Fréttablaðið - 13.12.2010, Blaðsíða 56
Mest lesið
DREIFING: dreifing@posthusid.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VISIR.IS
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
FRÉTTIR AF FÓLKI
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
Raunverulegar fyrirmyndir
Við lestur skáldsögunnar Martröð
millanna eftir fréttastjórann Óskar
Hrafn Þorvaldsson kemur nafn
athafnamannsins Björgólfs Thors
Björgólfssonar sjálfkrafa í hugann
þegar sögupersónan Reynir Sveinn
er skoðuð. Björgólfur efnaðist á
einkavæðingu í Búlgaríu en Reynir
í Ungverjalandi, Deutsche Bank
er viðskiptabanki þeirra beggja.
Björgólfur fagnaði fertugsafmælinu
á Jamaíka með 50 Cent en Reynir í
Frakklandi með Eminem.
Diet Pepsi og diet Coke
Eins kemur annar kunnur útrásar-
víkingur, Jón Ásgeir Jóhannesson,
í hugann þegar persónunni Steini
Þorra er lýst í Matröð millanna.
Báðir gengu í Verzló, Jón Ásgeir
drekkur diet Coke en Steinn Þorri
diet Pepsi, báðir nota
þeir svarta leður-
bakpoka undir
tölvurnar sínar og
báðir hafa þeir ekið
um á hvítum Range
Rover. Þá voru ein
bestu viðskipti
þeirra beggja
með erlenda
smásölurisa.
1 Foxy Knoxy áfrýjar morðdómi
2 Kúba á barmi gjaldþrots
3 Bjarni Ben undir feldi
4 Sonur Madoffs svipti sig lífi
5 Þrír handteknir fyrir vopnað
rán
6 Sextán ára ökufantur
stöðvaður
Jólasplittið
Kramhúsið hélt sína árlegu jóla-
gleði í þrítugasta sinn í Íslensku
óperunni á laugardag. Einna mesta
athygli vakti upptroðsla Birnu
Þórðardóttur stjórnlagaþingsfram-
bjóðanda og nokkurra vinkvenna
hennar, sem stigu dans við undir-
leik syrpu með helstu smellum
Elvis Presley. Undir lok atriðisins fór
Birna í splitt á miðju sviðinu eins
og hún hefur gert í áraraðir. Varð
Kolbrúnu Halldórsdóttur, forseta
Bandalags íslenskra
listamanna og
kynni kvöldsins, á
orði að nú loks-
ins gætu jólin
hafist, úr því að
Birna hefði farið
í splitt.
- afb, kg