Fréttablaðið - 13.12.2010, Blaðsíða 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
VINNUMARKAÐUR EFTA-dómstóll-
inn hefur staðfest að einungis í
undan tekningartilfellum getur
það samræmst tilskipunum Evr-
ópusambandsins að gera starfs-
mann ábyrgan fyrir tjóni sem
hann verður fyrir í vinnuslysi, ef
fyrir liggur að vinnuveitandi hefur
ekki farið að reglum um öryggi og
heilsu á vinnustað.
Þýðing dómsins er að hópur
Íslendinga gæti átt rétt á bótum
vegna slysa þrátt fyrir að bóta-
kröfu þeirra hafi upphaflega verið
hafnað, en íslenskir dómstólar
setja yfirleitt einhverja sök á tjón-
þola óháð aðstæðum á slysstað.
Magnús M. Norðdahl, deildar-
stjóri lögfræðideildar ASÍ, segir
erfitt að meta hversu stór hópur
kunni að eiga rétt á bótum. Bóta-
mál séu í eðli sínu flókin og mörg
þeirra séu gerð upp í samningum.
Hann segir að ASÍ mæli með því að
allt launafólk sem neitað hafi verið
um skaðabætur láti lögmenn sína
taka málin til endurskoðunar. Það
eigi við þar sem upplýst hafi verið
að reglur um öryggi, aðbúnað og
hollustuhætti hafi verið brotnar.
Forsaga dómsins, sem féll á
föstudag, er mál íslensks smiðs
sem slasaðist á byggingarsvæði
Smáralindar í júlí 2001. Hann
hlaut af varanlegt tjón og stefndi
í kjölfarið vinnuveitanda sínum til
greiðslu skaðabóta. Hæstaréttur
hafnaði skaðabótakröfu manns-
ins í desember 2005 þrátt fyrir að
fyrir lægi að vinnuveitandi hefði
getað tryggt öryggi starfsmanna
sinna betur.
Þessari niðurstöðu hefur EFTA-
dómstóllinn nú snúið við og staðfest
að íslenska ríkið geti verið skaða-
bótaskylt vegna hans. Jafnframt
staðfestir dómstóllinn að íslenska
ríkið geti borið skaðabótaábyrgð
gagnvart einstaklingum sem ekki
hafi fengið skaðabætur vegna þess
að Ísland hafi innleitt tilskipanir
ESB með ófullnægjandi hætti.
Dómurinn hefur ekki þýðingu
vegna vinnuslysa sem orðið hafa
eftir desember 2009 en þá var
skaðabótalögum breytt eftir kröfu
ASÍ í kjarasamningaviðræðum.
- shá
Mánudagur
skoðun 16
3 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Fasteignir.is
Híbýli og viðhald
Fyrningartíminn er
nokkur ár og því
ekki loku fyrir það skotið að
hópur fólks eigi undirliggjandi
skaðabótakröfu á ríkissjóð.
MAGNÚS M. NORÐDAHL
DEILDARSTJÓRI HJÁ ASÍ
veðrið í dag
13. desember 2010
292. tölublað 10. árgangur
dagar til jóla
Opið til 22 í kvöld
11
Átakið Straumhvörf
Hefur hjálpað geðfötluðum
út í samfélagið.
tímamót 20
13. desember 2010 MÁNUDAGUR
1
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Árni B. Stefánsson kann ráð til að stytta grenitré Allt lifandivill lifa áframM aður þarf að hugsa sig inn í tréð og átta sig á hvernig það lifir. Líka að gera sér grein fyrir að allt sem lifir vill í eðli sínu lifa áfram. Það verður að gefa því möguleika á því og síðan að halda því í skefjum þannig að það vaxi manni ekki yfir höfuð.“ Þetta segir Árni B. Stefánsson, sem hefur náð að láta barrtré prýða umhverfi sitt eftir að hafa verið styttum allan helming. Þetta eru i k
Söluaðilar.: Járn og gler hf - Garðheimar - Húsasmiðjan - Búsáhöld
Kringlunni - Byggt og Búið - Pottar og Prik Akureyri. www.weber.is
Frábært úrval af gjafavörum frá Weber
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR
LÍFIÐ UMRÆÐANMEIRA SKÚBBMeiri Vísir.
Ljósanotkun er mikil í svartasta skammdeginu en eftirfarandi má hafa
í huga til að draga úr orkukostnaði. Hafið ljósin slökkt í þeim vistarverum
sem ekki er verið að nota. Notið ekki stærri perur en þarf. Notið flúor-
pípur þar sem þess er kostur. Hafið veggi, gólfefni og gardínur í ljósum
lit en þannig er hægt að draga umtalsvert úr ljósanotkun.
FASTEIGNIR.IS13. DESEMBER 2010
50. TBL.
Eignamiðlun er með á skrá sérhæð og ris
við Flókagötu 39.
H æðin og risið eru samtals 152 fermetr-ar og mikið endurnýjuð. Bílskúr, 26,3 fermetrar, nýlega innréttaður sem stúdíóíbúð, fylgir. Hann er nú í útleigu. Í enda bílskúrsins er síðan sérgeymsla íbúðarinnar.Þess má geta að húsið hefur verið mikið endur nýjað að undanförnu, það er meðal annars endursteinað, þak er nýlegt, gluggar nýmálaðir og fleira.Sérinngangur er á íbúð. Forstofa er flísa-lögð. Á neðri hæð er parkettlagt hol, með fata-herbergi inni af. Útgengt er á svalir. Svefn-herbergi er parkettlagt. Þvottahús er rúmgott. Baðherbergi er búið sturtuklefa, upphengdu salerni og innréttingu. Eldhús er með innrétt-ingu og vönduðum tækjum. Opið er yfir í stóra stofu, útgengt er úr stofu á svalir. Inni af stofu er önnur parkettlögð stofa/borðstofa. Gengið er úr holi upp á efri hæð. Opið parkett lagt herbergi. Útgengt á svalir. Parkettlagt hjóna-herbergi. Baðherbergi er með baðkari, inn-réttingu og upphengdu salerni. Sameiginlegt þvottahús í kjallara.Lóðin er með miklum trjágróðri. Aðkoma að húsinu er góð.
Endurnýjuð sérhæð og ris
Húsinu fylgir falleg lóð.
Stofan er
Seldu hjá okkur í desember og fáðu veglega
jólagjöf.Kíktu inn á www.landmark.is!
Þú hringir, við seljum! 512 4900
Sigurður
S. 896 2312lögg. fasteignasali
Friðbert
S. 820 6022Sölufulltrúi
Rúnar
S. 842 5886Sölufulltrúi
Þórarinn
S. 770 0309Sölufulltrúi
Magnús
S. 897 8266lögg. fasteignasali
Viltu vita hvers virði eignin þín er í dag?
Pantaðu frítt söluverðmat án skuldbindinga.
Hringdu núna 699 5008
Hannes SteindórssonSölufulltrúi
hannes@remax.isSími: 699 5008
Þórarinn
Jónsson hdl.lögg. Fasteignasali
híbýli og viðhaldMÁNUDAGUR 13. DESEMBER 2010
Leikur útrásarvíking
Guðmundur Ingi
Þorvaldsson leikur
útrásarvíking í
sjónvarpsþáttunum
Makalaus.
fólk 38
VÍÐA BJART Í dag verða suðaust-
an 8-15 m/s SV-til og skýjað með
köflum en annars hæg suðlæg átt
og víða bjartviðri. Hiti 2-8 stig.
VEÐUR 4
3
6
44
1
FÓLK Hjónin Lisa og Mark
Richards hafa mikið dálæti á
íslenskum dýrum. Á býli sínu,
Mack-Hill í
New Hamp-
shire í Banda-
ríkjunum hafa
þau því íslenska
fjárhunda,
íslenskt sauð-
fé og íslenskar
landnámshæn-
ur á. „Bara ef
ég hefði efni á
íslenskum hestum,“ segir Lisa.
Mack Hill bóndabýlið er sjálf-
bært, en hjónin sérhæfa sig í
ræktun á sjaldgæfum búfénaði.
Ásamt því að selja ull framleiða
þau jógúrt og osta. Þá selja þau
egg undan íslensku hænunum og
íslenskt lambakjöt, sem þau eru
afar stolt af. - afb / sjá síðu 38
Dreymir um íslenska hesta:
Íslenskt búfé á
bandarísku býli
LISA RICHARDS
GAMALDAGS GLEÐILEG JÓL Fjöldi fólks lagði leið sína á jólasýningu Árbæjarsafns í gær, en
sýningin hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár. Síðasta jólasýning ársins verður haldin næstkomandi sunnudag
og gefst þá gestum tækifæri til að fylgjast með undirbúningi jólanna eins og hann var í gamla daga. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Fjöldi gæti átt bóta-
rétt vegna vinnuslysa
Mál Íslendings fyrir EFTA-dómstólnum gæti gjörbreytt meðferð bótamála
vegna vinnuslysa. ASÍ vill að tjónþolar skoði sín mál með aðstoð lögmanns.
Sigurgangan á enda
Framarar urðu fyrstir til að
vinna Akureyrarliðið í vetur.
sport 34
NOREGUR Upplýsingaráðið fyrir
kjöt og egg, sem er ríkisrekin
upplýsingaskrifstofa, hefur sett
upp neyðar-
línu í Noregi
fyrir þá sem
líklegir eru til
að klúðra jóla-
matseldinni.
Í norska blað-
inu Verdens
Gang er sagt
frá því að fyrir
komandi jól
verði hægt að
hringja í tiltekið númer og fá góð
ráð frá þessari „mömmuþjónustu
landbúnaðarins“ eins og Norð-
menn kjósa að kalla fyrirbærið.
Helsta ástæðan er steikar-
skorpan á norsku jólaskinkunni
sem veldur fólki kvíða, en gríðar-
leg áhersla er lögð á að hún sé
fullkomin, rétt brúnuð og stökk.
Samkvæmt frétt blaðsins er
búist við að fjöldi Norðmanna,
einkum á aldrinum 25 til 39 ára,
muni nýta sér þjónustuna. - shá
Norðmenn undirbúa jól:
Neyðarlína fyrir
klaufakokkinn
JÓLASTEIK