Fréttablaðið - 10.12.2010, Qupperneq 42
2 föstudagur 10. desember
núna
✽ ekki missa af
augnablikið
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Umsjón Sara McMahon og Álfrún Pálsdóttir Forsíðumynd Anton Brink
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Hallgrímsdóttir
sigridurh@365.is sími 512 5432 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
blogg vikunnar
S
igríður Ásta Árnadóttir textílhönnuður
hannar stórskemmtilegar flíkur undir
heitinu Kitschfríður. Sigríður segir nafn-
ið vera nokkuð lýsandi fyrir hönnun
sína, „kitsch“ merkir eitthvað sem er skrautlegt
og ofhlaðið og „fríður“ minnir svolítið á gamla
tíma.
Sigríður endurvinnur gamlar ullarpeysur sem
hún finnur hjá hjálparstofnunum og breytir þeim
meðal annars í golftreyjur, húfur og kraga. Að
hennar sögn byrjar hún á því að lita peysurnar
og breyta sniðinu á þeim. „Ég breyti þeim gjarn-
an í gollur, ég er mjög veik fyrir svoleiðis peysum
og er sjálf alltaf í gollu. Að lokum skreyti ég þær
svo með ýmsu punti,“ útskýrir Sigríður. Hún seg-
ist hanna allar flíkurnar sjálf og á erfitt með að
láta verkin í hendurnar á öðrum því mikill hluti
hugmyndavinnunnar fer fram á meðan hún býr
flíkurnar til.
Sigríður er mjög hrifin af litum og endurspegl-
ast sú hrifning vel í hönnun hennar. „Ég er mjög
spennt fyrir miklum litum og er sjálf alltaf eins
og jólatré til fara. Ég hef stundum einsett mér
að gera dempaðri flíkur svona til að ögra sjálfri
mér, en svo þegar á hólminn er komið verður ekk-
ert úr því. Þessi litagleði er greinilega eitthvað
meðfætt.“
Þegar Sigríður er innt eftir því hvort hún ætli
sér í útrás með Kitschfríði svarar hún neitandi.
„Ég var oft spurð að því í góðærinu hvort ég ætl-
aði ekki að verða almennilega rík af þessu en ég
kæri mig ekki um það. Ég er fyrst og fremst að
þessu því þetta er sköpun sem ég hef ánægju af.
Mér er líka umhugað um umhverfið og þess vegna
endurvinn ég flíkur, ég kynni því illa ef flogið yrði
með hráefnið mitt til framleiðslu í Kína og aftur
til baka.“
Hönnun Sigríðar fæst í versluninni Kirsuberja-
trénu við Vesturgötu. - sm
Sigríður Ásta Árnadóttir hannar litríkar og skemmtilegar flíkur:
Endurvinnur ullarpeysur
Litaglöð Sigríður Ásta Árnadóttir gerir stórskemmtilegar og litríkar flíkur úr gömlum ullapeysum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
JÓLAGJÖF
VEIÐIMANNSINS
Meira í leiðinniWWW.N1.IS / SÍMI 440 1000
Veiðikortið fæst á N1
Yes you Kent
Bloggið www.struttlamode.blog-
spot.com er stórskemmtilegt blogg
stúlku frá Kent. Stíll hennar er góð
blanda af nýju og gömlu
og setur hún það saman
á skemmtilegan hátt.
Ásamt því að mynda
eigin föt er hún dugleg
að fylgjast með því
nýjasta sem er að
gerast í tískunni
og setur reglu-
lega inn mynd-
ir frá tískusýn-
ingum, nýjum
fatalínum og
tískumynda-
tökum.
Úti er ævintýri
Tískubloggið www.afashiontale.
dk er danskt og má finna á vefsíðu
danska tískuritsins Costume. Því er
haldið úti af vinkonunum Lotte og
Marie sem fylgjast vel með öllu því
sem gerist í heimi tískunnar. Væg-
ast sagt flott skandin-
avískt blogg!
Tíska og meira
Á blogginu www.im-
nottrendy.blogspot.
com má lesa um tísku,
kannanir sem gerðar
hafa verið á skyndi-
bitafæði og ým-
islegt annað.
Áhugavert
blogg sem
gaman er að
rúlla í gegn-
um.
UNDIR NIÐRI Leikararnir Anne Hat-
haway og Jake Gyllenhaal mættu
saman á frumsýningu kvikmyndar-
innar Love and Other Drugs í Sidney
í Ástralíu.
Ungi bloggarinn Tavi Gevin-son, sem skrifar undir nafn-
inu Style Rookie, hefur bæst í hóp
þeirra fjölmörgu kvenna sem fall-
ið hafa fyrir skónum frá Kron by
KronKron.
Tavi er ekki nema þrettán ára
gömul og hefur haldið úti tísku-
bloggi sínu í tvö ár. Hún hefur sleg-
ið rækilega í gegn og vermir núna
fremsta bekk á tískusýningum
með kanónum á borð við Carine
Roitfeld og Anna Wintour.
Á blogginu www.tavi-thenew-
girlintown.blogspot.com birt-
ir Tavi mynd af sér þar sem hún
klæðist fallegu bláleitu skópari frá
Kron by KronKron og segir skóna
fallega og stelpulega án þess þó
að vera væmna. Samkvæmt blogg-
færslunni eru skórnir þó svolít-
ið of stórir á stúlkuna, en von-
andi á hún eftir að vaxa í þá með
aldrinum. - sm
Frægur bloggari klæðist Kron skóm:
Tavi hrífst af Kron
Ánægð í Kronskóm Tískubloggarinn
Tavi Gevinson er hrifin af skónum frá
Kron by KronKron. MYND/STYLEROOKIE.COM
LESIÐ Í STJÖRNURNAR Bókin Hver er ég er bók um
stjörnuspeki og þar má finna stjörnukort fyrir alla afmælisdaga.
Í gegnum kortin er hægt að kynnast betur fjölskyldumeðlimum,
vinum og maka og auðvitað þér sjálfum. Skemmtileg bók að
blaða í!
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI
AFÞREYING
Meiri Vísir.
m.visir.is
Fáðu Vísi í símannog iPad!
Deildu Vísi með öðrum. Þeir sem setja
„like“ við Vísi á Facebook geta unnið
óvænta vinninga í hverri viku.