki gleyma. „En á móti svona sterkum þjóðum eins og við erum að spila við á þessu móti þurfum við allar að skila okkar besta til að geta unnið.“ Berglind segir liðið ekki líða fyrir það að heima á Íslandi séu skytturnar ekki jafn sterkar og í alþjóðlegum handbolta. „Það hefur auðvitað sín áhrif og munurinn er mikill. En ég hef nú spilað í Noregi í hálft ár þar sem eru margar góðar skyttur og þar að auki hef ég mætt mörgum góðum skyttum í landsleikjum í gegnum tíðina. Við hittum bara ekki á okkar dag að þessu sinni,“ segir hún. „Við erum þó ekki svart- sýnar og höfum fulla trú á því að við getum staðið okkur vel í næsta leik. Við ætlum að gera það og við ætlum að bæta fyrir þennan lélega leik. Við erum allar staðráðnar í því að spila betur. Það getur oft verið stutt á milli. Hefðum við nýtt nokkur færi og við markverðirnir varið nokkur skot til viðbótar hefði þetta getað litið allt öðruvísi út.“ - esá Berglind Íris Hansdóttir segir að til standi að bæta fyrir slæman leik gegn Króatíu: Ég var mjög ósátt við sjálfa mig BERGLIND ÍRIS Ætlar að gera betur í næsta leik. FRÉTTABLAÐIÐ/OLE NIELSEN Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar frá Árósum eirikur@frettabladid.is HANDBOLTI Karen Knútsdóttir var maður leiksins gegn Króatíu og þessi tvítugi leikstjórnandi sýndi oft lipra takta í sóknarleik íslenska liðsins. Hún skoraði fyrsta mark Íslands á stórmóti og þó svo að ýmislegt hafi farið úrskeiðis í leik íslenska liðsins verður sá áfangi aldrei tekinn af henni. „Ég hef reynd- ar ekki mikið leitt hugann að því. En það er vissulega ánægju- legt og ágætt að eiga fyrsta markið,“ segir Karen og vill greini- lega ekki gera mikið úr því. „Það sem ég vil fyrst og fremst gera er að sýna mitt rétta and- lit og hvað ég get. Það er gaman að fá tækifæri til að gera það á móti eins og þessu,” bætir hún við. Karen nýtur þess einn- ig að hafa stuðning for- eldra sinna hér í Árósum eins og fleiri í íslenska liðinu. En hún er í þeirri sérstöku stöðu að faðir hennar, Knútur G. Hauks- son, er formaður HSÍ. „Pabbi er stundum pabbi og stundum er hann formaður HSÍ. Það voru settar skýrar reglur í þeim efnum áður en við fórum út. En mamma er hérna líka og það er gott að hafa þau bæði með mér. Þau veita mér mikinn stuðning eins og þau hafa alltaf gert. Þau hafa allt- af mætt á alla leiki og hafa áður komið mér í keppnisferðir.“ Spurð um atvinnumennsku játar hún því að hún stefni að því að komast út – hvort sem frammi- staðan á EM muni flýta fyrir því eða ekki. „Það er markmiðið hjá mér að komast út. Fyrst ætla ég mér þó að einbeita mér að því að standa mig vel í þessum leikjum sem eru fram undan og svo verður bara að koma í ljós hvað verður,“ segir Karen. „En ég held að ég sé að verða tilbúin fyrir næsta skref- ið á mínum ferli. Ég var kannski ekki tilbúin áður en tímabilið hófst í haust og það gæti vel verið fínt fyrir mig að taka svo eitt ár til viðbót- ar heima. En á endanum vil ég komast út.“ Hún neitar því ekki að það er stórt skref fyrir leikmann í N1- deild kvenna að fara á stórmót í alþjóðlegum handbolta. „Deildin heima er ekki nægilega sterk í ár. Það eru nokkur góð lið í deildinni en munurinn er óneitanlega mikill. Það er þó skemmtilegt að takast á við það. Við tókum stórt skref með því að komast á EM og það er góð blanda af yngri og eldri leikmönnum í liðinu. Leiðin liggur aðeins upp á við og við getum lært heilmikið af þátttöku á móti sem þessu. Ég er þess alveg fullviss að við förum aftur á stórmót áður en langt um líður.“ Fram undan er leikur gegn Svartfjallalandi í dag en liðið virð- ist ógnarsterkt. Það vann heims- meistara Rússa á þriðjudaginn og stefnir því á að fara í milliriðla- keppnina með fullt hús stiga. „Maður tekur heilmikið með sér að spila á svona sterku móti. Nú er strax komið að næsta leik og hér erum við eingöngu að spila við sterkar þjóðir. Það reynir á mann og ég held að við lærum bara af því,“ segir Karen. „Það vex okkur ekki í augum að mæta Svartfjalla- landi. Þetta er hörkulið en ef við náum okkar allra besta fram getum við unnið þetta lið. Við erum ekki hræddar við þær enda teljum við að við eigum möguleika í öllum leikjum. Það þarf að bæta ýmislegt frá síðasta leik og við vitum hvað þarf til að gera það.“ Vil sýna hvað ég get á stórmóti Karen Knútsdóttir skráði nafn sitt í sögubækurnar með því að skora fyrsta mark Íslands á stórmóti í hand- bolta kvenna. Hún ræddi við Fréttablaðið um mótið, framtíðaráætlanir í boltanum og foreldrana. MEÐ MÖMMU OG PABBA Karen er hér með föður sínum, Knúti Haukssyni, og móður sinni, Sigrúnu Bragadóttur, í miðbæ Árósa í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/E. STEFÁN
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.