Fréttablaðið - 15.12.2010, Síða 2
2 15. desember 2010 MIÐVIKUDAGUR
Eyþór, eru Sunnlendingar
meira og minna að fara að
keyra sig í þrot?
„Skattheimtan má ekki vera úti að
aka.“
Ekki eru allir ánægðir með fyrirhugaða
vegatolla sem til stendur að leggja á þá
sem aka til og frá höfuðborgarsvæðinu.
Eyþór Arnalds, formaður bæjarráðs
Árborgar, segir fimmtung bæjarbúa sækja
vinnu til höfuðborgarsvæðisins.
LÖGREGLUMÁL Lettneskur karlmaður
var í gær úrskurðaður í gæslu-
varðhald í héraðsdómi eftir að
hafa reynt að smygla til landsins
hálfu kílói af fíkniefni sem nefnist
methedrone. Þetta er í annað sinn
á skömmum tíma sem reynt er að
smygla til landsins fíkniefnum sem
líkur eru á að séu ekki skráð hér
sem ólögleg efni.
Maðurinn sem um ræðir var
handtekinn við hefðbundið eftirlit
tollgæslunnar í Leifsstöð í síðustu
viku á leið frá Kaupmannahöfn
og var í framhaldinu úrskurðað-
ur í gæsluvarðhald í viku. Hann
hefur aldrei komið til landsins
áður. Nokkrir einstaklingar hafa
verið yfirheyrðir vegna málsins
en öllum sleppt að því loknu nema
umræddum manni.
Fíkniefnið methedrone er náskylt
amfetamíni. Farið var að framleiða
það árið 1929 en neysla þess komst
ekki á skrið fyrr en í kringum árið
2003. Árið 2007 kom í ljós að farið
var að auglýsa það til sölu á net-
inu og hefur neysla þess breiðst
mjög hratt út. Heilbrigðisyfirvöld
víða um heim brugðust skjótt við
og skráðu efnið sem ólöglegt fíkni-
efni. Dauðsföll eru þekkt erlendis
af völdum neyslu á methedrone.
Umrætt fíkniefni hefur lítið sem
ekkert sést hér á landi og var ekki
skráð sem ólöglegt fíkniefni hér
fyrr en 4. október síðastliðinn.
Lögregla telur að það litla sem
sést hafi af efninu hér hafi geng-
ið undir heitinu „kattahlandskók“.
Sú nafngift er til komin vegna þess
að efnið lyktar eins og kattahland.
Erlendis er efnið kallað „meow
meow“ eða „mjá mjá“ af sömu
ástæðu.
Methedrone hefur lítið sést hér,
eins og áður sagði. Þó kom upp mál í
Leifsstöð fyrir nokkru þar sem það
fannst. Óvíst er hverjar málalyktir
í því tilviki verða, því efnið var ekki
komið á skrá yfir ólögleg fíkniefni
hér á landi þegar það kom upp.
Ekki er langt um liðið síðan tveir
menn voru ákærðir fyrir Héraðs-
dómi Reykjaness fyrir smygl hing-
að til lands á tæplega fjórum kíló-
um af 4-flúoróamfetamíni. Efnið
er afleiða amfetamíns. Mennirnir
voru báðir sýknaðir, meðal annars
vegna þess að efnið var á þeim tíma
sem það var flutt inn ekki bannað í
reglugerð um ávana- og fíkniefni og
önnur eftirlitsskyld efni. Ekki þótti
einu sinni unnt að sakfella fyrir
tilraun til brots. Efnið er komið á
bannlista.
Lögreglan á Suðurnesjum fer
með rannsókn málsins.
jss@frettabladid.is
Flutti inn hálft kíló
af kattahlandskóki
Lettneskur maður var gripinn með hálft kíló af methedrone, fíkniefni náskyldu
amfetamíni, og úrskurðaður í einnar viku varðhald. Lyktarinnar vegna er efnið
gjarnan kallað „kattahlandskók“. Það var ekki gert ólöglegt fyrr en í október.
AMFETAMÍN Efnið er náskylt amfetamíni en hefur lítið sem ekkert sést hér á landi.
Lögregla telur að það litla
sem sést hafi af efninu hér
hafi gengið undir heitinu
„kattahlandskók.“ Sú nafngift
er tilkomin vegna þess að
efnið lyktar eins og katta-
hland.
LÖGREGLUMÁL Að undanförnu
hefur verið brotist inn í ellefu
heimahús í Hafnarfirði og
Garðabæ. Flest innbrotin hafa
átt sér stað að degi til en fáein
að kvöldlagi. Skartgripir eru
meðal þess sem innbrotsþjófarn-
ir hafa haft á brott með sér en
líklegt verður að teljast að málin
tengist.
Lögregla ítrekar þau tilmæli
að fólk láti hana vita um
grunsam legar mannaferðir og
að það skrifi hjá sér bílnúmer
eða jafnvel lýsingar á fólki ef
eitthvað óvenjulegt á sér stað í
nánasta umhverfi þess. Upplýs-
ingum af þessu tagi má koma á
framfæri í síma 444-1000 eða
með því að senda tölvupóst á
netfangið abending@lrh.is. -jss
Innbrotafaraldur í Hafnarfirði:
Brotist inn í ell-
efu heimahús
BANDARÍKIN Könnunarhnötturinn
Voyager 1, sem skotið var á loft
árið 1977, er nú kominn sautján
milljarða kílómetra frá jörðu.
Ekkert geimfar hefur náð slíkri
fjarlægð frá jörðinni. Vart hefur
orðið við breytingar á flæði
geimagna kringum Voyager,
sem gefa til kynna að könnunar-
hnötturinn sé að nálgast endi-
mörk sólkerfisins.
Edward Stone, forstöðumaður
Voyager-verkefnisins, segir það
hafa skilað fjölda merkra upp-
götvana. „Árið 1977 vissi enginn
einu sinni hvort geimfar gæti
enst svo lengi. Innan fimm ára
ætti Voyager hins vegar að vera
kominn út fyrir sólkerfið.“ - mt
Merkur áfangi Voyager 1:
Við endimörk
sólkerfisins
MENNTUN Sameiningarviðræðum
Háskólans á Bifröst og Háskól-
ans í Reykjavík hefur verið
hætt.
Þetta var ákveðið á stjórnar-
fundi í Háskólanum í Bifröst
í gær. Stjórnin ákvað að halda
rekstrinum áfram á Bifröst.
Viðræður skólanna voru langt
á veg komnar í nóvember og
hafði verið rætt um að færa
kennslu frá Bifröst til Reykja-
víkur. Hlé var gert á viðræðun-
um þegar rektor Háskólans á
Bifröst lýsti yfir óánægju með
þær. - þeb
Stjórn Bifrastar fundaði í gær:
Háskólar
sameinast ekki
SAMKEPPNISMÁL Hagar og sex kjöt-
vinnslufyrirtæki munu greiða
405 milljónir króna í sektir fyrir
brot á samkeppnislögum.
Fyrirtækin viðurkenndu að
hafa gerst sek um samkeppn-
ishamlandi samvinnu með tví-
hliða samningum eða samstillt-
um aðgerðum við verðlagningu
á kjöti og kjötvörum í smásölu.
Vörurnar voru verðmerktar sér-
staklega fyrir Haga. Samkeppnis-
eftirlitið hefur samið um sektirn-
ar við fyrirtækin. Hagar munu
greiða 270 milljónir króna, eins
og áður hefur verið greint frá. SS
og Reykjagarður greiða samtals
45 milljónir króna, Kjötafurða-
stöð Kaupfélags Skagfirðinga 40
milljónir, Norðlenska 30 milljónir
og Kjarnafæði 20 milljónir. Í nóv-
ember var gerð sátt vegna Kjöt-
bankans, en fyrirtækið er gjald-
þrota og verður því ekki hægt að
sekta það.
Viðræður við fyrirtækin Síld
og fisk og Matfugl skiluðu ekki
niðurstöðu og er þáttur þeirra
enn til rannsóknar.
- þeb
Samkeppniseftirlitið hefur gert sátt við Haga og sex kjötvinnslufyrirtæki:
Borga 405 milljónir í sektir
ÚR BÓNUS Fyrirtækjunum er gert að
greiða sektir vegna brota á samkeppnis-
lögum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
EFNAHAGSMÁL Umboðsmaður
skuldara mun opna útibú í
Reykjanesbæ á morgun.
Fordæmalausar aðstæður á
Reykjanesskaga urðu til þess að
ákveðið var að opna útibú þar,
segir í tilkynningu frá embætt-
inu. Tveir starfsmenn hafa verið
ráðnir og fá þeir aðsetur í hús-
næði sýslumannsins í Keflavík.
Báðir starfsmennirnir eru frá
Suðurnesjum.
Umboðsmaður skuldara segist
vona að embættið muni eiga gott
samstarf við aðila á Suðurnesj-
um við að aðstoða fólk í skulda-
vanda. - þeb
Umboðsmaður skuldara:
Opnar útibú
í Reykjanesbæ
WIKILEAKS Blaðamaðurinn John Pilger og kvikmynda-
gerðarmennirnir Michael Moore, Ken Loach og
Tariq Ali eru meðal þeirra sem lögðu í gær fram
tryggingarfé svo leysa mætti Julian Assange, stofn-
anda Wikileaks, úr fangelsi í London.
Samtals voru lagðar fram 43 milljónir króna, en
dómstóllinn krefst 36 milljóna króna.
Saksóknari í Svíþjóð, sem vill fá Assange fram-
seldan, ákvað hins vegar að áfrýja ákvörðun breska
dómstólsins um að Assange yrði látinn laus gegn
trygginu. Assange verður því áfram í fangelsinu
meðan áfrýjunin er til meðferðar, sem væntanlega
tekur tvo sólarhringa.
Fjölmargir stuðningsmenn Assange mættu í rétt-
arsalinn í gær, þar á meðal móðir hans, Christine
Assange, sem var komin til Bretlands frá Ástralíu
og þakkaði viðstöddum stuðninginn.
Assange hefur verið sakaður um kynferðisbrot
gegn tveimur konum í Svíþjóð. Ákæra hefur þó ekki
verið lögð fram, heldur vill saksóknari fá hann til
yfirheyrslu svo unnt verði að taka afstöðu til þess
hvort hann verði ákærður. Ekki nægir samt að sak-
sóknari vilji ákæra, því hann þarf að leggja málið
fyrir ákærukviðdóm sem tekur ákvörðunina.
Í Bretlandi verður framsalsmálið þó ekki tekið
fyrir næst fyrr en 11. janúar. - gb
Þekktir kvikmyndagerðarmenn og blaðamenn reyna að fá Assange lausan:
Lausn gegn tryggingu áfrýjað
JULIAN ASSANGE Á leið fyrir dómara í gær í lögreglubifreið.
NORDICPHOTOS/AFP
ALÞINGI Hjálparhundar verða
undanþegnir takmörkunum um
hundahald, samkvæmt frum-
varpi Guðbjarts
Hannessonar
félagsmálaráð-
herra.
Í lögum um
fjöleignarhús er
kveðið á um að
samþykki allra
íbúa þurfi fyrir
hundahaldi.
Breytingin er
lögð til í kjölfar
máls sem upp kom fyrr á árinu.
Blindri konu í fjölbýli á Akranesi
var meinað að halda leiðsögu-
hund.
Í greinargerð frumvarpsins
segir að með því sé slegin skjald-
borg um leiðsögu- og hjálpar-
hunda, fortakslaust neitunarvald
annarra afnumið og réttur
fatlaðs fólks settur í forgang.
- bþs
Lög um fjöleignarhús:
Í lagi að halda
hjálparhunda
GUÐBJARTUR
HANNESSON
Chavez vill aukin völd
Hugo Chavez, forseti Venesúela, fer
fram á að þing landsins veiti honum
aukin völd til eins árs, meðan landið
er að ná sér eftir mikil flóð og aur-
skriður. Chavez hefur stuðning mikinn
meirihluta þingsins, en í næstu viku
tekur við nýtt þing sem er ekki jafn
hliðhollt honum.
VENESÚELA
SPURNING DAGSINS
®