Fréttablaðið - 15.12.2010, Blaðsíða 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
Miðvikudagur
skoðun 18
15. desember 2010 MIÐVIKUDAGUR
1
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Vinir Sólheima verða með markað í Iðu við Lækjargötu alla daga fram á jól. Þar verða til sölu munir og matvara sem íbúar Sólheima hafa meðal annars búið til. Þá mun Sólheimakórinn troða upp með nokkur lög. Markaðurinn verður opinn frá klukkan 13 til 18.
Kári Svan Rafnsson fer sínar eigin leiðir á einhjóli:
E inhjól eru ekki algeng sjón í umferð-inni, en glöggir vegfarendur hafa þó tekið eftir ungum manni á slíku farar-tæki í miðbænum undanfarna mánuði. Hann heitir Kári Svan Rafnsson, er húsprest-ur í Höfða og segist ekki muna hvernig áhugi hans á einhjólinu hafi vaknað. „Ég sá þetta hjól í Skeifunni fyrir sirka fjór-um árum og hreifst svo af því að ég keypti það enda var það frekar ódýrt, kostaði ekki nema tólf þús-und krónur,“ segir Kári. „Þessi hjól fást hérna í hjólabúðum en þ ðf
Er eiginlega
varadekk
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGISÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
· Tekur 12 Kg · Hljóðlát· Stórt op > auðvelt að hlaða· Sparneytin
12 kg
Þvottavél
og þurrkari
Bonito ehf. Friendtex, Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2870 - www.friendtex.is
Opnunartími:
mánud. - föstud. kl.11.00 - 1800. - laugard. 11.00 - 16.00 sunnud. 12.00 - 16.00
ÚTSALA
JÓLAGJÖFINA FÆRÐU HJÁ OKKUR
ALLT AÐ 40 %
Mjúk
SÉRBLAÐ
í Fréttablaðinu
Allt
veðrið í dag
15. desember 2010
294. tölublað 10. árgangur
Katla Margrét fertug
Stelpurnar standa upp úr
á ferlinum.
tímamót 26
dagar til jóla
Opið til 22 í kvöld
9
ÓDÝRT FYRIR ALLA!
Nýr tilboðsbæklingur í dag
FÓLK Söngleikur byggður á Diskó-
eyjunni verður settur upp á stóra
sviði Borgarleikhússins árið
2012.
Bragi Valdimar Skúlason og
Óttarr Proppé ætla að finna sér
tíma á næstunni og skrifa handrit
fyrir söngleikinn en platan Diskó-
eyjan hefur notið mikilla vin-
sælda á árinu og lagið Gordjöss,
sem Páll Óskar Hjálmtýsson
flytur í hlutverki Ljóta kallsins,
hefur tröllriðið vinsældalistum.
Bragi er vongóður um að Páll
Óskar muni jafnvel taka að sér
lítið hlutverk í söngleiknum og
að Óttarr Proppé leiki jafnvel
Prófessorinn.
„Það geta ekki allir farið í
skóna hans né fetað í hans fót-
spor,“ segir Bragi. - fgg / sjá síðu 46
Bragi og Óttarr í leikhúsið:
Ætla að gera
söngleik úr
Diskóeyjunni
Hollywood-Andri
Eyðir jólunum með Shawn
Pyfrom og Penn Badgley í
New York.
fólk 46
Ævintýri hjá Emsdetten
Patrekur Jóhannesson er á
réttri leið með þýska félagið
Emsdetten.
sport 40
KÓLNAR SNÖGGLEGA Í dag má
búast við stífri NV-átt, víða 10-15
m/s en það verður hvassviðri eða
stormur við NA-ströndina síðdegis
og í kvöld. Él N- og A-lands en léttir
til sunnan og vestan til.
VEÐUR 4
4
-1
-2
-2
4
STJÓRNSÝSLA Í kjölfar úttektar á
Menntaskólanum Hraðbraut og
fréttaflutnings af meðferðarheim-
ilinu Árbót hefur Ríkisendurskoð-
un farið fram á að fá alla þjónustu-
samninga ráðuneytanna tólf, sem
eru í gildi, til skoðunar.
Samkvæmt fjárlagafrumvarpi
næsta árs er 141 skuldbindandi
samningur í gildi, sem ráðuneyt-
in hafa gert við ýmsa aðila.
Sveinn Arason ríkisendurskoð-
andi segir stofnunina hafa óskað
eftir öllum upplýsingum um alla
gildandi samninga ráðuneyt-
anna og slíkt sé eðlilegt í ljósi
þeirra mála sem upp hafi komið
nýverið.
„Við byrjum á fullum krafti á
þessu verkefni upp úr áramótum
þegar við erum búin að fá alla
samningana,“ segir Sveinn Ara-
son ríkisendurskoðandi.
- sv, gb / sjá síðu 6
Ríkisendurskoðun hefur kallað eftir þjónustusamningum ráðuneytanna:
Vill fara yfir alla samningana
STJÓRNMÁL Útgjöld ríkissjóðs til
velferðarmála aukast um rúm-
lega einn milljarð króna frá því
sem áður stóð til. Meirihluti fjár-
laganefndar gekk í gærkvöldi frá
breytingatillögum við frumvarpið
en lokaumræða þess er á dagskrá
þingsins í dag.
Meðal þess sem breytist er að
350 milljónum króna verður varið
til verðbóta á grunn ellilífeyris- og
örorkubóta.
Dregið er úr aðhaldskröfu á heil-
brigðisstofnanir um sem nemur
nokkur hundruð milljónum. Heil-
brigðisstofnanirnar á Húsavík
og Sauðárkróki og Heilsustofnun
Náttúrulækningafélags Íslands
í Hveragerði þurfa til dæmis að
skera talsvert minna niður en áður
var áætlað.
Þá eru framlög til atvinnuleysis-
bóta aukin um 180 milljónir í tengsl-
um við fyrirhugaðar breytingar á
lögum um bæturnar.
Hækkun vaxtabóta sér einnig
stað í frumvarpinu en hún grund-
vallast á samkomulagi stjórnvalda,
fjármálastofnana og lífeyrissjóða
um aðgerðir fyrir skuldsett heimili.
Verður sex milljörðum króna varið
til málaflokksins umfram það sem
áður var ákveðið en fjármálastofn-
anir taka þátt í kostnaðinum.
Á fundi fjárlaganefndar í gær-
kvöldi varð að samkomulagi að
nefndin öll leggi til að hafin verði á
næsta ári bólusetning við legháls-
krabbameini í tólf ára stúlkum. 50
milljónum króna verður varið til
verkefnisins á næsta ári og meiru
eftir það.
Fátítt er að fjárlagafrumvarp
taki miklum breytingum milli ann-
arrar og þriðju umræðu og þess
raunar dæmi að engar breyting-
ar hafi verið gerðar fyrir lokaum-
ræðuna. Frumvarpið tók umtals-
verðum breytingum milli fyrstu og
annarrar umræðu. Til dæmis var
dregið úr niðurskurði til heilbrigð-
ismála um 1,3 milljarða króna og
framlög til menntamála aukin um
rúmlega hálfan milljarð.
Allur gærdagurinn fór í að smíða
lokaútgáfu tillagnanna. Áður en
kom til fundar fjárlaganefndar í
gærkvöldi voru haldnir fundir í
þingflokkum stjórnarflokkanna.
Hvorki Lilja Mósesdóttir né Atli
Gíslason, sem bæði höfðu gagnrýnt
áætlanir um niðurskurð, sátu fund
VG. Lilja sat hjá í atkvæðagreiðslu
um fjárlagafrumvarpið eftir aðra
umræðu. Innan þingflokks VG er
ekki reiknað með stuðningi hennar
við lokaafgreiðsluna.
Með breytingunum nú er einkum
reynt að koma til móts við gagnrýni
og athugasemdir sem fjárlaganefnd
höfðu borist en ekki tekið sérstakt
tillit til sjónarmiða einstakra þing-
manna, hvorki Lilju né annarra.
- bþs
Enn dregið úr niðurskurði
Meirihluti fjárlaganefndar leggur til miklar breytingar á fjárlagafrumvarpinu. Í VG er ekki búist við stuðn-
ingi Lilju Mósesdóttur. Fjárlaganefnd leggur til að bólusetning við leghálskrabbameini verði hafin.
175 milljónir í potta fyrir ráðherra
Lagt er til að samtals 175 milljónir króna fari í sérstaka potta sem ráðherr-
ar viðkomandi málaflokka geta úthlutað úr á næsta ári til verkefna á sviði
velferðarmála sem þarfnast frekari fjárframlaga. Þessi háttur er nýjung í
fjárveitingum.
Heilbrigðismál: 60 milljónir
Málefni barna: 40 milljónir
Framhaldsskólar: 50 milljónir
Löggæslu- og mannréttindamál: 25 milljónir
LÍF Á LAUGAVEGINUM Jólaverslunin á Laugaveginum fór vel af stað og hefur aukist jafnt og
þétt, enda hefur veðrið verið gott og gjafahátíðin mikla nálgast óðfluga. „Það hefur verið mikið líf hérna og mikið
að gera,“ segir Dögg Hjaltalín, verslunarstjóri í Bókabúð Máls og menningar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM